Akureyri - 30.04.2015, Qupperneq 10
10 5. árgangur 16. tölublað 30. apríl 2015
Dögun leggst gegn frumvarpi
Stjórnmálasamtökin Dögun hafna
alfarið lagafrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar um kvótasetningu á mak-
ríl. „Dögun hafnar þeim þjófnaði
og þeirri einkavinavæðingu sem
þar er ráðgerð“ segir í ályktun frá
samtökunum.
Dögun bendir á að veiðireynsla
stórútgerðarinnar byggist að stór-
um hluta á óábyrgum veiðum til
mjölvinnslu, sem miðuðust við að
landa sem mestu magni af makríl
óháð þeim verðmætum sem hægt
var að búa til.
„Íslenska þjóðin og fulltrúar
hennar á Alþingi eiga ekki að ljá
máls á því að verðlauna örfáa út-
gerðaraðila sem ganga augljóslega
gegn almannahagsmunum,“ segir í
ályktuninni frá Dögun. a
„Heilsueflandi heim-
sóknir til aldraðra“
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
mun taka við verkefninu „Heilsu-
eflandi heimsóknir til aldraðra“ 1.
júní nk. í kjölfar þess að stofnun-
in tók við starfsemi Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Akureyri. Heilsu-
eflandi heimsóknir til aldraðra
hófust á Akureyri um aldamótin
síðustu í samvinnu Heilsugæsl-
unnar á Akureyri og Búsetudeildar
Akureyrarbæjar og hefur starf-
semin falist í heimsóknum og við-
eigandi ráðgjöf til íbúa, 75 ára og
eldri, sem búa heima og njóta ekki
þjónustu s.s. heimahjúkrunar eða
dagþjálfunar.
Þær breytingar verða gerðar á
þjónustunni, að haft verður sam-
band við þá sem eru 80 ára og eldri
í stað 75 ára og eldri sem hvorki
hafa heimahjúkrun, heimaþjónustu
eða eru í dagþjálfun og þeim boðin
heimsókn. Þeir sem eru á aldrinum
75-80 ára geta haft samband við
heilsugæsluna og pantað sér við-
tal eða hringt í auglýstan símatíma.
Einnig mun verða lögð áhersla á al-
menna fræðslu til íbúa í samstarfi
við aldraða og hinar ýmsu stofnanir.
„Það er von forsvarsmanna Heil-
brigðisstofnunar Norðurlands að
vel takist til með þessa breytingu
og að henni verði vel tekið á með-
al eldri borgara,“ segir í tilkynn-
ingu sem Þórdís Rósa Sigurðar-
dóttir yfirhjúkrunarfræðingur á
Heilsugæslustöðinni á Akureyri
hefur sent fjölmiðlum. a
AÐSEND GREIN HJÖRLEIFUR HALLGRÍMS
Því byggir Akureyar-
bær ekki leiguíbúðir?
Ég frétti fyrir nokkru að rætt hefði
verið í bæjarstjórn Akureyrar um
vöntun á leiguíbúðum og á þó Bær-
inn á milli 200 og 300 íbúðir til
útleigu, mis stórar víðsvegar um
bæinn og er þó jafnvel
nokkurra ára bið eftir að
fá leiguíbúð.
Það eru um 150 aðil-
ar, sem vantar leiguíbúð
nú þegar og þar af um
100, sem bíða eftir 2ja
herbergja íbúðum. Það er
alkunna að leiga á hinum
almenna markaði hvort,
sem er Búseti eða aðrir.
hefur rokið upp úr öllu
velsæmi og þar af leiðir
að fólk leitar eftir eins ódýru hús-
næði og hægt er og hefur Bærinn
getað haft upp á slíkt að bjóða. Ég
hef lengi haft áhuga á að Bærinn
byggði ódýrar leiguíbúðir án íburð-
ar t.d. að byrjunin yrði ca 30-40
íbúða blokk með íbúðum, sem væru
um 500-60 fm. að stærð og hægt
væri að halda leiguverði í 60-80
þúsundum á mánuði.
Þetta ætti að vera mögulegt þar
sem Bærinn getur fengið lán á 31/2
% vöxtum til 90 ára. Til gamans
langar mig að geta þess að fyrir síð-
ustu bæjarstjórnarkosningar (án
þess að ég væri í framboði) samdi
ég stefnuskrá í 9 liðum svona til
gamansog 1. grein hljóð-
aði svo: “Flokkurinn vill
að Akueyrarbær beiti sér
fyrir byggingu ódýrra 60-
80 fm. leiguíbúða fyrir
t.d. fólk með skert fjáráð”.
Þetta er fyrsta greinin og
koma hinar e.t.v. síðar.
Það varð ekki almenn
ánægja í mínum flokki
með þetta framtak mitt
og var m.a. talað um gettó
en það er auðvitað tóm
vitleysa, þar sem Bærinn á svona
margar leiguíbúðir eins og fyrr
getur og má auðvitað stjórna inn-
komu væntanlegra íbúa. Sjálfur bý
ég í 32ja íbúða blokk þar sem býr
bæði eldra og yngra fólk og hef ég
ekki orðið var við nein vandræði né
slæma umgengni í þau 13 ár, sem ég
hef búið í blokkinni.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
MORGUNFUNDUR HJÁ STEFNU
Stefna, félag vinstri manna, heldur opinn morgunfund á Akureyri þann 1.
maí á Kaffi Amor við Ráðhústorg kl. 10.45. Stefna hvetur launþegahreyf-
inguna til að treysta á eigin mátt til að ná fram kröfum sínum. Ræðumaður
er Hjördís Sigursteinsdóttir formaður Félags háskólakennara á Akureyri. Rósa
María Stefánsdóttir syngur en Jón Laxdal og Ingibjörg Hjartardóttir lesa upp.
Hjörleifur Hallgríms
Hestaferđir
Við bjóðum upp á stuttar hestaferðir alla daga sem henta
knöpum á öllum aldri og með mismunandi reynslu.
Kaffi og kökur fylgja í lok hverrar ferðar.
www.polarhestar.is
Vinsamlegast bókið með fyrirvara: 89 6 1879
Pólar Hestar – Grýtubakki II – 601 Akureyri
Upplagt að líta við á Grenivík í leiðinni:
www.grenivik.is