Nesfréttir - 01.01.2006, Side 11

Nesfréttir - 01.01.2006, Side 11
Laugardaginn 4. febrúar n.k. fer fram prófkjör Sjálfstæðismanna á Seltjarnar- nesi fyrir komandi sveitastjórnarkosning- ar. Í kosningunum 2002 var ég í 7. sæti og hef verið formaður menningarnefndar og varabæjarfulltrúi frá síðustu kosning- um. Þessi ár hafa bæði verið skemmtileg og lærdómsrík enda er ég stolt af starfi menningarnefndar síðustu fjögur ár. Til að fá sterkari stöðu til góðra verka stefni nú ég á 2. sæti listans. Hér á eftir mun ég gera grein fyrir helstu áherslum mínum á nýju kjörtímabili. Tómstundahús á Seltjarnarnes, áframhaldandi efling bæjarbragsins og miðbæjarkjarnans á Eiðistorgi Í júní síðastliðnum sótti ég vinabæj- armót í Lieto í Finnlandi. Fundirnir fóru fram í ráðhúsi bæjarins og heillaðist ég af þeirri starfssemi sem þar fer fram. Ráð- húsið samanstóð af öllum skrifstofum bæjarins, bókasafni, náttúrugripasafni, sýningarsal, unglingastarfi, starfi eldri borgara, foreldrastarfi o.fl. Á jarðhæð hússins var matsalur þar sem starfsmenn hússins borðuðu í matar-og kaffitím- um en veitingasalan var jafnframt opin gestum og gangandi. Húsið var hlýlegt, einfalt að allri gerð en notagildi þess jafn- framt mikið. Ekki síst hafði það mikil áhrif bæjarbraginn sem aðalsamkomustaður bæjarbúa. Ég hef rætt hugmyndina að slíku húsi við marga og fengið jákvæð viðbrögð m.a. átti ég gefandi samtal við Margréti forstöðumann Selsins sem gaf mér auk- inn innblástur. Tómstundahús myndi hýsa allt núverandi tómstundastarf ung- linga og fleira til s.s. æfingaraðstöðu fyrir hljómsveitir, kvikmyndaklúbba og hvers kyns listiðkun fyrir eldri jafnt sem yngri bæjarbúa. Hugmyndin er hús þar sem saman færu áðurnefndir þættir sem og öflugt starf í líkingu við það sem unnið er í Hinu húsinu í Reykjavík sjá www.hitthusid. is en það er ætlað ungmennum 16-25 ára og sambærilegt við það sem unnið er í menningarmiðstöðinni Gerðuberg í Breiðholti sjá www.gerduberg.is auk fjölbreytts tómstundastarfs fyrir alla aldurshópa á vegum bæjarins sem og einkaaðila. Húsið myndi samþætta alla aldurshópa auk þess að hýsa skifstofur bæjarins. Í aðalskipulagi er gert ráð fyr- ir að suðurhorn við Nesveg og Suður- strönd miðist við að styrkja og efla mið- bæjarstarfssemi á Seltjarnarnesi. Þetta svæði er 2.350 fm að stærð og þar mætti auðveldlega koma fyrir tómstundahúsi. Bílakjallari þyrfti að vera undir því og góð tenging t.d. með göngubrú yfir í kjarnann á Eiðistorgi. Hér er varpað fram hugmynd að staðsetningu en nálægð við Eiðistorg væri að mínu mati ekki aðeins lyftistöng fyrir miðbæjarkjarnann heldur allt mann- líf á Seltjarnarnesi. Hvatapeningar til eflingar íþrótta, æskulýðsstarfs og listrænnar þáttöku barna frá 6-16 ára Hið öfluga starf Gróttu er mikilvægt for- varnar-og uppbyggingarstarf sem stór hluti Nesbúa tekur eða hefur tekið þátt í. Seltjarnarnesbær kemur að rekstri Gróttu m.a. með 53 milljón króna árlegu framlagi sem deilist á 600 unga iðkendur sem að meirihluta eru Seltirningar. En mörg börn kjósa að stunda aðrar íþróttir en boðið er upp á hjá Gróttu s.s. karate,sund, dans, tennis, skylmingar eða listnám eins og ballett, tónlist, leiklist eða myndlist. For- eldrar þessara barna njóta engrar niður- greiðslna frá bænum. Til að jafnræðis sé gætt og jafnframt valfrelsis og fjölbreytni legg ég til að foreldrar barna á aldrinum 6-16 ára fái árlega úthlutað tiltekinni upphæð til að greiða niður kostnað við íþrótta-eða menningariðkun barna sinna og lækka þannig bein útgjöld fjölskyldunnar. Upphæðin væri hin sama hvort sem um væri að ræða félags- gjöld til Gróttu eða til annarra íþrótta- eða menn- ingarþáttöku. For- eldrar myndu reiða af hendi fullt gjald en fá síðan hluta gjaldsins endurgreiddan gegn framvísun á kvittun. Í Garðabæ eru hvatapeningar komnir til framkvæmda hvað varðar íþróttaiðkun og miðast upphæðin við 20 þúsund per.barn. Mín tillaga gengur lengra því hún tekur einnig til listgreina. Stefna Sjálfstæðisflokksins er skýr hvað varðar valfrelsi einstaklingsins og rétt hans til að þroska hæfileika sína til að skapa sér framtíð á eigin forsendum. Skólarnir okkar Nokkuð umrót hefur fylgt sameiningu Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla. Ég tel nauðsynlegt að skólinn fái tíma til að laga sig að breyttum aðstæðum og ná fullu jafnvægi í innra starfi. Mikilvægi góðra skóla verður seint ofmetið. Í góðum skóla líður nemendum og starfsfólki vel undir styrkri forystu með