Fréttablaðið - 07.03.2016, Page 14

Fréttablaðið - 07.03.2016, Page 14
Gerðu góð kaup á hreinsiefnum og háþrýstidælum! Við eigum 30 ára afmæli 30% afsláttur af öllum vörum í mars* Auðbrekku 23 - Kópavogi - s. 564 1819 - www.jako.is *tilboðið á ekki við um varahluti ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Forkólfar orkugeirans nota nú öll trixin í bókinni, þar með talið vonda lögfræði, til að kasta rýrð á verkefnisstjórn ramma- áætlunar og þær reglur sem hún starfar eftir. Um augljósa hræðslu- taktík er að ræða á þeim tímapunkti þegar lokahnykkur við röðun virkj- unarkosta í 3. áfanga áætlunar- innar er að hefjast. Aðferðafræðin hefur því miður virkað á ráðuneyti umhverfis- og atvinnumála, sbr. þá ámælisverðu málsmeðferð sem ráðuneytin hafa orðið ber að varð- andi tillögu að breytingum á starfs- reglum verkefnisstjórnarinnar. Nú síðast blandar orkumálastjóri, Guðni A. Jóhannesson, sér í málið með afar smekklausum hætti þegar hann líkir störfum verkefnisstjórn- arinnar við „valdarán fámennrar klíku“ (Fréttablaðið 27.02). Þar er hann að tala um fjölskipað stjórn- vald sem er jafnsett Orkustofnun í stjórnkerfinu. Sneitt fram hjá aðalatriði málsins Orkumálastjóri virðist vera að svara grein minni í Fréttablaðinu frá 23. febrúar sl. en sneiðir þó framhjá helsta efnisatriði málsins sem er eftirfarandi. Þegar Alþingi er búið að ákveða að setja tiltekið svæði í verndarflokk eftir „faglega umfjöll- un faghópa, aðkomu fólks og fyrir- tækja að umsagnarferlinu og síðast en ekki síst Alþingis Íslendinga“ (orðrétt úr grein Guðna, nema ég vil hafa stóran staf í Alþingi), þá er það ekki léttvæg ákvörðun sem skilyrðislaust ber að endurskoða detti einhverju orkufyrirtæki það í hug, breyti forsendum örlítið og Orkustofnun leggi blessun sína yfir vitleysuna. „Engar líkur eru á að lög- gjafinn hafi haft slíkt í huga þegar lög um rammaáætlun voru sett“ (aftur orðréttur texti frá Guðna). Verkefnisstjórn rammaáætlunar er þess vegna ekki að ástunda valda- rán þegar hún neitar að taka þátt í þessum blekkingarleik, heldur er hún að vinna eftir bókstaf og anda rammaáætlunarlaga. Lögin gera vissulega ráð fyrir því að í undan- tekningartilvikum sé hægt að taka upp ákvörðun um flokkun í verndar- eða nýtingarflokk, en þau segja líka eftirfarandi: „Stjórnvöld skulu þegar Alþingi hefur samþykkt verndar- og orkunýtingaráætlun hefja undir- búning að friðlýsingu landsvæða sem ástæða þykir til að friðlýsa gagnvart orkuvinnslu samkvæmt verndarflokki áætlunarinnar“ (4. mgr. 6. gr) . Það er því alveg ljóst að flokkun landsvæðis í verndarflokk er yfir- lýsing Alþingis um yfirvofandi frið- lýsingu. Eitthvað meiriháttar á borð við þjóðaröryggi eða svæsna orku- kreppu hlýtur að þurfa að koma til áður en rokið er í að endurmeta landsvæði sem búið er að ákveða fyrir aðeins þremur árum og eftir vandaða vinnu að eigi að fara í frið- lýsingarferli án tafar. Það er því frá- leitt og frekt af Orkustofnun að láta undan þrýstingi orkufyrirtækja um að senda slíka kosti aftur út á mörk- ina til svokallaðs endurmats. Orkustofnun vanhæf Hefur Orkustofnun forsendur til að meta hvort tilteknar breytingar séu nægilega afgerandi til að þær kalli á endurmat svæðis sem búið er að flokka í verndarflokk? Nei, segi ég, enda gætir stofnunin ekki verndar- sjónarmiða og hefur verið gerð afturreka með tillögur sínar eins og frægt er. Fjölskipuð verkefnisstjórn