Nesfréttir - 01.01.2006, Page 10
10 NES FRÉTTIR
„Af hverju ferðu fram á móti sitj-
andi bæjarstjóra?” Þessa spurningu
hef ég vissulega heyrt á undanförn-
um dögum.
Þetta er eðlileg spurning en í
mínum huga er ég þó ekki að fara
á móti einum eða neinum. Ég er ein-
faldlega að bjóða fram starfskrafta
mína á heiðarlegan hátt og leggja
það í dóm flokksbræðra minna og
-systra hvort og þá hvar hægt er að
nýta þá krafta.
Reynslan hefur sýnt að prófkjör
verða Sjálfstæðisflokknum yfirleitt
til framdráttar. Prófkjör er lýðræðis-
leg aðferð til að velja frambjóðend-
ur á opinn hátt samkvæmt fyrirfram
settum reglum. Fólið velur en ekki
fámennur hópur flokksforystunnar.
Niðurstaðan mun því endurspegla
vilja þeirra sem taka þátt og þannig
styrkja flokkinn og tryggja breiða
skírskotun til íbúa bæjarins.
Þessi aðferð gerir þá kröfu til
okkar sem tökum þátt í prófkjöri
eins og því sem framundan er á Sel-
tjarnarnesi, að við etjum kappi við
félaga okkar af drengskap og heiðar-
leika. Við leggjum spilin á borðið og
gerum kjósendum grein fyrir stefnu
okkar og verkum og ekki síst fram-
tíðarsýn. Að prófkjöri loknu standa
allir Sjálfstæðismenn saman sem
einn maður og takast í sameiningu
á við kosningar að vori.
Ég hef lengi haft brennandi áhuga
á málefnum bæjarfélagsins og á
þann draum heitastan að geta gef-
ið alla mína starfskrafta til góðra
verka bænum mínum til heilla. Allt
frá því að ég 15 ára gamall var einn
af stofnendum Taflfélagsins, sem
síðar varð Taflfélag Seltjarnarness,
hef ég með einum eða öðrum hætti
lagt mitt af mörkum til bæjarfélags-
ins. Á mínum yngri árum var ég
leikmaður og þjálfari hjá Íþróttafé-
laginu Gróttu. Síðar var ég kennari
í Mýrarhúsaskóla og umsjónarmað-
ur skólaskjóls og félagsstarfs fyrir
börnin, formað-
ur Íþróttafé-
lagsins Gróttu í
fjölda ár og nú
frá árinu 2002
bæjarfulltrúi og
formaður skóla-
nefndar. Málefni
fjölskyldunnar
hafa verið mér
afar hugleikin og
síðasta ár hef ég setið í nefnd sem
mun á næstu vikum skila mótaðri
fjölskyldustefnu bæjarins. Þá leiði
ég einnig vinnu við mótun skóla-
stefnu Seltjarnarness sem mun
verða kynnt núna í vor.
Ég vil með sterkri og ábyrgri fjár-
málastjórn sjá Seltjarnarnesbæ vera
bæjarfélag þar sem fjölskyldufólki
eru skapaðar bestu aðstæður til að
ala upp börn í öruggu og barnvænu
samfélagi. Til að laða til okkar fjöl-
skyldufólk þurfum við góða skóla,
öflugt íþrótta- og æskulýðsstarf og
fjölskylduvæna skattastefnu. Þar
verður samvinna skóla, íþróttafé-
lags og æskulýðsstarfs að vera í
öndvegi. Þá vil ég geta tryggt eldri
borgurum á Seltjarnarnesi þá þjón-
ustu sem best er hverju sinni.
Í störfum mínum sem kennari,
lögreglumaður og ráðgjafi á Íslandi
og víða um Evrópu hafa hæfileikar
mínir til að vinna með fólki með
ólíkan bakgrunn og úr ýmsum stétt-
um ætíð verið taldir sem minn aðal-
styrkleiki. Þá eiginleika vil ég nýta
til að leiða þann hóp bæjarfulltrúa
sem kosnir verða í vor til að stjórna
bæjarfélagi okkar.