skýra sýn. Markviss kennsla í framkomu og tján- ingu á öllum skólastigum Eitt stefnumála minna í prófkjöri Sjálfstæðismanna 2001 var markviss kennsla í framsögn og tjáningu á öllum skólastigum. Því miður hefur gengið seint að fá þetta í gegn en þó hillir undir að kennsla í tjáningu hefjist í Valhúsaskóla á komandi hausti. Mér er það mikið fagn- aðarefni en betur má ef duga skal. Örugg framkoma,opin tjáning og markviss sjálfs- styrking er einn helsti lykillinn að öflugu sjálfstrausti sem skilar heilbrigðum ein- staklingum út í lífið. Von mín er sú að skólar Seltjarnarness verði í fararbroddi á þessu sviði. Eldri borgarar-virkir þáttakendur Það er mikið fagnaðarefni að eitt helsta baráttumál síðasta kjörtímabils, bygging hjúkrunarheimilis, sé að verða að veruleika. Aðstæður aldraðra sem geta og kjósa að búa á eigin vegum eiga einnig að vera eins góðar og völ er á. En í eldri borgurum liggur ónýttur fjársjóður fróðleiks og reynslu.Ég legg til að komið verði á samstarfi milli bæjarins og eldri borgara t.d. með hlutastarfi í skólunum, í æskulýðsstarfi eða við sértæk verkefni. Slíkt samstarf gæti síðan orðið öðrum að fyrirmynd s.s. einkaaðilum og fyrirtækj- um. Mín trú er sú að því lengur sem ein- staklingurinn er virkur í samfélaginu því meiri séu lífsgæði hans. Traust fjármálastjórnun Bæjarfélagið okkar er vel rekið. Ofan- greindar hugmyndir geta vel orðið að veruleika án þess að til komi skattahækk- anir.Við eigum að vera í fararbroddi sem vinalegt og samheldið bæjarfélag þar sem einstaklingar á öllum aldri fá notið sín. Sólveig Pálsdóttir. Seltjarnarnes, líflegt samfélag! Sólveig Pálsdóttir. Skýrsla um varpfugla á Seltjarnarnesi sumarið 2005 Útbreiðsla og þéttleiki varp- fugla á Seltjarnarnesi hefur að verið kannaður annað hvert ár að frumkvæði Seltjarnarnesbæj- ar. Jóhann Óli Hilmarsson fugla- fræðingur hefur annast verkið og skilaði nýverið af sér skýrslu fyrir sumarið 2005. Helstu niðurstöður hans eru m.a. að kríuvarp er enn í aukningu en varpið telur 4.550 pör, sem er 43% aukning frá árinu 2003 og var fjölgunin mest í Gróttu. Afkoma kríuunga var í slöku meðallagi þetta árið og er ætisskorti kennt um. Æðarfugl er annar algengasti varpfuglinn á Nesinu. Í Gróttu voru taldar æðarkollur með unga svo og æðarhreiður og fundust 15 hreiður og þar sáust 47 kollur með unga. Talið er að þær komi frá Álftanesi, Akurey, Engey eða annars staðar úr nágrenninu, en þær fara nokkuð víða í ætisleit. Ýmsar andategundir áttu sér bústað við Bakkatjörn og víðar og er talið að þær hafi verið um 140 talsins. Varpafkoma anda var fremur slök, en mófuglum virtist vegna betur. Margæs var mjög áberandi þetta vorið. Hún er hér umferð- arfugl, sem hefur hér viðkomu á leið milli varpstöðva á Írlandi og víðar í Vestur-Evrópu og varp- stöðva á Íshafseyjum í Kanada. Ýmsir aðrir fuglar eiga sér búsetu á Seltjarnarnesi en aðrir eiga hér stutt stopp. Skýrsluna má sjá á vef Seltjarn- arnesbæjar, www.seltjarnarnes.is. f.h. umhverfisnefndar Seltjarnarness. Stefán Bergmann U M H V E R F I S H O R N I Ð NES FRÉTTIR 11 Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í sjötta sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins á Seltjarnarnesi fyrir bæj- arstjórnarkosningar sem fram fara í vor. Prófkjörið fer fram 4. febrú- ar næstkomandi. Helstu baráttumál mín eru m.a. uppeldis- og skólamál, skipulags- mál, íþrótta- og tómstundamál ásamt því að tryggja áframhald- andi stöðugleika í rekstri bæjarfé- lagsins. Það skiptir miklu máli að á lista Sjálfstæðisflokksins á Nes- inu veljist góð blanda af fólki með þekkingu og reynslu af bæjarmál- um og nýju fólki sem kemur með nýjar og ferskar hugmyndir. Ég er 38 ára gömul og hef verið búsett á Seltjarnarnesi frá árinu 1991 að undanskildum 5 árum sem ég var búsett í Bandaríkjun- um. Þar lagði ég stund á nám í ferðamálafræðum og vann við þjónustustörf. Í vor lík ég BS. prófi í viðskiptafræði við Háskóla Íslands með áherslu á stjórnun. Ég hef unnið við ýmis skrifstofu- störf þar af lengst hjá Flug- félaginu Atlanta sem skrifstofu- stjóri. Síðustu 6 ár hef ég starfað í foreldrafélagi Sólbrekku og hef m.a. verið gjaldkeri og formaður. Ég er gift Birgi Thoroddsen, verkfræðingi og við eigum tvö börn, Björk 9 ára og Arnar 5 ára. Ég hef áhuga á að starfa í þágu Seltirninga og óska eftir stuðningi þínum. Bestu kveðjur, Helga Jónsdóttir Kæru Seltirningar Helga Jónsdóttir.

x

Nesfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.