Vestfirðir - 26.11.2015, Side 4

Vestfirðir - 26.11.2015, Side 4
4 26. Nóvember 2015 VESTFIRÐIR 19. TBL. 4. ÁRGANGUR 2015 ÚTGEFANDI: Pressan ehf. Kringlunni 4-6, 103 Reykjavík. ÁBYRGÐARMAÐUR: Björn Ingi Hrafnsson, netfang: bjorningi@pressan.is, AUGLÝSINGASTJÓRI: Ámundi Ámundason sími 824- 2466, netfang, amundi@fotspor.is. AUGLÝSINGAR: Sími: 578-1190 & netfang: auglysingar@ fotspor.is. RITSTJÓRI: Kristinn H. Gunnarsson, sími: 892-7630 og netfang: kristinn@kristinn.is. UMBROT: Prentsnið. PRENTUN: Landsprent, 3.400 eintök. DREIFING: Íslandspóstur. FRÍBLAÐINU VESTFIRÐIR ER DREIFT Í 3.400 EINTÖKUM Á ÖLL HEIMILI OG FYRIRTÆKI Á VESTFJÖRÐUM Ísfirðingurinn Kristín Þorsteinsdóttir kom heim frá EM á Ítalíu í sundi einstaklinga með Downs einkenni sem fimmfaldur Evrópumeistari. Hún setti tvö heimsmet og átta sinnum Evrópumet. Eftir fyrra heimsmetið knúsaði hún mömmu sína og sagði við hana í geðshræringu: takk fyrir að eignast mig. Vansköpun eða alvarlegur sjúkdómur Óafvitandi hitti Kristín Þorsteinsdóttir naglann beint á höfuðið. Það er ekki sjálfsagt mál að fóstur með Downs heilkenni fái að þroskast og fæðast. Landlæknisembættið og Landsspítalinn ýta því mjög að verðandi foreldrum að láta skima fóstur fyrir litningagöllum. Í hverri frumu mannslíkamans eru 22 pör af litningum auk kynlitningapars. Stundum verða frávik í sköpunar- verkinu og þegar litningapar nr 21 hefur þrjá litninga kallast það þrístæða 21 og veldur Downs heilkenninu. Opinberu stofnunum er ekki vel við Downs. Landlæknisembættið hvetur til þess í dreifibréfi að skimað verði fyrir því og Landspítalinn annast framkvæmdina með þeim árangri að árunum 2007- 2012 greindust 38 tilvik og og í öllum tilvikum lauk meðgöngunni með fóst- ureyðingu. Á Íslandi fæðast aðeins 2-4 börn árlega með Downs heilkennið samkvæmt upplýsingum blaðsins Vestfirðir. Afstaða Landlæknisembættisins og Landspítalans byggist á því að fóstur með Downs heilkenni eru skilgreind sem vansköpuð eða haldin alvarlegum sjúkdómi þar sem fóstureyðingarnar eru heimilaðar með vísun til lagagreinar 9, tölulið 2b í lögun nr 25/1975. Það fer ekki á milli mála hvernig læknar skilagreina Downs og afstaða þeirra er ákaflega neikvæð. Heilbrigðir öðru vísi einstaklingar Afstaða landssamtakanna Þroskahjálp og áhugafólks um Downs heilkennið er á allt annan veg. Þau líta á einstaklinga með Downs sem heilbrigða einstaklinga sem eru vissulega öðru vísi en fjöldinn. Bent er á að heilsa þeirra sé yfirleitt góð og það sem upp kemur sé að jafnaði meðhöndlanlegt með nokkuð auðveldum hætti. Lífslíkur einstaklinga með Downs eru nú 60 ár en voru aðeins 9 ár árið 1930. Þroskahjálp segir á heimasíðu sinni að það sé ekki verkefni heilbrigð- isyfirvalda að leita að lágri greind í móðurkviði. Samtökin telja óeðlilegt að heilbrigðisstarfsmenn einir ákvarði hvernig þessum málum er skipað og segja það samfélagsins og kjörinna fulltrúa að móta stefnuna. Foreldrar stúlku með Downs spyrja í blaðagrein á síðasta ári hvort hér sé opinber hreinsunarstefna sem Ísland hafi innleitt með afburða árangri og spyrja hver hafi tekið ákvörðun um þessa „sérstæðu fósturskimun“. Fyrrverandi formaður félags áhugafólks um Downs heilkennið segir að það sé ekkert skelfilegt að eignast barn með Downs heilkenni og segir að spyrja megi hvort það sé siðferðilega rétt að sigta út og eyða fóstrum. Hæpinn lagagrundvöllur Bent er á að fósturskimunar- og eyðingarstefnar hvíli á hæpnum lagalegum grunni. Í lögum um málefni fatlaðra segir að taka skuli mið af alþjóðlegum samningum sem íslensk stjórnvöld hafi gengist undir. Í Mannréttindasátt- mála Evrópu sem lögfestur var hér árið 1994 er kveðið á um réttinn til lífs og bann við mismunun. Ísland er aðili að sáttmála Sameinuðu þjóðanna um um réttindi einstaklinga með fatlanir þar sem mælt er fyrir um virðingu fyrir fjölbreytileika og viðurkenningu á fötluðu fólki sem hluta af mannlegum margbreytileika og mannkyni. Ísland er líka aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Í opinberum gögnum er hvergi að finna neinn haldbæran