Suðri - 19.11.2015, Blaðsíða 16
Set ehf
röraverksmiðja
Forn menningarríki hófu gerð
vatnsrenna og lagnastokka fyrir
mörgum árþúsundum.
Síðar voru þróaðar vatnsbrýr
og málmpípur til að veita vatni
til ræktunar, þvotta og drykkjar.
Egyptar, Grikkir og Rómverjar áttu
mikla verkmenningu á þessu sviði,
en vatnsbrýr Rómverja eru enn
í dag taldar meðal helstu verk-
fræðiafreka mannkyns.
Viðtæk þekking, reynsla og geta fyrirtækisins setur
það í flokk á meðal helstu röraframleiðenda evrópu.
Lagnagerð er því með elstu iðn-
greinum sögunnar og hefur þróast
með tímanum.
Með nýjustu tækni og aðferðum
hefur röraverksmiðjan Set skapað
sér sérstöðu á heimsvísu með
fjölbreytileika í framleiðslu,
ásamt því að vera mikilvægur
þátttakandi í uppbyggingu og
nýsköpun í íslensku samfélagi.
www.set.is
Set ehf.
Röraverksmiðja
Eyravegur 41
800 Selfoss
Sími +354 480 2700
Fax +354 482 2099
set@set.is
Set ehf • Röraverksmiðja
Veljum íslenskt og sköpum
með því verðmæti og störf.
HÉRAÐSFRÉTTABLAÐ
Auglýsingar: 578 1190 & auglysingar@fotspor.is
Ritstjórn: 863 5518 & sudri.heradsblad@gmail.com
HÉRAÐSFRÉTTABLAÐ
KEMUR ÚT HÁLFSMÁNAÐARLEGA OG ER DREIFT Í 10.500
EINTÖKUM Á ÖLL HEIMILI OG FYRIRTÆKI Á SUÐURLANDI
Gagnheiði 5, Selfossi
Sími 482 1980
Efnissala
Rennismíði
Innréttingar
Járnsmíði
,,Heyrðu elskan, þú ert að fara að flytja
á Hornafjörð og ferð i FAS í haust“
,,Ha? FAS? Hvað er það?“
Setjið ykkur í spor 16 ára unglings,
nýútskrifaðs úr grunnskóla með háa
drauma um framhaldsskóla í miðborg
Reyjavíkur. Eða setjið ykkur í spor for-
eldranna sem þurftu að takast á við
grátinn og fíluna í svona sex mánuði
á eftir.
En svona er lífið stundum. Eftir út-
skrift úr Háskóla Íslands og c.a 30 at-
vinnuviðtöl þá landaði eiginmaðurinn
draumastarfinu á Höfn í Hornafirði.
Stuttu seinni var eiginkonunni boðið
spennandi starf og þá var að hrökkva
eða stökkva.
Með blendnar tilfinningar var allt
rifið upp með rótum og smá búslóð
pakkað í sendiferðabíl og lagt í hann.
Samingur gerður innan fjölskyldunnar
– prófum í 1 ár.
Síðan eru liðnir 16 mánuðir og við
erum ennþá hér og allir blómstra í
sínu umhverfi og FAS er meira að segja
bara ,,nokkuð góður skóli sko“. Burt
frá því þá hefur það óneitanlega marga
kosti að búa með börn í litlu samfélagi,
þó glöggt sjái gests augað og margt
megi laga þá eru kostirnir þessir:
Lífið er einfaldara og ég hef lýst
því eins og að búa í hvelfingu líkt og
Truman sem Jim Carrey lék svona
snilldarlega í ,,The Truman Show“.
Nema flesta mánuði ársins komumst
við út, ekki alla en flesta.
Um þessar mundir er hávær um-
ræða um að menntað ungt fólk
hyggist flytja úr landi og að það
skorti framtíðarsýn og lífsgæði á Ís-
landi. Ég hef einnig þá tilfinningu að
hér megi margt bæta og legg til að
ef fólk treystir sér ekki til að flytja út
fyrir landsteinana að prófa að flytja
útá land. Það er góð reynsla fyrir og
ég er viss um að alla tíð þá munum
við minnast Hornafjarðaráranna
með gleði í hjarta og söknuði. Við
munum samt ekki panta okkur humar
á veitingastöðum í framtíðinni, af
honum er komið nóg.
Höfundur er bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði búsett á Hornafirði.
BAKSÍÐAN
Margrét Gauja
Magnúsdóttir
Auglýsingasíminn er 578 1190 Netfang: auglysingar@fotspor.is.