Nesfréttir - 01.01.2006, Blaðsíða 17
Framundan er prófkjör Sjálfstæð-
ismanna sem fer fram þann 4. febr-
úar næstkomandi. Bæjarstjórnar-
kosningarnar í vor munu snúast um
framtíð Seltjarnarness.
Framtíðarsýn mín er að Seltjarnar-
nes verði áfram eftirsóknarvert og
fjölskylduvænt bæjarfélag, hreint,
lifandi og öll þjónusta verði í háum
gæðaflokki. Við erum í harðri sam-
keppni við önnur bæjarfélög um
hylli íbúanna því að Seltirningar
gera auknar kröfur um meiri þjón-
ustu og við verðum því að gera
allt sem í okkar valdi stendur til að
búsetuskilyrði og þjónusta séu með
því allra besta. Seltjarnarnesbær er
ríkt og vel rekið bæjarfélag og skatt-
ar eru með þeim allra lægstu á land-
inu.
Seltjarnarnes er þjónustufyrir-
tæki sem á að hafa hag íbúanna að
leiðarljósi. Við munum ekki sætta
okkur við lokanir á leikskólum. Við
eigum að stuðla að því að bjóða
starfsmönnum okkar góð kjör og
koma í veg fyrir fjöldauppsagnir.
Seltjarnarnes á að vera leiðandi bæj-
arfélag hvort sem það er þjónusta
við íbúanna eða kjör starfsmanna
bæjarins.
Mín helstu áherslumál og fram-
tíðarsýn eru áframhaldandi styrk
fjármálastjórn þar sem sköttum er
haldið í lágmarki. Halda áfram að
gera góða skóla enn betri og fylgja
eftir metnaðarfullum endurbótum
sem þegar eru hafnar á skólamann-
virkjum bæjarins, setja markið hátt
í menntun barnanna okkar, auka
fjölbreytni og frelsi í menntamálum
því þarfir barnanna okkar eru ekki
alltaf þær sömu, bæta skólalóðirnar
og gera þær meira aðlaðandi, leita
betri úrræða á félagsaðstöðu ung-
linga.
Viðhalda áfram góðri samvinnu
milli íþróttafélagsins, skólanna
og æskulýðsstarfs. Koma á hvata-
styrkjum 6 - 16 ára barna til efling-
ar íþrótta- og æskulýðsmála, bæta
opin leiksvæði, stuðla að því að
laða meira af fjölskyldufólki til bæj-
arfélagsins.
Í skipulagsmálum, finna heild-
stæða lausn á umferðarmannvirkj-
um í kringum skólana og Hrólfskála-
mel til að að draga úr umferðar-
hnútum og auka öryggi gangandi
vegfarenda. Mitt leiðarljós í skipu-
lagsmálum verður, vandað og sam-
ræmt skipulag, falleg byggingarlist,
skynsamleg landnýting, gott íbúð-
arhverfi, með umhverfissjónarmið
í huga, nýting sérkenna þannig að
umhverfisgæði skapist, umferðar-
öryggi; skipu-
lag miðist við
að skapa skjól
og mannvænt
umhverfi í góð-
um tengslum við
göngustíganet og
útisvæði.
Ég vil efla mið-
bæjarkjarnann
í kringum Eiðis-
torg.
Fyrir aldraða vil ég kanna þjón-
ustuþarfir þeirra og húsnæðisþörf,
mynda öryggisnet og bjóða þeim
upp á aukna valmöguleika. Ég vil
einnig bæta aðgengi hreyfihamlaðra
þannig að þeir geti farið um bæinn
hindrunarlaust.
Ég vil halda áfram að efla bæjar-
braginn og auðga menningarlíf okk-
ar Seltirninga til að við getum átt
fleiri góðar stundir saman.
Ég hef setið í skólanefnd frá árinu
2002 og er jafnframt varabæjarfull-
trúi. Ég er einnig virkur í íþrótta- og
æskulýðsmálum og hefur setið í
stjórn Handknattleiksdeildar Gróttu
frá árinu 2002.
Lárus B. Lárusson
Höfundur býður sig fram í 4. sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
NES FRÉTTIR 17
Kæri Seltirningur
Lárus B.
Lárusson
Nú þessa dagana er verið að
leggja lokahönd á Fjölskyldustefnu
Seltjarnarnesbæjar og verður hún
kynnt á vordögum og send út til
allra bæjarbúa.
En hvað er fjölskyldustefna?
Með fjölskyldustefnu er lagður
grunnur að því hvernig best verði
búið að fjölskyldum á Seltjarnar-
nesi. Fjölskyldustefnunni er ætlað
að hafa áhrif á umgjörð og velferð
fjölskyldna, stuðla að minna álagi
á fjölskyldur og er ætlað að hafa
forvarnaráhrif og áhrif á lífsgæði.
Í fjölskyldustefnunni er tekið á
hinum ýmsu málaflokkum svo sem
dagvist barna, skólum þ.m.t. leik-
skólum, grunnskólum og tónlistar-
skóla, málefnum aldraðra, íþrótta
- og tómstundastarfi, heilsugæslu,
forvörnum og fræðslu, menningu,
fjölmenningu, safnaðarstarfi, úti-
vist og umhverfi, jafnréttismálum,
skipulagsmálum og húsnæðismál-
um svo fátt eitt sé talið eða í stuttu
máli öllu sem viðkemur daglegu
lífi okkar hér í bæjarfélaginu.
