Fréttablaðið - 07.03.2016, Page 8

Fréttablaðið - 07.03.2016, Page 8
Hjartað brast við synj­unina,“ segir Meseret Tsegay, 25 ára barnshaf­andi kona, sem Útlend­ingastofnun hefur synjað um hæli hér á landi. Konan og eiginmaður hennar, Mehretab Abraha, eru frá Erítreu og komu hing­ að til lands í febrúar á síðasta ári. Þeim er vísað burt á grundvelli Dyflinnar­ reglugerðarinnar. Hjónin eiga von á dóttur en Mes eret er komin fimm mánuði á leið. Hún er undir ströngu eftirliti lækna hér á landi þar sem meðgangan er skilgreind sem áhættumeðganga. Á flóttanum í gegn­ um Afríku og Evrópu hefur Meseret þrisvar sinnum misst fóstur. Undir eftirliti íslenskra lækna virðist allt ætla að ganga betur. Í dag mun lögfræðingur hjónanna leggja fram beiðni um frestun réttar­ áhrifa á meðan þau fara dómstóla­ leiðina í von um hæli hér á landi. Það er ekki óalgengt að slíkum beiðnum sé hafnað og þá verða hjónin send aftur til Ítalíu, en það er fyrsta Evrópulandið sem þau voru skráð inn í. Í gegnum Afríku Meseret var fjórtán ára gömul þegar faðir hennar var handtekinn í heima­ landinu Erítreu. „Móðir mín flúði með mig og systur mína, sem þá var tólf ára. Við fórum fótgangandi og á kameldýrum yfir til Súdan. Við vorum að fara ólöglega á milli landa svo við gátum bara ferðast á nóttunni og máttum ekki sjást í eyðimörkinni á daginn.“ Móðir Meseret varð eftir í Súdan en hún er orðin öldruð kona. Meseret fór því ein til Líbíu í von um betra líf. Þar kynntist hún Mehretab. „Þegar ég kom til Trípólí [höfuðborg Líbíu] spurðist ég fyrir um hvar ég gæti hitt fólk frá Erítreu. Svo hitti ég hann.“ Mehretab kom fyrr til Líbíu en hann flúði Erítreu nítján ára gamall til að komast hjá því að fara í herinn. Erítrea er alræðisríki og mannréttindi þar eru virt að vettugi. Mehretab fór sömu leið og Meseret, fótgangandi yfir landamærin til Súdan og þaðan til Líbíu. „Það var mjög erfitt að búa í Líbíu á þessum tíma því við erum kristin. Ef þeir sáu að ég bar kross var ég laminn og mér ógnað með hnífum. Það var betra þegar ég vann í Sahara en ástandið var mjög slæmt í borginni.“ Á þessum tíma geisaði stríð í Líbíu og einn daginn var þeim hjónum sagt ✿ Ferð hjónanna til Íslands Vísað burt á fimmta mánuði meðgöngu Ung hjón eiga von á því að vera flutt til Ítalíu á næstu dögum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Hjónin hafa verið hér á landi í eitt ár en áður höfðu þau verið á flótta frá Erítreu í tíu ár. Á Íslandi líður þeim eins og þau geti loksins átt framtíð fyrir sig og ófædda dóttur. Meseret Tsegay og Mehretab Abraha hefur verið synjað um hæli af Útlendingastofnun. FréTTAblAðið/AnTonbrink Snærós Sindradóttir snaeros@frettabladid.is að allir útlendingar yrðu að koma sér út úr landinu. Meseret var sótt á rútu og flutt að strandlengjunni þar sem hennar beið erfið ferð yfir Miðjarðar­ hafið á hriplekum bát ásamt 300 öðrum. Eiginmaður hennar var fastur við vinnu í Sahara og leiðir skildi. Í flóttamannabúðum Þegar Mehretab kom tveimur dögum síðar lenti hann í öðrum flóttamanna­ búðum og þau hjón áttu ekki eftir að vita af hvort öðru í tvo mánuði. Á endanum bárust boð á milli búðanna sem varð til þess að þau fréttu að hitt þeirra hefði lifað ferðina yfir Mið­ jarðarhafið af. „Þegar ég spurði hvort ég mætti skipta um búðir til að vera með eigin­ manni mínum var mér sagt að þá þyrfti ég að byrja pappírsferlið mitt upp á nýtt. Svo ég sagði nei. Ég vildi frekar fá leyfi á Ítalíu.