Um leið og ég óska eftir stuðningi
þínum hvet ég þig til að heimsækja
mig á kosningaskrifstofu mína á
Austurströnd 14, þar sem áður var
Litabær, en skrifstofan verður opin
alla daga fram að kjördegi frá kl.
15.00.
Með kærri kveðju,
Bjarni Torfi Álfþórsson.
Af hverju?
Bjarni Torfi
Álfþórsson.
Kæru Seltirningar,
Ég hef verið þeirra forréttinda aðnjót-
andi að hafa búið hér í bæjarfélaginu
öll mín búskaparár, eða rúm 30 ár.
Börnin mín þrjú hafa gengið í gegnum
öll skólastig bæjarfélagsins frá Fögru-
brekku, Sólbrekku til Mýrarhúsaskóla
og Valhúsaskóla og jafnframt stundað
það félags- og íþróttastarf sem í boði
hafa verið, á hverjum tíma. Sjálf hef ég
fylgt þeim eftir með þátttöku í foreldra-
ráðum og stuðningshópum á hinum
mismunandi stigum lífsgöngunar bæði
í skólum og í íþróttafélaginu. Eiginmað-
ur minn Stefán Örn Stefánsson er einn
af stofnendum Gróttu og hefur æft og
keppt í öllum flokkum knattspyrnu- og
handknattleiksdeildar Gróttu. Ásamt
því að ég hef unnið á bæjarskrifstofum
Seltjarnarnes á þriðja ár og tel ég mig
því þekkja innviði bæjarfélagsins mjög
vel.
Seltjarnarnes hefur allar þær for-
sendur, til að skara framúr meðal
íslenskra bæjar- og sveitarfélaga, hvort
sem er í málefnum aldraðra, skólamál-
um, menningarmálum eða íþrótta- og
æskulýðsmálum. Með festu og mark-
vissri fjármálastjórn er hægt að halda
álögum í lágmarki en um leið hækka
þjónustustigið við íbúa bæjarfélags-
ins. Það var oft rætt hjá okkur hjónum
áður fyrr, að ef við þyrftum að flytja
af Nesinu yrði það ekki fyrr en börnin
lykju skólaskyldu, því hér töldum við
okkur fá besta hugsanlega skólaum-
hverfið og eitt það fjölskylduvænasta
samfélag sem til væri hér á landi. Síð-
an hafa framfarir orðið miklar og enn
er hægt að gera betur.
Seltjarnarnes er ólíkt flestum bæj-
ar- og sveitarfélögum hvað varðar
landrými og legu að fyrirséð var fyrir
löngu að ekki væri hægt að mæta þeim
þörfum bæjarfélagsins til langframa að
bæta við íbúðabyggð. Hefur sérstaða
Seltjarnarness um varðveislu útivistar-
svæða og sem einstök náttúruperla
með fjölbreytt fuglalíf og annað náttúru-
far gert þetta samfélag einstakt meðal
íslenskra bæjarsamfélaga. Bæjaryfir-
völd og stoltir íbúar hafa á öllum stund-
um hreykt sér af sérstöðunni, þar sem
umhverfi og útsýni eru aðalsmerki
sem djúp sátt hefur ríkt um. Undan-
farna áratugi hafa framangreind ein-
kenni bæjarfélagsins styrkst eftir því
sem íbúum hefur fjölgað og átt þátt í
því að gera þetta samfélag eitt það eftir-
sóttasta á landinu, þar sem íbúðaverð
er töluvert hærra en gerist almennt
annars staðar. Sjá sumir fyrir sér þá
þróun hér sem átt hefur sér stað víða
erlendis, að ákveðin hverfi eða bæjar-
félög nálægt stórborgum hafa öðlast
eftirsóttan sess sem skapast hafa, út
frá bæði landfræðilegum, félagslegum
og ofannefndum umhverfisforsendum
og gert þau eftirsótt.
