Akureyri - 30.04.2015, Page 12
12 5. árgangur 16. tölublað 30. apríl 2015
Grenndargralið birtir greinar eftir grunnskólanemendur
Grenndargralið hefur nokkur
undanfarin ár birt greinar á heima-
síðu sinni, grenndargral.is, undir
heitinu Héraðsfréttir. Greinarn-
ar, sem unnar eru af nemendum
í 8. – 10. bekk í Giljaskóla, fjalla
með einum eða öðrum hætti um
málefni heimabyggðar. Unnið er
samkvæmt hugmyndafræði Gilja-
skólaleiðarinnar en greinaskrifin
eru hluti af ritunarhluta í íslensku-
námi nemenda. Auk ritunar eru
framsögn og lestur þættir sem lögð
er sérstök áhersla á. Krakkarnir
setja sig í spor fréttamanna, fara
á stúfana og leita uppi athyglis-
verð viðfangsefni. Greinahöfundar
tjá eigin tilfinningar og skoðanir á
nánasta umhverfi og leggja þannig
sitt af mörkum til uppbyggingar
grenndarsamfélagsins á lýðræðis-
legan hátt. Með birtingu greinanna
á opinberum vettvangi þjálfast
krakkarnir í að láta rödd sína heyr-
ast og ljós sitt skína. Sem dæmi
um efnistök má nefna fróðleik úr
heimabyggð, frásagnir af sögufræg-
um stöðum og kynningar á ýmis
konar félags- og atvinnustarfsemi.
Þá fá krakkarnir einnig tækifæri
til að vekja athygli á hagsmuna-
málum sínum og mögulega veita
þeim æskilegt aðhald sem annars
kynnu að brjóta á réttindum
þeirra. Þannig eru álitamál af ýmsu
tagi tekin fyrir þar sem gagnrýnin
hugsun er höfð að leiðarljósi. Oft
og iðulega hafa greinarnar hreyft
við þeim sem eldri eru og fengið þá
til að bregðast við með skrifum eða
aðgerðum. a
GRENNDARGRALIÐ
Gersemar í sögu og menningu heimabyggðar
Grenndargralið og Giljaskólaleiðin opna leið fyrir grunnskólanemendur til að tjá sig
opinberlega.
Gervigrasvellir framtíð ís-
lenskrar knattspyrnu?
Á síðustu 10 árum hefur gervigrasvöll-
um fjölgað mikið. Víða um land má nú orðið
finna gervigrasvelli og er Akureyri þar engin
undantekning. Til að mynda eru þrír slíkir
vellir í mínu hverfi, einn við Giljaskóla, ann-
ar við Glerárskóla og sá þriðji við
Síðuskóla. Þannig eru gervigrasvell-
irnir gjarnan staðsettir á skólalóðum
eða við íþróttabyggingar og nýtast
því vel börnum og unglingum, bæði
á skólatíma og frítíma.
Tilkoma gervigrasvalla hefur
breytt heilmiklu fyrir fótboltann
á Íslandi til hins betra og margir
segja að miklar framfarir íslenskra
fótboltamanna megi rekja beint til
tilkomu vallanna. Áður en vellirnir
komu til æfðu fótboltamenn mest megnis
innandyra yfir vetrartímann og einungis á
grasi yfir sumarið. Núna er hins vegar hægt
að æfa fótbolta allan ársins hring á gervi-
grasi sem er ótrúlega jákvætt fyrir alla
þá sem iðka íþróttina. Ég er mjög ánægð-
ur með aðstöðu gervigrasvallanna í mínu
hverfi og tel þá vera vel nýtta af krökkun-
um í hverfinu. Sum staðar mættu vellirn-
ir þó vera betur upphitaðir og ljósin loga
lengur því oft er erfitt að spila fótbolta á
þeim vegna of mikils snjós eða of lítillar
birtu. Það væri því gott ef hitinn í völlunum
væri hækkaður yfir kaldasta tíma
vetrarins til að losna við mesta
snjóinn. Gaman væri að sjá aðstöð-
una í kringum vellina batna ennþá
betur á næstunni, t.d. með því að
byggja fleiri velli þar sem stund-
um komast færri að en vilja. Síðan
væri gott að byggja einhverskonar
skjól frá snjónum við vellina eins
og t.d. þak.