rökstuðning fyrir mismunun né heldur finnst hvorki tangur né tetur af vandaðri stefnu sem hvílir á siðferðilegum grunni sem sæmileg sátt er um. Siðfræðistofnun Háskóla Íslands hefur ekki tekið málið til meðferðar og ekki mótað neina afstöðu. Eins og staðan er og hefur verið um áratugaskeið fara læknar með úrslitavald og stefnumörkun í þessum málum. Á einum stað er afstaða þeirra kölluð mannkynsbótastefna. Um það er mikill ágreiningur gerður af hálfu samtaka aðstandenda einstaklinga með Downs heilkennið og hafa þau ítrekað farið fram á opinbera umræðu um þessa „hreinsunarstefnu“. Þær óskir hafa hingað til mætt daufum eyrum heilbrigðisyfirvalda. Mál er til komið að þjóðfélagið taki við sér og manni sig upp í umræðu og stefnumörkun á forsendum lífs- ins og rétts einstaklingins og setji læknastéttinni viðeigandi skorður. Afrek Kristínar Þorsteinsdóttur og ummæli hennar eru góður útgangspunktur. Kristinn H. Gunnarsson Evrópumeistarinn sem fékk að lifa Leiðari VESTFIRSKA VÍSNAHORNIÐ Georg Jón Jónsson, bóndi á Kjörseyri við Hrútafjörð hefur vísnaþáttinn. Svo vill til þegar verið er að búa þáttinn til prentunar eru sagðar fréttir í morgun- útvarpinu af miklum bruna á Selfossi. Svo vel fór að enginn skaði varð á fólki, en Georg Jón var fyrir skömmu með hugann við annan eldsvoða á Suður- landi, á Berþórshvoli forðum tíð og leggur fram þessa söguskýringu: Þegar Bergþórshvoll stóð í báli brunnin var þekja og skáli bóndinn sig lagði en Bergþóra sagði: Ung var ég gefin Njáli. Víkur sögunni nú að öðrum ófrið, Landsdómsmálaferlin, þar sem Geir Haarde mátti verja hendur sínar. Ei- ríkur Jónsson orti um þau og niður- stöðu dómsins: Landsdómur leikþáttinn skapaði hjá landsmönnum virðingin hrapaði. En réttlætið er rangsnúið hér því ráðherrann vann bæð´i og tapaði. Indriði Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn þurti að fara í haust til Ísafjarðar og láta búa bíl sinn til vetr- araksturs. Þar var honum sögð saga af tilsvörum Þorbjörns á Garðsstöðum í Ögursveit. Bjössi var spurður að því hvernig honum litist á að „stórvinur“ hans og nágranni Halldór Halldórs- son í Ögri væri fluttur suður og orðinn oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Eftir nokkra umhugsun svaraði hann : fer ekki allt rusl suður. Að sögunni lokinni var Ind- riði krafinn um vísu um atburðinn. Hún kom um hæl: Úr bílum gagnlegt hirðir helst, En hugsar minna um ruður. Því allt það sem ónýtt telst fer, eins og Halldór, suður. Indriði hefur staðið í stórræðum þetta haustið. Öllu fénu hefur verið komið fyrir í fóstur til vors á nokkrum bæjum í Tungusveitinni í Strandasýslu og sjálfur er Indriði kominn til vetr- ardvalar í Hveragerði hjá konu sinni. Um það yrkir Indriði: Auðga tekur anda minn allt sem hér um slóðir finn. Kætir líka kallinn sinn Hveragerðisdrottningin. Varla var Indriði Aðalsteinsson kominn á Suðurlandsundirlendið þegar hann fór að hugsa til Guðna Ágústssonar og vildi minna formann Orðunefndar á loforð um að nefndin skeri úr um hæfi útrásarvíkinginsins Sigurðar Einarssonar til þess að bera fálkaorðuna eftir fangelsisdóm. En fátt hefur frést af efndum. Gefin loforð, engin efnd. Allt með hefð og vana. Áfram sefur orðunefnd. Ekkert vekur hana. En Guðni Ágústsson mun ekki vera innan seilingar. Samkvæmt nýjustu fréttum er hann kominn til Kanarí til vetrardvalar. Ef sómanum er siglt í strand og sessið aðeins flórinn. Yfurgefur Ísaland Orðunefndarstjórinn. Hér á Traðarstígnum er hins vegar kominn fannhvítur vetur og ekkert til Kanaríveðurfar. Framundan er að- ventan með sína töfra og tilhlökkun. Ekki fleira að sinni. Bestu kveðjur Kristinn H. Gunnarsson Svavar Knútur í Edinborg Síðastliðinn fimmtudag hélt trúba-dúrinn Svavar Knútur tónleika í Edinborgarhúsinu. Tónleikar hans eru hvorttveggja í senn, tónlistar-flutningur og uppistand. Svavar Knútur flutti nýtt og eldra efni, meðal annars af nýjum diski sínum Brot. Ágætlega var mætt eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.

x

Vestfirðir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.