Nesfréttir - 01.03.2008, Blaðsíða 6
6 NES FRÉTTIR
Sjúkraþjálfun Reykjavíkur hef-
ur nýverið aukið við húsnæði
sitt og flust upp á þriðju hæðina
í Héðinshúsinu við Seljaveg vest-
ast í Reykjavík. Gauti Grétarsson,
sjúkraþjálfari segir sífellt fleiri
leita til sjúkraþjálfara með ýmis
mein og endurhæfingu. Bæði séu
gerðar mun fleiri lagfæringar á
fólki en áður og nútíma vinnuum-
hverfi kalli einnig á meiri þjálfun
en á meðan dagleg störf kröfðust
meiri hreyfingar. Nesfréttir spjöll-
uðu við Gauta á dögunum.
„Ef við lítum yfir þá heilbrigð-
isþjónustu sem er í Vesturbæ
Reykjavíkur og á Seltjarnarnesi þá
er um að ræða Heilsugæslustöðin
á Seltjarnarnesi, Læknastöðin við
Melhaga, Heilsugæsluna við Vestur-
götu, Landakot, Elliheimilið Grund
og svo tvær sjúkraþjálfunarstofur,
Sjúkraþjálfun Vesturbæjar og okk-
ur í Sjúkraþjálfun Reykjavíkur hér
í Héðinshúsinu,” segir Gauti. „Við
erum búin að starfa í 20 ár í Vest-
urbænum á komandi vori og á síð-
asta ári ákváðum við að færa út
kvíarnar eins og sagt er. Við vorum
með um 200 fermetra húsnæði fyr-
ir stofuna en erum nú komin með
um eða rúmlega 600 fermetra í hús-
næði sem bóka- og tímaritaútgáfan
Fróði var í um árabil.” Gauti segir
vandann við stækkun og rekstur
stöðvarinnar einkum liggja í skorti
á menntuðu og hæfu starfsfólki.
Það hafa verið biðlistar eftir því að
komast til meðferðar hjá okkur sem
ekki stafa af húsnæðisskorti heldur
af því við höfum ekki haft nægilega
margt starfsfólk. „Þetta stendur þó
til bóta því fleiri ljúki námi í sjúkra-
þjálfun. Með því að fá fleiri til starfa
getum við bætt þjónustuna að sama
skapi. Þörfin er mikil og fer stöðugt
vaxandi.”
Getum nú boðið margvís-
lega þjónustu
„Ástæðan fyrir því að við fórum
út í þessa stækkun er sú að okkur
fannst vanta meiri þjónustu á þessu
sviði. Í stað þess að sinna eingöngu
því sem kalla má hráa endurhæf-
ingu getum við nú boðið margvís-
lega aðra þjónustu sem hentar fólki
á öllum aldri. Við getum t.d. boðið
upp á hóptíma fyrir fólk sem þjá-
ist af bakverkjum og slitgigt, hóp-
tíma fyrir elda fólk og krakka sem
eru að vaxa hratt.” Gauti segir að
mjög margt af eldra fólk sé í góðu
formi og fullkomlega fært um að
búa heima hjá sér og annast um sig
sjálft. Með því að bjóða því upp á
þjálfun sé oft hægt að lengja þann
tíma umtalsvert sem það getur ver-
ið heima. „Annað sem við erum
að fást við er ýmis konar þjónusta
við atvinnulífið. Þessi þjónusta fer
vaxandi ár frá ári vegna þeirrar ein-
hæfu vinnu sem margir að fást við
og þá á ég fyrst og fremst við fólk
sem vinnur nær eingöngu við tölv-
ur. Við veitum ráðgjöf út í fyrirtæk-
in bæði um hvernig heppilegast er
að sitja og hvernig fólkið getur bætt
vinnuumhverfi sitt og lagað sig að
nútíma lifnaðarháttum.”
Krakkar orðin hokin
Gauti segir að í dag fari mun fleira
fólk í allskonar viðgerðir en áður,
t.d. viðgerðir á axlarliðum, mjaðmar-
liðum og hnjáliðum og þarfnist því
uppbyggilegrar þjálfunar og með-
ferðar á eftir. Hann segir einnig að
endurhæfing hafi breyst umtalsvert
frá fyrri árum og vægi hennar sé
orðið mikið meira í heilbrigðisþjón-
ustunni en áður. „Bæði er almennt
lagt meira uppúr endurhæfingu og
mörg störf eru einnig orðin mjög ein-
hæf þegar litið er til hreyfingar. Fólk
verður því að beita líkamanum með
öðrum hætti en það gerir í vinnunni
eigi það ekki á hættu að skaðast. Sá
sem situr við tölvu í átta tíma á dag
eða lengur ver um 120 tímum á ári
eða meira í sömu stellingu. Það hef-
ur ákaflega slæm áhrif á margt sem
kemur heilsunni við. Þetta á ekkert
frekar við um eldra fólk heldur en
það yngra og í dag má jafnvel sjá
krakka sem eru orðin hokin af tölvu-
setum og hreyfingarleysi.”
Nútíma bakskóli
Gauti segir að fyrir um þremur
áratugum hafi Jón Þorsteinnson
starfrækt mjög áhugaverðan bak-
skóla miðað við það sem gert hafi
verið á þeim tíma. Ýmislegt hafi
hins vegar breyst frá þeim tíma
og fólk sé alltaf að læra. „Nú erum
við komin með það sem við getum
kallað nútíma bakskóla. Þar erum
við með ýmsar færnisæfingar fyrir
krakka sem eru að vaxa. Á vissu
aldursbili geta þau vaxið um allt að
10 til 15 sentimetra á ári og þá nær
vöðvabyggingin ekki að fylgja bein-
vextinum eftir eða að laga sig eftir
þessum öru breytingum. Í þessum
tilvikum getum við hjálpað til með
réttum æfingum og hreyfingu.”
Mun fleiri nýta sér þjónustu sjúkraþjálfara
Gauti Grétarsson í tækjasalnum. Við höfum lagt mikla áherslu á að vera
alltaf með bestu fáanlegu tækin.
Auglýsingasími:
511 1188
borgarblod.is