Nálægðin við Reykjavík og sú stað-
reynd að hlutfall þeirra íbúa sem
starfa innan bæjarfélagsins er með því
lægsta sem þekkist hér á landi styrk-
ir ofannefnda skoðun. Ennfremur er
ljóst að skatttekjur á hvern íbúa eru
óvíða hærri en hér, þótt skattstofnar
séu ekki nýttir til fulls. Seltjarnarnes-
bær stendur því mjög vel fjárhagslega
og félagslega með tillliti til annara bæj-
ar- og sveitarfélaga.
Með framboði mínu í 5.sæti próf-
kjörslistans, sem við sjálfstæðismenn
lítum á sem baráttusæti í komandi
kosningum, vil ég stuðla að áframhald-
andi framþróun bæjarfélagsins. Ein-
kunnarorð mín í lífinu hafa ávallt ver-
ið þau að „það er alltaf hægt að gera
betur”. Við verðum að standa vörð
um þau gildi sem
skapað hafa það
umhverfis- og fjöl-
skylduvæna sam-
félag sem Seltjarn-
arnes er. Ég mun
beita mér að alefli
við að hafa þau
gildi í heiðri. Ég
vil búa í fjölskyldu-
vænu bæjarfélagi
með metnaði í mál-
efnum aldraðra, framsæknum skóla
og öflugu íþrótta- og menningarlífi, en
umframt allt með virðingu fyrir þeirri
náttúruperlu sem almættið hefur gefið
okkur.
Skipulagsmál hafa verið átakamál
á núverandi kjörtímabili og er það
skiljanlegt því þau eru einstaklega
vandmeðfarin í bæjarfélagi með svo
takmarkað landrými sem Seltjarnarnes
hefur. Taka verður tillit til ofannefndra
umhverfisáhrifa og þess að skylda bæj-
aryfirvalda hlýtur ávallt vera meiri við
núverandi íbúa umfram nýrra á kostn-
að umhverfis.
Ég býð krafta mína fram, til að efla
enn frekar það einstaka bæjarfélag,
sem svo margir dugnaðarforkar á liðn-
um árum hafa komið að, að gera að eft-
irsóttasta bæjarfélagi landsins.
Oddný Rósa Halldórsdóttir
Oddný Rósa Halldórsdóttir gefur kost á sér í 5. sæti
Oddný Rósa
Halldórsdóttir.
Messur í Seltjarnarneskirkju
29. janúar
Útvarpsguðsþjónusta kl. 11. Kam-
merkór Seltjarnarneskirkju. Organisti
Pavel Manasek. Sr. Arna Grétarsdótt-
ir. Sunnudagaskóli á sama tíma.
5. febrúar
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Barnakór Seltjarnarneskirkju syng-
ur undir stjórn Vieru Manasek. Org-
anisti Pavel Manasek. Söngur, leikrit,
fræðsla. Sr. Arna Grétarsdóttir og
leiðtogar barnastarfsins.
12. febrúar
Messa kl. 11. Kammerkór Seltjarn-
arneskirkju. Organisti Pavel Mana-
sek. Sr. Sigurður Grétar Helgason.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
19. febrúar
Messa kl. 11. Konudagurinn.
Konur úr kvenfélagi Seltjarnarness
aðstoða við helgihaldið. Konur úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða
messusvör og sálmasöng. Organisti
Pavel Manasek. Sr. Arna Grétarsdótt-
ir. Sunnudagaskóli á sama tíma.
26. febrúar
Guðsþjónusta kl. 11. Kammer-kór
Seltjarnarneskirkju. Organisti Pavel
Manasek. Sr. Sigurður Grétar Helga-
son. Sunnudagaskóli á sama tíma.
5. mars
Léttmessa kl. 11. Æskulýðsdag-
urinn. Fermingarbörn aðstoða við
messuna. Líf og fjör með rafmagn-
aðri tónlist fyrir alla aldurshópa.
Nánar auglýst síðar. Sr. Arna Grétars-
dóttir.
Verið hjartanlega
Velkomin í kirkjuna
www.seltjarnarneskirkja.is