Suðri - 19.11.2015, Blaðsíða 2

Suðri - 19.11.2015, Blaðsíða 2
2 19. Nóvember 2015 Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is Stærðir 38–58 Nýjar vörur í hverri viku Mýrmann með opna vinnustofu Listmálarinn Mýrmann, Víðir Ingólfur, hefur vakið mikla athygli fyrir verk sín og má sjá úrval þeirra á facebook síðu hans. Nú nýverið opnaði hann vinnustofu sína í Hveragerði, gamla barnaskólanum, fyrir almenningi á Degi myndlistar- innar. Fjölmargir notuðu tækifærið og kynntu sér verk og starfsaðstöðu lista- mannsins. Ein af þeim var listmálarinn Guðrún Tryggvadóttir sem hér stillir sér upp fyrir tíðindamann Suðra með Mýrmanni sjálfum. Þá fylgir sýnishorn af einu verka hans, myndinni Árstíðir. Listamaðurinn stefnir að því að gera þetta að árlegum viðburði en þeim sem vilja kynna sér verk hans gefst gott tæki- færi til þess dagana 7. -29. maí en þá er Mýrmann með einkasýningu í Gallerí Fold. Drullusund - Nýtt söguskilti í Hveragerði Nýtt söguskilti við Drullusund var afhjúpað í gær. Söguskiltin eru orðin níu og hafa þau vakið mikla athygli en skiltin eru í senn fróðleg og upplýsandi fyrir bæjarbúa og ferða- menn. Njörður Sigurðsson, sagn- fræðingur hefur tekið saman textana. Á myndinni eru Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri sem afhjúpaði skiltið, og Guðmundur Ingi Gunnlaugsson sem dvaldi á Geirlandi í æsku, sagði frá æskuminningum tengdar sundinu. Óvissa um framtíð háskólanáms á Laugarvatni Óvissa ríkir um framtíð há-skólnámsins á Laugarvatni og hefur gert frá því að starfshópur skilaði tillögu um að færa það til Reykjavíkur. Ársþing Sambands sunnlenskra sveitarfélaga ályktaði fyrir skömmu gegn hug- myndum um að færa háskólanámið en sú tillagan hefur mætt miklli and- stöðu heimamanna og þingmanna kjördæmisins. Ákvörðun býður há- skólaráðs. Ástríður Stefánsdóttir, dósent og deildarstjóri við íþrótta- tómstunda og þroskaþjálfadeild menntavísinda- sviðs Háskóla Íslands, segir enga ákvörðun hafa verið tekna um fram- tíð náms í íþrótta- og heilsufræðum á Laugarvatni. Nýverið lagði nefnd undir forystu Ástu Möller það til að kannaðir yrðu kostir þess að flytja námið til Reykjavíkur, meðal annars til þess að auka aðsókn að því. Ástríður segir að starfshópur vinni nú að dýpri greiningu á kostnaði og öðru því sem lýtur að framtíð náms- ins, þar sem valkostirnir eru útfærðir frekar. Öllu skipti að bjóða upp á gott nám sem aðsókn sé í, en til að geta haldið úti öflugu námi þarf á bilinu 30-50 í árgangi til að geta boðið upp á fjölbreytta áfanga. Dregið hefur úr aðsókn að náminu undanfarin ár. „Mestu skiptir er að geta sótt fram og við þurfum að finna bestu leiðina til þess. Mikilvægt er að eyða óvissu um framtíð námsins og taka ákvörðun sem fyrst. Starfshópur sem vinnur að því að útfæra valkostina mun leggja tilllögur fyrir háskólaráð innan tíðar, sem tekur ákvörðunina um fram- haldið. Þá ákvörðun þarf að undir- byggja vel og t.d. að greina hvað kostar að byggja aðstöðuna á Laugarvatni upp en hann er umtalsverður,“ segir Ástríður. Hörð viðbrögð þingmanna og úr sveitarstjórnum Guðmundur Ármann Pétursson, sveitarstjórnarmaður í Grímsnes- og Grafningshreppi, mótmælir hug- myndum um flutning háskólanámsins harðlega, líkt og fram kemur í grein hans á bls. 4. Hann segir meðal annars: „Það þarf að efla háskólanám á Suður- landi og það rétta er að menntamála- ráðherra fái það verkefni að skoða hvernig hægt er að byggja upp, bæta og samþætta það starf sem unnið er á Suðurlandi. Það er þingmanna Suður- kjördæmis að fela ráðherra verkefnið.“ Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tekur undir með Guðmundi og segir í samtali við Suðra að þegar lagt sé til að fjárhagslega og faglega sé gott að sameina skóla þá fylgir oft að námsaðstöðu minni ein- ingarinnar verði haldið, líkt og lagt var upp með á Laugarvatni. „Þegar að menn lýsa áhyggjum sínum á því að til lengri tíma verði minni skólanum lokað þá hefur dæmið um sameiningu KHÍ og Íþróttaskólans á Laugarvatni og HÍ verið tekið um velheppnaða sameiningu þar sem minnstu ein- ingunni sé haldið og námsumhverfi hennar. Nú hafa svartsýnisspár gengið eftir með tillögu um flutning náms- ins. Ég vil mótmæla þessari afstöðu stjórnvalda harðlega og styð þá starfs- menn skólans og sveitarstjórnarmenn sem talað hafa fyrir því að skólinn fái stuðning við að auglýsa og laða til sín nemendur“, segir Oddný sem situr í fjárlaganefnd Alþingis. Unnur Brá Konráðsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og mennta- málanefndar Alþingis. Hún segir hennar mati komi ekki til greina að flytja grunnnám í íþrótta- og heilsufræði frá Laugarvatni til Reykja- víkur. „Á Laugarvatni er góð aðstaða og miklir möguleikar til staðar til að efla námið enn frekar. Ég hef átt nokkra fundi með rektor Háskóla Ís- lands um þetta mál þar sem ég hef lýst afsöðu minni til málsins. Ég mun halda áfram að vinna að því að efla námið á Laugarvatni en það er nauðsynlegt að bregðast við fækkun nemenda með því að sækja fram. Við eigum að nota þessa vinnu sem fram hefur farið hjá Háskóla Íslands til að átta okkur á því með hvaða hætti við framkvæmum sóknina, “ segir Unnur Brá. Unnur brá Konráðsdóttir. Oddný G. Harðardóttir. Guðmundur Ármann Pétursson. Af facebook síðu Hveragerðisbæjar. Frá Laugarvatni. Mynd: Sigurður Bogi Sævarsson.

x

Suðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Suðri
https://timarit.is/publication/1143

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.