Akureyri - 30.04.2015, Qupperneq 1
16. tölublað 5. árgangur 30. apríl 2015
VI
KU
BL
AÐ
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í ýmsum stærðum
og gerðum. Bjóðum sérlausnir, sniðnar að þörfum viðskiptavina.
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
www.stolpigamar.isHafðu samband!
Laserprentarar Allt frá nettum
heimilisprenturum
til fjölnota
skrifstofuprentara
Fjölnotaprentari litur
C460FW
Prentun – skönnun - ljósritun / Prenthraði:
allt að 19 bls/mín / Fyrsta síða út: 14 sek /
Upplausn: 2400 x 600 dpi / Pappírsbakki: 50
blöð / Þráðlaus nettenging
Verð 69.900 –
Laser prentari litur
C1810W
Prenthraði: allt að 19 bls/mín / Fyrsta síða
út: 6 sek eða minna / Upplausn: 9600 x
600 dpi / Pappírsbakki: 250 blöð/ Þráðlaus
nettenging
Verð 59.900 –
Laser prentari svarthvítur
M2022
Prenthraði: allt að 20 bls/mín / Fyrsta
síða út: 8,5 sek / Upplausn: 1200 x 1200
dpi / Pappírsbakki: 150 blöð / Þráðlaus
nettenging
Verð 17.900 –
SÍÐUmúla 9 · SÍmi 530 2900 · samsungsetrid.is
lágmúla 8 · SÍmi 530 2800 · ormsson.is
FYRIR HEIMILIN Í LANDINU
Reyndu ólöglega að græða
250 milljónir með gjaldtöku
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í
síðustu viku að Landeigendum Reykja-
hlíðar væri óheimilt að rukka inn gjald
við ýmsar náttúruperlur í Mývatns-
sveit. Gerð var tilraun með gjaldtökuna
í fyrrasumar og vakti mikla athygli af
ýmsum ástæðum. Þeir sem standa að
Landeigendum Reykjahlíðar voru ekki
sammála um gjaldtökuna og var því
farið fram á lögbann vegna hennar af
hálfu hluta félagsmanna. Í dómi Hér-
aðsdóms er viðurkennt að félaginu sé
óheimilt að standa að gjaldtöku ferða-
manna við Hveri við Námafjall og við
Leirhnúk. Báðar náttúruperlurnar eru í
landi Reykhlíðunga í Skútustaðahreppi.
Þá er lögbann staðfest sem lagt var á 21.
júlí í fyrrasumar við því að stefndi, fé-
lagið og aðilar á vegum félagsins, stæðu
að gjaldtöku.
Í dómsorði segir að stefndi, Land-
eigendur Reykjahlíðar, skuli greiða
stefnendum allan málskostnað óskipt-
an, 5 milljónir króna. Þeir sem höfðuðu
málið eru Finnur Sigfús Illugason, Sól-
veig Illugadóttir, dánarbú Jóns Illuga-
sonar, Finnur Baldursson, Daði Lange
Friðriksson og Héðinn Sverrisson.
Dómurinn lítur til þess að eignarétt-
arlega hafi félagið ekki mátt fara fram
með þeim hætti sem það gerði í óþökk
hluta landeigenda. Þá kemur fram í
dóminum að áætlaðar tekjur þeirra
sem komu gjaldtökunni á hafi verið 250
milljónir króna á tveimur árum. Alls
var innheimt gjald af ferðamönnum frá
18. júní- 21. júlí í fyrra.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
verður dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
áfrýjað til Hæstaréttar. Ekki liggur ljóst
fyrir hvort þeir ferðamenn sem greiddu
gjaldið, sem nú hefur verið dæmt ólög-
legt, geta fengið skaða sinn bættan.
Meðal röksemda sem komu fram hjá
Ólafi H. Jónssyni, formanni landeigenda
í fyrrasumar, var að gjaldtakan tryggði
öryggi ferðamanna og verndaði náttúr-
una. -BÞ
Ólafur H. Jónsson, formaður landeigenda reykjahlíðar, rukkaði ferðamenn austan Námafjalls í fyrrasumar uns lögbann var sett á gjaldtökuna.
Gjaldtakan hefur nú verið dæmd ólögleg. í nýjum dómi Héraðsdóms reykjavíkur greinir frá áætlun sem gerði ráð fyrir 250 milljóna króna tekjum
landeigenda af gjaldtökunni á tveimur árum. Völundur
Í dag 30. apríl gefur Íslandspóstur út þrjú frímerki og eina
smáörk til að minnast stórafmæla. Íslenski fáninn 100 ára,
kosningaréttur íslenskra kvenna 100 ára og Hið íslenska
biblíufélag 200 ára. Einnig kemur út frímerki í tilefni
Smáþjóðaleikanna 2015 auk Evrópufrímerkja, en þema
þeirra eru gömul íslensk leikföng.
Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum.
Einnig er hægt að panta þau hjá
Frímerkja sölunni. Sími: 580 1050.
Netfang: stamps@stamps.is
Heimasíða: www.stamps.is
facebook.com/icelandicstamps
Safnaðu litlum lis taverkum
Auglýsingasíminn er
578-1190