Vestfirðir - 26.11.2015, Blaðsíða 14
14 26. Nóvember 2015
Bókakynning í Edinborg
Síðasta laugardag var bóka-kynning í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Andrea Harðardóttir,
sagnfræðingur flutti yfirgripsmikið
erindi um íslenskar skáldkonur og
kvenrithöfunda sem knúðu dyra í
bókmenntaheiminum á 20. öldinni.
Fjórir rithöfundar kynntu verk sín. Það
voru Einar Már Guðmundsson sem las
upp úr nýrri bók sinni Hundadagar;
Lilja Sigurðardóttir las úr Gildrunni,
nýrri glæpasögu, Ragnhildur Thor-
lacius las úr ævisögunni um Brynhildi
Georgíu Björnsdóttur og Sigurjón
Bergþór Dagsson las úr skáldsögunni
Hendingskast.
Minningarmiðstöðin Edinborg og
Eymundsson stóðu fyrir kynningunni
og boðið var upp á kaffi og kökur. Að-
sókn var mjög góð, rétt um 80 manns
komu, sem er svipað og verið hefur
undanfarin ár.