Nesfréttir - 01.03.2008, Side 14
14 NES FRÉTTIR
G R Ó T T U S Í Ð A N www.grottasport. is
Úrslitakeppnin á Íslandsmótinu
innanhúss í fimmta flokki fór fram
á Seltjarnarnesinu í dag. Grótta
átti lið í úrslitunum og strákarnir
gerðu sér lítið fyrir og komust í
úrslitaleikinn eftir góðan sigur á
Keflavík í undanúrslitunum. En
Breiðablik reyndist of stór biti fyr-
ir Gróttustrákana í dag og urðu
Íslandsmeistarar eftir 2 - 0 sigur á
okkar mönnum.
Grótta hóf leikinn í dag gegn
sterku liði Leifturs frá Ólafsfirði.
Spilað er skv. nýjum „futsal” regl-
um og því verða leikirnir ekki mikl-
ir markaleikir en nóg er af færum.
Bessi Jóhannsson skoraði eina
mark Gróttu í síðari hálfleiknum eft-
ir frábæra sendingu frá Jóni Ívani
markmanni. Því næst var spilað við
sameiginlegt lið Vestfjarða en Bessi
Jóhannsson gerði sér lítið fyrir og
skoraði bæði mörk Gróttu eftir að
Vestfirðingarnir höfðu jafnað leikinn.
Með þessum sigri voru strákarnir
búnir að tryggja sig í undanúrslitin
og því skipti leikurinn við KR ekki
öllu máli en þó meira máli fyrir KR-
ingana. KR-ingarnir skoruðu eitt
mark og urðu því í öðru sæti í riðl-
inum og komust í undanúrslitin. Í
fyrri undanúrslitaleiknum lék Grótta
við Keflavík og enn var það Bessi
sem að skoraði, en hann sett´ann í
vinkilinn beint úr aukaspyrnu í fyrri
hálfleiknum. Það nægði og strákarn-
ir voru því komnir í úrslitaleikinn
gegn Breiðabliki sem að sigraði KR
nokkuð örugglega. Í úrslitaleiknum
var það ljóst að Grótta ætlaði ekki
að gefa neitt eftir en Breiðablik hefur
verið einkar sigursælt félag í yngri
flokkum á síðastliðnum árum og því
sigurstranglegri. Hart var barist og
varist í fyrri hálfleiknum og fengur
Blikarnir lítinn tíma á boltanum. Í
þeim síðari fór leikurinn að opnast
og fengu Gróttustrákarnir gott færi
til að komast yfir en í næstu sókn
skoruðu Blikarnir eftir glæsilegt
samspil sem endaði með marki. Eft-
ir þetta var allt reynt til að jafna en
Blikarnir skoruðu öðru sinni og þar
með var vindurinn úr Gróttuliðinu. 2
- 0 og silfrið því staðreynd.
Það voru þreyttir en stoltir Gróttu-
strákar sem fóru heim eftir langan
og erfiðan dag. Þeir lögðu sig alla
fram og lögðu sig fram hvor fyrir
annan. Þeir sem að spiluðu í dag
voru eftirtaldir: Jón Ívan, Bjarni R.,
Bjarna B., Pétur Steinn, Victor, Bessi
J., Theódór, Arnar Þór, Davíð Fannar,
Sigurður E., Arnór og Ólafur Baldvin.
Þjálfarar strákanna eru þeir Ásmund-
ur Haraldsson, Orri Axelsson og
Magnús Helgason.
En það er ekki hægt að loka þessu
án þess að minnast á foreldrarana í
5. flokknum sem að lögðu töluvert
á sig í dag til þess að láta þetta allt
ganga upp. Allt frá því að baka kök-
ur, standa vaktina í sjoppunni og
afgreiða gos og samlokur í það að
sjá um mótsstjórn, skrá úrslit og sjá
um aðkomuliðin. Frábært framlag og
öll umgjörð mótins var félaginu og
foreldrum til mikils sóma.
Efri röð frá vinstri: Ásmundur Haraldsson þjálfari, Bjarni Rögnvalds-
son, Bjarni Bjarnason, Bessi Jóhannsson, Arnar Helgason, Pétur Steinn
Þorsteinsson, Magnús Helgason aðstoðarþjálfari, Orri Axelsson þjálf-
ari. Fremri röð frá vinstri: Sigurður Egilsson, Victor Teitsson, Theódór
Andrésson, Ólafur Baldvin Thors, Davíð Fannar Ragnarsson, Jón Ívan
Rivine, Arnór Guðjónsson.
