Akureyri - 30.04.2015, Blaðsíða 2
2 5. árgangur 16. tölublað 30. apríl 2015
Höfuðhandklæðin frá Sif eru saumuð úr gæðabómull.
Létt og þægileg í notkun og henta jafnt síðu sem stuttu
hári og dömum á öllum aldri.
Nánar um Sif höfuð-
handklæði á facebook
Fáanleg í 10 litum
Fjölmörg óhöpp vegna óveðurs
Norðlendingar hafa ekki farið
varhluta af óveðri síðustu daga.
Mjög hefur mætt á íbúum og þá
ekki síst ferðalöngum eftir að
hvellurinn hófst strax í byrjun
sumars! Lögreglumenn á Norður-
landi staðfesta annríki og að ýmiss
konar vandræði hafi orðið.
„Fólk hefur einkum lent í ýms-
um vandræðum vegna hálku,“ segir
lögreglumaður á Akureyri.
Blaðinu var síðastliðinn
mánudag kunnugt um að minnsta
kosti sex bílveltur á Norðurlandi
vegna hálkunnar. Tvær bílveltur
urðu á Árskógssandi, ein uppi á
Öxnadaldsheiði, tvær í Þingeyj-
arsýslu sama dag, einn bíll valt
á Víkurskarði. Eflaust hefur bæst
við.
-Erum við að tala um að ótíma-
bær dekkjaskipti valdi þessu að
nokkru leyti?
„Það er ekki gott að segja en
þessi slys eiga það sameiginlegt að
það má kenna ökumönnum um þau.
Fólk ekur of hratt eftir aðstæðum.
Ef bíll rennur til og fer út af vegna
hálku er honum ekið of hratt. Ég
vil kenna ökumönnum um þegar
svona slys eru annars vegar, ég vil
ekki varpa ábyrgðinni á ökutækin
og búnað þeirra,“ segir akureyrskur
lögreglumaður. -BÞ
Aftur upp risinn rígur um menntamál?
Það vakti athygli norðlenskra
áhrifamanna í atvinnulífinu að
þegar samningur um stofnun deild-
ar frá Háskólanum í Reykjavík í
Vestmannaeyjum var
undirritaður í Eyj-
um um miðjan mánuð
mættu hvorki fleiri né
færri en þrír ráðherrar
þegar skrifað var und-
ir yfirlýsingu. Í kjöl-
farið hefst væntanlega
undirbúningur náms
við sjávarútvegstengda
nýsköpun til BS-prófs
í Vestmannaeyjum að
loknu nefndarstarfi.
Undir yfirlýs-
inguna skrifuðu Illugi
Gunnarsson, mennta-
og menningarmálaráðherra, Ragn-
heiður Elín Árnadóttir, iðnaðar og
viðskiptaráðherra og Sigurður Ingi
Jóhannsson, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra.
Norðlenskir heimildarmenn
blaðsins hafa bent á að á sama tíma
og þetta nám er boðað sem kunni
að einhverju leyti að skarast á við
það nám sem boðið er upp í sjáv-
arútvegsfræðum við Háskólann á
Akureyri sé flutningur Fiskistofu
norður til Akureyrar í uppnámi.
Átök hafa áður orðið milli Akureyr-
inga og sunnanmanna,
til dæmis í þingsal
vegna námsmöguleika
í suðri og norðri. Átök-
in má á köflum rekja til
þess að landshlutarn-
ir tveir hafa bitist um
bjargir. Árið 1996
sagði Árni Johnsen
þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins á Alþingi „...
mjög sorglegt hvernig
hrepparígur hefur ver-
ið vakinn milli Háskóla
Íslands og Háskólans á
Akureyri“. Þá hafði sleg-
ið í brýnu milli Vestmannaeyinga og
Akureyringa í menntamálum. Nú
er unnið að sameiningu skóla úti
á landi og talað fyrir sameiningu
og hagræðingu. Á sama tíma horf-
ir í að nýtt nám kunni að verða til
í Eyjum, á sviði sem brennimerkt
hefur verið Háskólanum á Akur-
eyri til áratuga.
Akureyri vikublað spurði rektor
Háskólans á Akureyri, Eyjólf Guð-
mundsson, hvernig honum litist á
hugmyndir um rannsóknartengt
nám í sjávarútvegsfræðum í Eyjum.
„Ég lít þannig á þetta að því
meiri þekking sem verður til fyrir
sjávarútveginn, því betra. Grein-
in er ein af burðarásum íslensks
samfélags og ég sé ekkert athuga-
vert við að menn sæki fram. Ég geri
fastlega ráð fyrir að menn ræði
saman þegar þessi nefnd hefur skil-
að af sér og að námið verði, ef af því
verður, byggt upp með skynsemi og
hagkvæmni að leiðarljósi.“
Lítur rektor HA þá ekki þannig
á að samkeppni í Eyjum kunni að
verða ógn við sjávarútvegsfræði-
námið við Háskólann á Akureyri?