Það er augljóst að gervigrasvell-
irnir eru til hins góða og hafa haft
jákvæðar afleiðingar í för með sér á marga
vegu. Vegna þeirra er hægt að spila fótbolta
allan ársins hring á grasi og framfarir fót-
boltamanna verða því meiri. Það verður gam-
an að fylgjast áfram með þróuninni sem á
eftir að eiga sér stað í gervigrasvallarmálun-
um á næstu árum og sjá ennþá fleiri íslenska
knattspyrnumenn vaxa úr grasi. a
Vélsmiðja Steindórs
– fjölskyldufyrirtæki
Vélsmiðja Steindórs var stofnuð árið 1914
af langa langa afa mínum honum Steindóri
Jóhannessyni. Steindór fæddist árið 1883 og
ólst upp í Lýtingsstaðahreppi. Hann kynntist
langa langa ömmu minni sem var úr Öxna-
dal á meðan hann var í námi. Hún hét Sigur-
björg Sigurbjarnardóttir. Langa Langa afi fór
erlendis til að læra og lenti þar í ævintýrum.
Til dæmis lenti hann í skipstrandi. Hann dó
árið 1951 og þá hafði sonur hans Steindór
Steindórsson tekið við rekstri fyrirtækisins
af honum. Steindór Steindórsson dó svo árið
1977 og þá tók pabbi mömmu minnar, Sigur-
geir Steindórsson við fyrir-
tækinu. Í dag eru hluthaf-
ar fyrirtækisins fjórir en
Sigurgeir afi minn á 50%
í því. Hinir hluthafarnir
eru allir í fjölskyldunni
enda er fyrirtækið fjöl-
skyldufyrirtæki og hefur
framkvæmdastjórn þess
„erfst“ í beinan karllegg.
Núna er Valur frændi minn
orðinn aðstoðarfram-
kvæmdastjóri og þannig
hefur afi fengið smá aðstoð við reksturinn.
Síðasta sumar var haldið upp á hund-
rað ára afmæli Vélsmiðjunnar. Fengnir voru
hoppukastalar, gasblöðrur, ýmsir skemmti-
kraftar og svo var boðið upp á pylsur, gos,
kaffi og köku. Um 400 vinir, kunningjar
og viðskiptavinir komu í heimsókn. Tvær
stórar afmæliskökur urðu þó eftir og farið
var með þær upp á Dvalarheimilið Hlíð og
Lögmannshlíð. Það var virkilega gaman að
færa fólkinu kökurnar og sumir mundu eft-
ir sögum til að segja okkur frá því í gamla
daga. Alltaf hefur verið mikið lagt upp úr
því að fyrirtækið sé fjölskylduvænt og þar
eru í raun allir jafn mikilvægir. Einhvern
veginn hefur alltaf verið jafnrétti hjá Vél-
smiðjunni. Til dæmis voru þrjár konur í 100
ára afmælisnefndinni. Hver og ein þeirra
var málsvari sinnar kynslóðar og fulltrúi
afa síns. Guðný frænka mín sem er barna-
barn Steindórs Jóhannessonar, mamma mín
hún Hrabba sem er barnabarn Steindórs
Steindórssonar og svo systir mín Rósa sem
er barnabarn Sigurgeirs Steindórssonar. Afi
Sigurgeir er framkvæmdastjóri Vélsmiðj-
unnar og Guðný hefur verið stjórnarformað-
ur fyrirtækisins í nokkra áratugi. Í stjórn
fyrirtækisins sitja tvær konur og einn karl.
Ég tel ekki að Steindór Jóhannesson hafi
í upphafi getað giskað á að fyrirtækið næði
þessum aldri, kannski vonaði hann það. Af-
mælishátíðin var skemmtilegur áfangi í sögu
Vélsmiðjunnar og vonandi markar hún nýjan
kafla. Þetta var fjölskylduhátíð og endur-
speglaði fyrirtækið því að fjölskyldan er það
mikilvægasta sem við eigum. Fyrirtækið
hefði líklega ekki náð sama árangri ef það
hefði ekki verið fjölskyldufyrirtæki. Margar
breytingar eru í vændum m.a. er kominn
,,Framkvæmdastjóri í þjálfun“ sem er Valur
frændi minn. Við hlökkum öll til að takast á
við fleiri krefjandi verkefni í framtíðinni og
það verður forvitnilegt að sjá hversu vel fyr-
irtækið mun blómstra næstu árin. a
Kristján leó arn-
björnsson 8. bekk
róslín Erla Tóm-
asdóttir 9. bekk
Vélsmiðja Steindórs og starfsmenn hennar á árum áður.