Mig langar að taka fyrir sérstak-
lega eina grein í fjölskyldustefn-
unni undir málaflokknum íþróttir
og tómstundir en hún hljóðar svo:
• Allir hafi sama rétt, fái sam-
bærilegt viðmót og njóti sömu
hvatningar til að taka þátt í því
sem í boði er. Gæta skal sérstak-
lega að börnum og unglingum sem
standa illa félagslega og/eða fjár-
hagslega.
Eins og sýnt hefur verið fram á
með könnunum og rannsóknum
hefur það mikið forvarnargildi að
börn og unglingar eigi sér einhver
áhugamál hvort sem er í íþrótt-
um, tónlistarnámi eða öðrum
tómstundum.
Sýnt hefur ver-
ið fram á það
styrki sjálfs-
traust þeirra,
hafi jákvæð
áhrif á félags-
færni og haldi
þeim þannig frá
vímuefnum.
Seltjarnarnes-
bær hefur haft það sem keppikefli
að allir eigi möguleika á að taka
þátt í íþrótta og tómstundastarfi
sem hluti af forvörnum og því hef-
ur félagsmálaráð m.a. lagt áherslu
á að styðja við þær fjölskyldur
sem ekki hafa haft tök á að fjár-
magna íþróttir og tómstundir
barna og unglinga sinna. Hægt er
að sækja um styrki vegna þátttöku
barna og unglinga í íþrótta- og tóm-
stundastarfi vegna fjárhagslegra
aðstæðna til ráðsins.
Sömuleiðis hefur verið mikið
og gott samstarf milli félagsmála-
ráðs og Selsins vegna leikja - og
ævintýranámskeiða og annarra
námskeiða fyrir þau börn og ung-
linga sem þurfa sérstaka aðstoð til
að geta tekið þátt hvort sem það
er sérstakur aðstoðarmaður sem
þarf til eða eitthvað annað. Með
því móti er öllum gert kleift að
vera með.
Þetta er eingöngu einn af mörg-
um jákvæðum punktum sem tekið
er á í fjölskyldustefnu Seltjarnar-
ness.
Sigrún Edda Jónsdóttir,
formaður Félagsmálaráðs
Seltjarnarness
Íþróttir og tómstundir
fyrir alla - Fjölskyldu-
stefna Seltjarnarness
Sigrún Edda
Jónsdóttir
Prófkjör Sjálfstæðismanna á Sel-
tjarnarnesi 4. febrúar nk. Prófkjör
okkar eru þekkt fyrir góða þátttöku
þar sem stór hluti Seltirninga hef-
ur áhrif á hverjir veljast til forystu
á Seltjarnarnesi næstu 4 árin. Að
loknu prófkjöri eru Sjálfstæðismenn
þekktir fyrir að taka höndum saman
og fylgja góðri þátttöku eftir til sig-
urs í bæjarstjórnarkosningum með
samstilltu átaki, skýrri stefnumörk-
un og dyggum stuðningi bæjarbúa.
Svona hefur þetta verið lengur en
elstu menn muna.
Bjarni Torfi Álfþórsson býður sig
nú fram til forystu. Bjarni Torfi er
innfæddur Seltirningur, vel þekktur
af margvíslegum störfum sem hann
hefur gegnt hér í bæ. Áhugasamur
og vel liðinn kennari, áhrifaríkur
leiðbeinandi í forvörnum, farar-
stjóri ungra íþróttamanna á erlendri
grund og farsæll formaður Gróttu.
Er þá fátt eitt talið. Kynni mín af
Bjarna Torfa fullvissa mig að hon-
um er best treystandi til að tryggja
Seltirningum áfram búsetugæði
umfram önnur bæjarfélög.
Það sem helst einkennir Bjarna
Torfa er ;
• Félagsvera með góða nærveru
sem ósjálfrátt laðar að sér unga
jafnt sem aldna.
• Grasrótarmaður með meðfædd-
an skilning á mikilvægi virkrar þátt-
töku íbúanna í eigin umhverfi.
• Mannþekkjari og góður hlust-
andi þegar taka þarf vandasamar
ákvarðanir en fylgir málum vel og
einarðlega eftir þegar niðurstaða er
fengin.
• Tilfinningamaður sem lætur sér
einstaklinginn varða og gefur sig á
tal við hann.
• Hvetjandi og nær að virkja fólk
til átaka að settu marki.
• Upphefst ekki af verkum sínum
heldur leyfir samstarfsfólki sínu að
njóta sannmælis.
Bjarni Torfi Álfþórsson er leiðtog-
inn sem Seltirningar þarfnast. Leið-
togahæfileikar hans tryggja best
áframhaldandi stjórn Sjálfstæðis-
manna á Nesinu með uppbyggingu
og sókn til framtíðar.
Bjarni Torfi -
einn af okkur
- eftir Ásgeir Guðmund Bjarnason