Nesfréttir - 01.03.2008, Síða 11

Nesfréttir - 01.03.2008, Síða 11
„Ég hef alltaf verið mikið á skíð- um,” sagði Örn Smári Arnaldsson, læknir en hann var á gönguskíð- um ásamt Rósu Hjaltadóttur konu sinni á golfvellinum á Seltjarnar- nesi á dögunum. „Það er hins vegar orðið nokkuð langt síðan hægt hefur verið að bregða sér á gönguskíði hér á golfvellinum vegna þess hversu lítið hefur snjó- að undanfarna vetur. Við búum við Sæbrautina og hér áður fyrr á árum gátum við stundum sett skíð- in á okkur heima á lóð og gengið alla leið út í Suðurnes. Ég býst við að það væri hægt núna þótt við höfum farið þennan spöl á bílnum. „Ég eignaðist fyrstu skíðin þegar ég var sjö eða átta ára gamall og fyrsta skíðabrekkan var Brekkugat- an fyrir ofan íþróttavöllinn á Akur- eyri en foreldrar mínir bjuggu þá við Fjólugötuna á Oddeyrinni. Skíð- in brotnuðu að mig minnir eftir að ég var búinn að eiga þau í tvö ár og það var nokkuð sár missir. Ég eign- aðist þó fljótlega önnur skíði og hélt áfram. Á menntaskólaárunum í MA var líka oft farið á skíði. Við fórum í Fálkafell sem var bústaður í eigu skólans og á fleiri skíðasvæði og stundum í Hlíðarfjall þótt aðstaðan þar væri ekki orðin jafn frábær og hún er í dag. Skíðaferðir voru fastur hluti af tilverunni á þessum tíma og jafnan var nokkur snjór á veturna fyrir norðan sem gerðu okkur auð- velt að stunda þessa útiveru.” Örn Smári segir að nokkuð hafi dregið úr skíðamennskunni eftir að hann flutti suður og settist í læknadeild- ina við Háskóla Íslands. „Ég reyndi þó alltaf að fara öðru hvoru á skíði þegar tími og færi gafst. En það var ekki fyrr en að við fjölskyldan flutt- um til Umeå í Svíþjóð að ég tók til við þetta að nýju af fullum krafti. Þótt konan sé Eyfirðingur þá hafði hún ekki alist upp við að vera á skíð- um eins og ég en þarna fórum við af stað öll fjölskyldan. Það var frábært að stunda skíðamennsku í Umeå. Þarna voru upplýstar göngubraut- ir og mjög oft hægviðri. Frostið gat þó orðið nokkuð enda er Umeå inn í landi. Ekkert var óvanalegt við að frostið færi upp í 20° til 25° og þá var talsverð hætta á að verða fyrir kali gætti maður þess ekki að klæða sig vel og vera með húfu á hausn- um. Maður verður ekki eins var við kuldann þegar loftið er þurrt og mik- ið hægviðri.” Sjö skíðapör í farangrinum „Þegar við fluttum heim voru sjö pör af skíðum í farangrinum. Við hjónin vorum þá bæði með göngu- skíði og svigskíði og þrír elstu krakk- arnir voru einnig komin með skíði. Því lá bent við að halda áfram þegar heim var komið og við reyndum að nýta þann tíma vel þegar um skíða- færi var að ræða. Við fórum m.a. upp í Jósefsdal og í Hveradali og síð- an í Bláfjöll og ég man að Arnaldur elsti sonur okkar fótbrotnaði einu sinni í skíðaferð. Það aftraði honum þó ekkert frá því að halda áfram. Þótt hann hafi búið í Barcelona um árabil þá kemur hann oft heim og stundum eru skíðin tekin fram.” Örn Smári og Rósa hafa allt tíð hald- ið tryggð við Norðurland þótt þau hafi búið á Seltjarnarnesi alla götu frá því þau fluttu heim frá Svíþjóð. „Við keyptum gamla húsið á Rúts- stöðum í Eyjafirði þaðan sem kon- an mín er ættuð og eigum það nú í félagi við Arnald son okkar. Þetta gefur okkur gott tækifæri til þess að halda í tengslin við æskustöðvarnar og vissulega förum við stundum á skíði nyrðra. Dóttir okkar er nú flutt norður og má því gera ráð fyrir að norðurferðunum fjölgi.” Örn Smári og Rósa hafa haft fyrir venju að fara á skíði í Ölpunum einu sinni ár ári. „Við byrjuðum á þessu fyrir um 20 árum og hefur Alpaferðin verið okk- ar aðalsumarleyfisferð þótt gjarnan væri farið í febrúar og stundum í mars. Við erum einmitt að fara eft- ir nokkra daga,” sagði hann þegar myndin var tekin. Við höfum líka meiri tíma eftir að ég hætti að vinna en maður er nú kominn á góðan og virðulegan aldur. Mér líkar þetta ágætlega. Við erum bæði við góða heilsu og höfum sérstaklega notið þess að auka við útiveruna. Ég er líka að starfa fyrir Rotary hreyfing- una en það fylgir umdæmisstjóra- starfi þar að vera viðloðandi stjórn- arstörf um tíma á eftir.” NES FRÉTTIR 11 ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Þorsteinn Elísson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Ég hef alltaf verið mikið á skíðum Örn Smári Arnaldsson og Rósa Hjaltadóttir á gönguskíðum á golfvellin- um á Seltjarnarnesi á dögunum. Allar almennar reiðhjóla- viðgerðir - varahlutir Reiðhjólastandar á vegg og gólf Opið frá kl. 8-18, laug 10-14. Örn Smári og Rósa á göngu.

x

Nesfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.