Mikið hefur verið í gangi síð-
astliðnar vikur hjá Fimleikadeild
Gróttu. Keppnistímabilið stendur
nú sem hæst og hafa Gróttu krakk-
arnir verið að vinna fjöldann allan
af verðlaunum.
Bikarmót í
áhaldafimleikum
Bikarmót í áhaldafimleikum fór
fram helgina 16 til 17. febrúar. Þar
náðu nokkrir Gróttu krakkar að
vinna sér inn keppnisrétt á Íslands-
mótinu í þrepum. Þeir krakkar sem
unnu sér inn keppnisréttinn hafa
verið að standa sig glæsilega í vetur
og eru það einungis 10 hæstu kepp-
endur í hverju þrepi sem komast
inn á Íslandsmót og í erfiðustu þrep-
unum komast einungis sex keppend-
ur að. Keppendur byrja að keppa í
sjötta þrepi og vinna sig svo upp í
fyrsta þrep með árunum. Á eftir
þrepunum fara krakkarnir svo upp
í frjálsa gráðu. Þeir Gróttu krakkar
sem komust inn á Íslandsmót í þrep-
um 2008 voru eftirfarandi: Í stúlkna-
flokki: Aníta María Einarsdóttir,
Edda Hulda Ólafardóttir, Eva Katrín
Friðgeirsdóttir, Helga Laufey Haf-
steinsdóttir, Hrafnhildur Arna Niel-
sen og Hrafnhildur Sigurjónsdóttir. Í
drengjaflokki drengjaflokkur: Bjarki
Snær Smárason, Guðmundur Óli
Ólafarson, Ingi Guðmundsson og
Stefán Atli Sigtryggsson.
Aníta María Íslandsmeistari
í öðru þrepi
Íslandsmótið fór fram laugardag-
inn 1. mars og eignaðist Grótta
Íslandsmeistara í öðru þrepi kvenna.
Aníta María Einarsdóttir varð þriðja
árið í röð Íslandsmeistari í einstak-
lingskeppni stúlkna. Aníta varð
fyrst Íslandsmeistari í fjórða þrepi
stúlkna árið 2006 og árið 2007 varð
hún Íslandsmeisari í þriðja þrepi.
Í ár vann hún annað þrepið. Þessi
árangur hjá Anítu er stórglæsilegur
og á hún mikið hrós skilið. Það má
með sanni segja að Aníta María á
framtíðina fyrir sér í fimleikaheimin-
um. Aðrir keppendur Gróttu stóðu
sig frábærlega en helst ber að nefna
þau Eddu og Bjarka en Edda Hulda
lenti í öðru Sæti í keppni þriðja
þrepi stúlkna og Bjarki Snær í fjórða
sæti í fimmta þrepi drengja.
Gr-Ármann bikarmeistarar
Bikarmót í Hópfimleikum var hald-
ið þann 23. febrúar síðastliðinn og
Bikarmeistarar í mix-liði 2008 voru
keppendur frá Gróttu og Ármanni.
Liðið samanstendur af stúlkum frá
Gróttu og strákum frá Ármanni. Mix-
liðið Gr-Ámann eins og þau kjósa
að kalla sig varð einnig Íslands og
Bikarmeistarar árið 2007 og einnig
höfnuðu þau í öðru sæti á Norður-
landamótinu 2007 í Stokkhólmi. Það
er því mikil pressa fyrir krakkana að
gefa ekki titlana frá sér en þau eru
án efa best í sinni grein á Íslandi.
Aníta María Íslandsmeistari
þriðja árið í röð
Knattspyrna:
5. flokkur karla ásamt þjálfurum.
Silfrið hjá
fimmta flokki
B1-liðið vann Svala-mótið
Helgina 22. til 24. febrúar fór
fram Svalamót Gróttu í fimmta
flokki karla. Strákarnir stóðu sig
mjög vel en Grótta sendi fimm lið
til keppni. Í stuttu máli varð A-lið-
ið í öðru sæti í fyrstu deild eftir
mikla dramatík þar sem eingöngu
munaði einu marki að þeir ynnu
mótið. B1-liðið stóðu sig frábær-
lega og varð í fyrsta sæti í fyrstu
deild. B2-liðið varð í þriðja sæti í
fyrstu deild og C1 varð í öðru sæti
í annarri deild. C2 varð í fjórða
sæti í fyrstu deild og C3, sem var
skipað leikmönnum í sjötta flokki,
varð í öðru sæti í fjórðu deild.