hefur mun betri forsendur til að meta þetta og það er hennar hlut- verk samkvæmt rammaáætlunar- lögum eins og Landvernd hefur sýnt fram á í ítarlegri umsögn um tillögu að breyttum starfsreglum verkefnis- stjórnar. Framganga orkumálastjóra í rammaáætlunarferlinu áður og ívitnuð grein hans er honum síst til sóma, en lýsir aftur á móti miklum hroka í garð lögbundins hlutverks verkefnisstjórnar og heilbrigðrar stjórnsýslu. Hlutverk fjölskipaðs stjórnvalds = valdarán fámennrar klíku? Snorri Baldursson formaður Landverndar Verkefnisstjórn rammaáætl- unar er þess vegna ekki að ástunda valdarán þegar hún neitar að taka þátt í þessum blekkingarleik, heldur er hún að vinna eftir bókstaf og anda rammaáætlunarlaga. Fyrir nokkru gekk grein manna á milli á netinu um eftirsjá fólks á dánarbeðinum. Það er skemmst frá því að segja að eftirsjá- in fólst ekki í því að eiga stærra hús, betri bíl eða meiri pening heldur var það að hafa ekki lifað lífinu til fulln- ustu, leyft sér að vera hamingju- samur og sinnt börnunum sínum og vinum betur. Það eru ekki líflausir hlutir sem skilgreina okkur heldur eru það tengslin við okkur sjálf og annað fólk sem gerir það. Innihalds- ríkt líf er líf sem við lifum í sátt við okkur sjálf en ekki í kapphlaupi við aðra, væntingar samfélagsins eða kröfuna frá atvinnulífinu. Svo virðist sem við þurfum að minna okkur á þetta reglulega. Þegar hrunið dundi yfir okkur fyrir átta árum fengum við einstakt tækifæri til að búa til nýja sam- félagsgerð. Mörgum fræjum var sáð. Þjóðfundurinn og kosning til stjórnlagaþings voru ein af þeim. Fólk virtist tilbúið í að taka hönd- um saman og greiða úr misfellum samfélagsins: Jafna kjör fólks, upp- ræta áratuga sérhagsmunastefnu stjórnmálanna, koma á nýju stjórn- skipulagi með nýrri stjórnarskrá, stöðva gegndarlausan ágang pen- ingaaflanna á náttúru landsins og nýta sameiginlega sjóði í tryggt og endurgjaldslaust mennta- og heil- brigðiskerfi. Nýir flokkar komu fram á sjónarsviðið og ákall fólks um aukna aðkomu að ákvörðunum á sviði stjórnmálanna varð hávært. Fólk þráði breytingar. Samfélagsgerð í gíslingu Nú er 2016 runnið upp. Nýja sam- félagsgerðin er í gíslingu núverandi stjórnarflokka og stuðningsmanna þeirra sem virðast helst hafa það á stefnuskrá sinni að færa auðmönn- um aukna velmegun á kostnað almennings og vernda miðaldra grjóthrúgur. Misskiptingin heldur áfram að aukast og fátækt barna á Íslandi jókst mest af efnameiri ríkjum. Börn líða efnislegan skort. Á sama tíma hefur innflutningur á bílum stóraukist og bankar og fjár- málafyrirtæki eru farin að borga út risabónusa og himinháar arð- greiðslur. Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins fá að stýra umræðunni um grunnstoðir sam- félagins og sjá fyrir sér menntakerfi á forsendum markaðarins þar sem lögmál um framboð og eftirspurn skulu ráða menntun fólks. Það sama virðist gilda um heilbrigðis- kerfið. Hugmyndafræðin um hag- sæld og líðan þjóða er enn mæld í vergri landsframleiðslu og efna- hagslegum hagvexti. Menn skulu vinna meira og lengur svo örfáar fjölskyldur á Íslandi geti notið lysti- semda lífsins. Kapphlaupið sem var stöðvað 2008 er komið aftur af stað. Áður en hver íbúi landsins reimar á sig hlaupaskóna þá held ég að við ættum að minna okkur á greinina sem vikið var að hér að ofan. Við áttum ekki að reisa við gamla Ísland. Við þurfum nýja samfélagsgerð sem byggir