Vestfirðir - 26.11.2015, Blaðsíða 2

Vestfirðir - 26.11.2015, Blaðsíða 2
Fjórhjólalagerinn Stapahrauni 7 • 220 Haf • S. 588 3355 www.4h.is Eigum til reimar í miklu úrvali í flestar gerðir snjósleða og fjórhjóla. Fjórhjólalagerinn Stapahrauni 7 • 220 Hfj • Sími 588 3355 www.4h.is Mikið úrval auka og varahluta í flestar gerðir hjóla. 2 26. Nóvember 2015 Hjúkrunarheimilið Eyri Ísafirði: Kostar 1.257 milljónir króna Heildarkostnaður við byggingu hins nýja hjúkrunarheimilis á Ísafirði verðu 1.257 millj- ónir króna. Þetta kemur fram í svari Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjar- stjóra Ísafjarðarbæjar við fyrirspurnum blaðsins Vestfirðir. Framkvæmdin er fjármögnuð með 1.100 milljóna króna láni frá nokkrum lífeyrissjóðum, sem er verðtryggt og með 3,35% vöxtum. Útreikningar Deloitte gera ráð fyrir að leigugreiðslur ríkisins standi undir greiðslum af láninu og það verði því bæjarsjóði að kostnaðarlausu þegar upp verður staðið. Ríkissjóður tekur húsnæðið á leigu til 40 ára og greiðir 85% af umsam- dri leigufjárhæð. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða annast með reksturinn. Sam- kvæmt þessum upplýsingum má ætla að Ísafjarðarbær greiðir 157 milljónir króna af byggingarkostnaði sem svari þá til 15% hlutar bæjarfélagsins. Ríkið hóf leigugreiðslur þann 1. ágúst sl. og greiðir 2.236 kr/m² fyrir 2.250 m² eða alls 5.031.000 kr. á mánuði. 235 mkr framúr áætlun Á þessu ári hefur verið bókfærður kostnaður fyrir 485 milljónum króna sem er 235 milljónum króna umfram fjárhagsáætlun 2015. Umframkostn- aðurinn skiptist þannig að frágangur lóðar, innanhúss og innréttinga og hreinlætistæki fara 138 milljónum króna fram úr áætlun, viðbótarverk frá upphafi framkvæmda eru 35 millj- ónir króna og hönnun, gjöld og fjár- magnskostnaður eru 62 milljónir hærri en áætlað var. Hjúkrunarheimilið Tjörn áfram Þröstur Óskarsson, fram-kvæmdastjóri Heilbrigðis-stofnunar Vestfjarða segir að hjúkrunarheimilið Tjörn á þingeyri verði rekið áfram og að ekki séu fyrirhugaðar breytingar á starfsemi þess alla vega næsta árið. Uppi hafa verið vangaveltur um framtíð hjúkr- unarheimilisins þegar tekin verða í notkun ný hjúkrunarheimili á Ísafirði og í Bolungavík. Þröstur vísaði á Velferðaráðuneytið spurningum um hvers vegna ekki væri búið að taka nýju heimilin í notkun. Svör hafa ekki borist enn frá Velferða- ráðuneytinu við spurningunum. Bolungavík: Skuldaviðmið lækkar í 133% Skuldir Bolungavíkurkaupstaðar voru í árslok 2014 167% af tekjum og svokallað skuldaviðmið nán- ast það sama eða 165%. Munurinn á þessum tveimur tölum er einkum sá að frá skuldunum má draga tekjur af lang- tímaleigusamningum og útgjöld sem koma til greiðslu eftir 15 ár og síðar. Elías Jónatansson, bæjarstjóri segir að á þessu ári hafi verið gengið frá lang- tímaleigusamningi við ríkið um leigu fyrir afnot af hjúkrunarheimilinu sem byggt hefur verið. Ríkið hóf greiðslur í ágúst síðastliðnum og greiðir 20,1 milljón króna á ári og er fjárhæðin verðtryggð. Við næsta útreikning á skuldaviðmiðum bæjarsjóðs muni leig- utekjur