„Nei, við erum þegar í samstarfi
við aðra skóla, það er fjarkennsla
um allt land hjá okkur, svona
hugnyndir eru frekar til að brýna
alla til dáða en hitt,“ segir rektor.
Hann bætir við að sátt ríki um
rekstrarmódelið í sjávarútvegs-
fræðum við HA, nemendur séu
ánægðir og hafi að jafnaði fengið
góð störf í atvinnulífinu að námi
loknu. -BÞ
Eyjólfur Guðmundsson
Meirihlutinn fallinn á Akureyri
-samkvæmt nýrri könnun – meirihlutaflokkarnir þrír með fjóra menn nú í stað sex þegar kosið var – Píratar taka hástökk
Meirihluti Samfylkingar, Fram-
sóknarflokks og L-lista á Akur-
eyri er fallinn ef marka má glæ-
nýja skoðanakönnun. Háskólabrú
Keilis spurði um fylgi við flokka
og er byggt á ríflega 700 svörum.
Meirihlutaflokkarnir fengu sex
menn í bæjarstjórnarkosningum
árið 2014 en fengju fjóra í dag sam-
kvæmt fylgismælingu könnunar-
innar. Píratar mælast í fyrsta skipti
með menn í bæjarstjórn og koma
inn með látum, fá tvo fulltrúa og
16%. Aðeins Sjálfstæðisflokkur og
Samfylking njóta nú meira fylgis
en Píratar á Akureyri samkvæmt
könnuninni. Spurt var: Ef gengið
yrði til bæjarstjórnarkosninga á Ak-
ureyri hvaða flokk myndir þú kjósa?
Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur nokkuð afgerandi stöðu sem
stærsta stjórnmálaaflið á Akur-
eyri. D-listi sjálfstæðismanna fengi
21,4% eða 3 fulltrúa, sama manna-
fjölda og í kosningum 2013. Fram-
sókn fengi 9,8%, myndi tapa einum
manni. Samfylking fengi 16,8%
og 2 menn eins og í kosningunum.
L-listi fengi 11,6% eða einn mann,
myndi tapa öðrum bæjarfulltrúan-
um. BF fengi 11,8% og einn mann
eins og í kosningunum. VG fengi
12% og einn mann eins og í síðustu
kosningum. Ellefu stólar eru í bæj-
arstjórn á Akureyri.
GUNNAR OG LOGI VIN-
SÆLIR EN UMDEILDIR
Í könnuninni var einnig spurt um
traust á oddvitum framboðanna í
bæjarráði. Annars vegar var spurt:
Til hvers af oddvitum stjórnmála-
flokka sem sitja í bæjarráði berð þú
mest traust? Hins vegar var spurt:
Til hvers af oddvitum stjórnmála-
flokka sem sitja í bæjarráði berð þú
minnst traust?
Tveir fulltrúar í bæjarráði skera
sig úr þegar svörin eru skoðuð.
Báðir mælast með meira traust en
aðrir fulltrúar en einnig mælist
vantraust þeirra mun meira, eink-
um vantraust annars þeirra. Logi
Már Einarsson, oddviti Samfylk-
ingarinnar, mælist með mest traust
allra sem spurt var um eða 22%.
Nokkru fleiri eða 27% svarenda
segjast bera minnst traust til Loga.
Gunnar Gíslason, oddviti sjálf-
stæðismanna, mælist með mesta
traustið hjá 21 prósenti svarenda,
ívið færri treysta honum best en
Loga. 37% segjast aftur á móti bera
minnst traust til Gunnars sem ger-
ir hann að langumdeildasta bæj-
arráðsmanni Akureyrar samkvæmt
þessari könnun.
Könnunin er vefræn og tóku um
900 manns þátt en svörin sem hér
eru greind fyrir Akureyri vikublað
taka mið af ölllum sem kusu á Ak-
ureyri, ríflega 700 manns. Þetta er
þriðja árið sem könnunin er fram-
kvæmd og segja aðstandendur
hennar að aðferðafræðilega sé hún
góð vísbending um veruleikann.
-BÞ
Gunnar Gíslason er langumdeildasti fulltrúi bæjarráðs á akureyri miðað við niðurstöð-
ur spurningakönnunar.
píratar hafa raðað sér í hóp stærstu framboða á akureyri miðað við nýja skoðana-
könnun.
Hafnasamlag Norðurlands vígði s.l. laugardag nýja og glæsilega 65 metra flotbryggju
í Sandgerðisbót á Akureyri. Við bryggjuna eru stæði fyrir 32 báta. Bryggjan er keypt
af Króla ehf og var hún steypt meðal annars hjá Loftorku í Borgarnesi. ÞJ verktakar,
Rafeyri og GV gröfur komu einnig að verkinu. Bryggjan kostar fullbúin um 45 milljónir
króna.