“ Meseret fékk hæli á Ítalíu en Mehr­ etab landvistarleyfi. Þau héldu að þeirra biði nýtt líf en utanumhaldið var sama sem ekkert og þau enduðu á götunni. Vinnumansal og mafían Hjónin vilja ekki koma fram á mynd af ótta við glæpamenn sem þau kom­ ust í kynni við á Ítalíu. Fari svo að þau verði send aftur til baka óttast þau hefndaraðgerðir. „Ég vil ekki sýna andlit mitt því það veit enginn að ég er hér. Ég vann á Ítalíu hjá mönnum sem vildu hafa mig sem þræl. Ég vann við að tína appels­ ínur hjá þeim en fékk ekkert kaup. Þeir neyddu mig líka til að gera hræðilega hluti,“ segir Mehretab. Mehretab segir að um skipulagða glæpastarfsemi hafi verið að ræða. Hann hafi meðal annars verið neyddur til að fara með fíkniefnasendingar og hafi verið beðinn um að útvega fólk í vinnuþrælkunina. Hann lýsir því að hann hafi verið eins og milliliður fyrir mafíuna. „Þeir voru alltaf að ógna mér með hnífum og byssum. Ég gat ekki krafist þess að fá launin mín greidd og í hvert sinn sem mig vantaði pening af því mér var kalt eða af því ég var svangur þá þurfti ég að fara niður á hnén og grátbiðja um launin mín. Þá fékk ég smáaura.“ „Einn daginn var ég að fara með sendingu af appelsínum ásamt öðrum manni. Við vorum að afferma bílinn þegar hann skreppur frá. Ég komst í peninga frá þeim og svo hljóp ég í burtu eins hratt og ég gat.“ Friðsælt land á hjara veraldar „Við ákváðum að fara til Íslands því það var langt frá Ítalíu. Ég hafði lesið á netinu að Ísland væri friðsælt land og að það væri ekki í Evrópusambandinu. Ég veit samt að þið virðið Dyflinnar­ reglugerðina. Og það er á grundvelli hennar sem okkur er sagt að fara núna,“ segir Mehretab. „Þeim er alveg sama um stöðu okkar, þau hugsa bara um þessa reglugerð. Við getum ekki dáið vegna Dyflinnarreglu­ gerðarinnar. Á Ítalíu svaf ég í stigagangi í tvær vikur. Lögreglan gerði rassíu á lestarstöðinni svo það var ekki lengur hægt að sofa þar og kirkjan er yfirfull, þó hún hafi reynt að hjálpa okkur. Við höfum engan stað til að fara á.“ Mehretab segir að á Íslandi líði þeim vel og að hér vilji þau ala dóttur sína. „Ég er farinn að sjá framtíð mína hér. Ég var ungur þegar ég flúði heimaland mitt og þá var ég hamingjusamur því ég hélt að ég myndi eiga betra líf, halda áfram að mennta mig og fá vinnu. En þegar ég kom til Súdan var stríð þar líka. Svo þegar ég kom til Ítalíu var ég hamingjusamur því mér hafði verið bjargað af Miðjarðarhafinu og hélt að ég væri kominn til hinnar friðsömu Evrópu.“ Hjónin segja að betra væri að deyja á Íslandi en að fara til baka í óvissuna. „Á einu ári hér greru ör tíu ára á flótta. Ég er að læra íslensku og við erum að byrja upp á nýtt.“ Þeim er alveg sama um stöðu okkar, þau hugsa bara um þessa reglugerð. Við getum ekki dáið vegna Dyflinnar- reglugerðarinnar. Mehretab Abraha Ísland líbýa Erítrea Súdan Ítalía 7 . m a r s 2 0 1 6 m Á N U D a G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð 0 7 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 4 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 B 0 -6 6 7 4 1 8 B 0 -6 5 3 8 1 8 B 0 -6 3 F C 1 8 B 0 -6 2 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.