verða dregnar frá skuldunum og segir Elías að verði fjárfesting bæj- arsjóðs í hjúkrunarheimilinu dregin frá verði hlutfallið 133%. Að þessum upplýsingum fengnum er fyrirsjáanlegt að skuldahlutfallið og skuldaviðmiðið líka muni lækka og verði lægra en 150% sem miðað er við sem hættumörk í skuldastöðu sveitarfélaga. Næst verður reiknað út skuldatölurnar þegar ársreikn- ingur 2015 liggur fyrir. Þá skiptir máli hvernig rekstur sveitarfélagsins og fjárfestingar hafa verið á árinu, en ekki er mikið svigrúm til skuld- aukningar þegar hlutfallið er 133% í byrjun árs og 150% eru efri mörkin. Fjárfestingar ársins voru áætlaðar um 60 milljónir króna og í rekstraryfirliti Bolungavíkurkaupstaðar fyrir 2015 var áætlaður 6,5 milljóna króna afgangur og að skuldir muni ekki hækka á árinu. Hjúkrunarheimilið kostaði 340 mkr. Bygging hjúkrunarheimilisins í Bol- ungavík kostaði 340 milljónir króna að meðtöldum áföllnum vöxtum á byggingartíma. Upphaflegur kostn- aður í sept 2012 jafngildir 322 millj- ónir króna á núverandi verðlagi. Þetta kemur fram í svari Elíasar Jónatans- sonar, bæjarstjóra við fyrirspurn blaðsins Vestfirðir. Byggingin hefur verið fjármögnuð með láni sem tekið var hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Það er til 20 ára með vöxtum sem eru nálægt 3,35%. Ríkið tekur bygginguna á leigu til 40 ára og greiðir mánaðarlegt leigugjald. Árlegar leigutekjur eru 20,1 milljónir króna. Elías Jónatansson segir að núvirt greiðsluflæði leigutekna og greiðslna af lánum sé um það bil 103,5 milljónir kr. í plús sem er þá sú fjárhæð sem bæj- arsjóður fær til þess að standa undir fasteignagjöldumog halda húsinu við. Elíasi telst til að miðað við að tekjum og gjöldum sé stillt saman hafi bæjar- sjóður 4,7 milljónir króna til ráðstöf- unar á ári, sem eigi að standa undir viðhaldi og gjöldum. Elías Jónatansson, bæjarstjóri segir að samningurinn við ríkið geri ráð fyrir 15% þátttöku bæjarsjóðs á móti 85% hlut ríkisins, en geri sér vonir um að sveitarsjóður muni á endanum ekki bera neinn kostnað af hjúkrunarheim- ilinu. Jakob Valgeir ehf: Eigið fé enn neikvætt Í árslok 2014 var eigið fé Jakobs Valgeir ehf neikvætt um 158 milljónir króna en engu að síður hafði eiginfjárstaðan batnað um 330 milljónir króna frá árinu áður, en þá var eigið féð neikvætt um 488 millj- ónir króna. Í athugasemdum með árs- reikningnum er vakin athygli á þessu og eins því að veltufjárstaðan ( þ. e. skammtímaskuldir umfram veltufé) sé 217 milljónir króna. Segir þar að félagið sé í skilum með allar skuldir sínar og að mati stjórnenda félagsins séu horfur góðar í rekstri þess og að ekkert bendi til annars en að félagið sé vel rekstrarhæft. Rekstrartekjur félagsins árið 2014 voru 2,6 milljarðar króna og hagn- aður af rekstri varð 600 milljónir króna. Niðurstaða af rekstri eftir fjár- magnskostnað og að fengnum tekjum af dótturfyrirtækjum varð um 400 milljónir króna. Árið 2013 varð sama niðurstaða 1.051 milljónir króna eða 651 milljónum króna betri afkoma. Munar þar mest um að á árinu 2013 var tekjufærður