Nesfréttir - 01.03.2008, Side 13

Nesfréttir - 01.03.2008, Side 13
Íbúasamtök um lágreista byggð í Bygggörðum austan Gróttu á Sel- tjarnarnesi hafa sent aðilum, sem standa að byggingu nýs Lækninga- minjasafns á safnasvæðinu við Nes- stofu, bréf til þess að vekja athygli á því að ekki sé gert ráð fyrir aðkomu að safninu í deiliskipu- lagstillögum sem fram hafa kom- ið, heldur sé landrými sem átti að fara undir veg að safnasvæðinu gert að byggingarlandi. Í bréfinu segir m.a „Athygli er vak- in á því að svo virðist sem útfærsla á aðkomu að safnasvæðinu í Nesi hafi orðið útundan í þeirri vinnu að deiliskipulagi fyrir vestursvæði Seltjarnarness sem nú stendur yfir. Annars vegar er átt við deiliskipu- lag fyrir nýja íbúðarbyggð við Bygg- garða norður af Nesstofu og hins vegar við breytingu á deiliskipulagi sjálfs safnasvæðisins.” „Á 443. fundi bæjarstjórnar Sel- tjarnarness 23. október 1996 var samþykkt deiliskipulagstillaga sem gerir ráð fyrir aðkomugötu að safna- svæðinu er liggi frá Norðurströnd samhliða Sefgörðum og í aðalskipu- lagi bæjarins kemur fram að hin fyrirhugaða nýja vegtenging verði útfærð í deiliskipulagi. Nú ber hins vegar svo við að í öllum deiliskipu- lagstillögum fyrir hina nýju íbúðar- byggð við Bygggarða, sem lagðar hafa verið fram eða kynntar, er gert ráð fyrir nýbyggingum alveg upp að Sefgörðum og hvergi er gert ráð fyr- ir aðkomu að safnasvæðinu í Nesi.” Samtökin telja að skipulags- og mannvirkjanefnd Seltjarnarness eigi að hafa forgöngu um útfærslu á nýrri vegtengingu frá Norðurströnd að safnasvæðinu við Nesstofu. Bréfið var sent bæjarstjóra Sel- tjarnarness, menntamálaráðherra, fjármálastjóra Þjóðminjasafns Íslands, formanni Læknafélags Reykjavíkur og formanni Læknafé- lags Íslands. NES FRÉTTIR 13 2x25 www.stilling.is // stilling@stilling.is Skeifan 11, 108 Reykjavik | Bíldshöfði 12, 110 Reykjavík | Smiðjuvegur 68, 200 Kópavogur Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður | Draupnisgata 1, 600 Akureyri Eyrarvegur 29, 800 Selfoss. | Sími: 520-8000 VETRARDEKK NEGLANLEG ÚTSALA HEILSÁRSDEKK Dekk Stærð Áður Tilboð NordMaster ST 13" 175/70R 13 5.990,- 3.990,- NordMaster ST-310 14" 185/65R 14 6.900,- 4.900,- NordMaster ST 15" 195/65R 15 7.990,- 5.990,- NordMaster ST 15" 205/65R15 8.600,- 7.600.- NordMaster ST 15" 205/70R 15 8.900,- 7.900,- NordMaster ST-310 16" 205/55R 16 9.990,- 8.900,- Ath! takmarkað magn Frá Íbúasamtökum um lágreista byggð í Bygggörðum: Aðkoma að safnasvæðinu hefur orðið útundan Á aðalfundi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi, sem haldinn var nýlega, var eftirfarandi ályktun samþykkt: Aðalfundur Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi lýsir ánægju sinni með þá stefnubreytingu sem orð- ið hefur hjá sjálfstæðismönnum í bæjarstjórn Seltjarnarness í málefn- um hjúkrunarheimilis fyrir aldraða bæjarbúa en þeir hafa nú tekið upp það gamla baráttumál Neslistans að reist verði 30 rýma hjúkrunar- heimili í bænum. Þessi stefnubreyt- ing meirihlutans í bæjarstjórn Sel- tjarnarness er mikið fagnaðarefni þar sem aldraðir sjá nú fram á að geta dvalið á heimilislegu hjúkr- unarheimili í sinni heimabyggð ef heilsan brestur að einhverju leyti. Á fundinum sem var vel sóttur voru auk venjulegra aðalfundar- starfa umræður um stjórnmál. Sérstakur gestur fundarins var Gunnar Svavarsson alþingismaður og formaður fjárlaganefndar Alþing- is. Gunnar ræddi um stjórnmál og stjórnmálastarf í sveitarfélögum og var góður rómur gerður að máli hans. Á fundinum lét Stefán Bergmann af störfum formanns félagsins og í stað hans var kjörin Sonja B. Jóns- dóttir. Aðrir í stjórn eru: Gísli Svend- sen, Reynir Jóhannesson, Stefán Bergmann og Sunneva Hafsteins- dóttir. Til vara: Jakob Þór Einarsson og Sigrún Benediktsdóttir. Nánari upplýsingar: Sonja B. Jóns- dóttir símar 562-1665 og 696-8200 Aðalfundur Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi

x

Nesfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.