gengismunur upp á 575 milljónir króna. Laun og tengd gjöld námu 724 milljónum króna og meðalfjöldi starfa var 83. Þar af voru aflahlutir og laun vegna útgerðar 349 milljónir króna og laun í landvinnslu námu 220 milljónum króna. Eignir fyrirtækisins eru bókfærðar á 7,6 milljarða króna og þar af eru veiðiheimildir 6,2 milljarðar króna. Bókfærð eign í dóttur- og hlutdeildar- félögum er 407 milljónir króna og varanlegir rekstrarfjármunir eru 422 milljónir króna. Skip, vélar og fram- leiðslutæki eru vátryggð fyrir 500 milljónum króna hærri fjárhæð en nemur bókfærðu verði í ársreikningi. Úthlutaðar og keyptar aflaheim- ildir voru 1. sept 2014 alls 4.072 þorskígildi. Til viðbótar á dótturfé- lagið Halli ÍS 197 ehf, sem er 100% í eigu Jakobs Valgeirs ehf veiðiheim- ildir. Árið 2013 námu þær um það bil 430 þorskígildum. Þær eru vistaðar á Þorláki ÍS 15. Félagið leigði frá sér aflamark fyrir 389 milljónir króna. Þá leigði Jakob Valgeir ehf til sín kvóta fyrir 253 milljónir króna, sem ætla má að sé kvóti Halla ÍS 197 ehf. Greiddir vextir síðasta árs voru 314 milljónir króna og greiddar afborg- anir 334 milljónir króna. Stærstu eignaraðilarnir eru F84 ehf sem á 43,5% og Flosi Valgeir Jakobsson með 35,94%. Sjö aðrir hluthafar eiga minna en 5% hver og félagið á 1,14% í sjálfu sér. Stjórn fé- lagsins skipa Flosi Valgeir Jakobsson, Ástmar Ingvarsson og Jakob Valgeir Flosason, sem jafnframt er fram- kvæmdastjóri. HG Hnífsdal: Allar tekjur ársins 2019 fara í afborganir lána Þegar skoðuð er greining á langtímaskuldum Hraðfrysti-hússins Gunnvör hf í Hnífsdal kemur í ljós að tæplega 60% skuldanna koma til greiðslu á árinu 2019. Það ár á að greiða 30,6 milljónir evra af 54 milljónum evrum sem langtíma- skuldirnar eru í árslok síðasta árs. Til samanburðar voru allar tekjur fyrir- tækisins á síðasta ári 29,9 milljónir evra. Umreiknað í íslenskar krónur þá eru þetta um 4,7 milljarðar króna. Þessar áætluðu greiðslur ársins 2019 eru nærri fjórum sinnum hærri fjár- hæð en nemur skuldlausu eigið fé fyr- irtækisins, sem var 8,4 milljónir evra eða um 1,3 milljarðar íslenskra króna. Í árslok var tekjuskattsskuldbinding félagsins sama fjárhæð og nam eigið fé fyrirtækisins. Leiðrétting Í síðasta tölublaði var greint frá helstu tölum í ársreikningi 2014 Hraðfrysti- hússins Gunnvör hf. Þess var ekki gætt að fyrirtækið er gert upp í evrum en ekki í þúsundum íslenskra króna. Því þarf að leiðrétta lykiltölurnar í fréttinni með tilliti til þess. Hagnaður fyrirtæk- isins af rekstri var 924 milljónir króna , hagnaður fyrir skatta 462 milljónir króna og rekstrartekjur námu um 4,6 milljörðum króna. Eignir fyrirtækisins eru bókfærðar á 11,7 milljarða króna, skuldir námu 10,4 milljörðum króna og eigið fé því 1,3 milljarðar króna. Veiðiheimildir eru bókfærðar á 51,5 milljónir evra sem jafngildir tæplega 8 milljörðum króna. Laun og tengd gjöld ársins 2014 voru 12,1 milljón evra eða um 1,9 milljarðar króna. Þröstur óskarsson. Mynd: Velferðarráðuneytið.

x

Vestfirðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.