á endurgjaldslausu mennta- og heilbrigðiskerfi, styttri vinnu- viku, fullkomnu jafnrétti kynja, nýrri og róttækri stjórnarskrá, sam- félagslega reknum fyrirtækjum, valdeflingu fólks og lýðræðisvæð- ingu stjórnmálanna. Það er löngu kominn tími til að kasta excel skjali markaðsaflanna og hugmyndafræði forneskjulegra valdhafa á haugana og færa völdin til fólksins. Þó fyrr hefði verið. Og nú að allt öðru … Líf Magneudóttir varaborgar- fulltrúi Nú er það staðreynd að við erum fámenn þjóð, sem býr í stóru og harðbýlu landi. Koma ferðamanna er ekki lengur einskorðuð við sumarmánuðina. Það eru þættir sem gætu gengið betur í þjónustu við gesti okkar. Tel að stjórnvöld eigi að setja á hóflegt náttúrugjald t.a.m. 20 € á alla sem koma til landsins , nema þá sem eiga lögheimili á Íslandi. Byrja á að kynna og skýra slíka ákvörðun, svo ferðamenn skilji hvað sé um að tefla. Að óbreyttu verður þetta okkur fjárhagslega ofviða. Bæði í Sviss og Austurríki hefur þurft að greiða til að mynda veggjöld, en þessi lönd standa okkur mun framar í allri uppbyggingu, enda rótgróin þjóðfélög. Ég hef verið að íhuga þessi mál almennt og komist að þeirri niður- stöðu, að ferðamálayfirvöld ættu að efna til samkeppni meðal arki- tekta um að byggð verði stöðluð, hagkvæm, falleg og umhverfisvæn kaffihús við þjóðvegi með aðgangs- stýrðri snyrtiaðstöðu í takt við það sem gerist víða við þýsku hraðbraut- irnar. Þar er greitt fyrir aðgengi að snyrtingu, enda er hún þrifin og boðleg. Þetta er forgangsaðriði við móttöku ferðamanna, svo augljóst að það þarf vart að ræða. Eins og jólasveinar Mér er minnisstæð snyrtingin við einn þekktasta ferðamannastað á Suðausturlandi, þar eru allt of fá salerni, þrátt fyrir gríðarlega fjölgun ferðamanna, og að sveitarfélagið skuli ekki setja rekstraaðilum stól- inn fyrir dyrnar þar til bætt verði úr, vekur furðu. Fyrir fáum árum lýsti fararstjóri í fjölmiðlum að fólk hafi þurft að fara út í móa til að gera þarfir sínar. Við Íslendingar erum að fjárfesta fyrir milljarða í hótel- byggingum um land allt, en erum eins og jólasveinar varðandi það að bæta þessa grundvallaraðstöðu, þó eru þessi mál víða til fyrirmyndar. Síðan er það gæsla á ferðamanna- stöðum, við sem siðmenntuð þjóð verðum að taka hana fastari tökum. Það vantar sýnilega löggæslu víða um land, sem kemur niður á öryggi borgara og ferðamanna. Síðast en ekki síst, þegar búast má við einni og hálfri milljón ferða- manna á þessu ári, verður þjónusta og fjárhagur sjúkrahúsa landsins að standa undir öryggi þeirra sem sækja landið heim. Þjóðin ætlast til að þessi mál séu í lagi. Einnig má ekki vanmeta mikilvægi björgunar- sveitanna. Að mínu mati er það einsýnt að koma þarf á reglubundnum tekju- stofni inn í þennan málaflokk. Stjórnvöld sem horfa á þennan stærsta atvinnuveg þjóðarinnar bera ríka ábyrgð og verða að taka frumkvæði. Því þjóðfélagið má ekki við mistökum sem við getum svo vel komið í veg fyrir, ef við vöndum okkur. Hugleiðingar um ferðaþjónustu á Íslandi Snorri Snorrason áhugamaður um bjarta framtíð ferðaþjónustu á Íslandi Við þurfum nýja sam- félagsgerð sem byggir á endurgjaldslausu mennta- og heilbrigðiskerfi, styttri vinnuviku, fullkomnu jafn- rétti kynja, nýrri og róttækri stjórnarskrá, samfélagslega reknum fyrirtækjum, val- deflingu fólks og lýðræði- svæðingu stjórnmálanna. Ég tel að stjórnvöld eigi að setja á hóflegt náttúrugjald t.a.m. 20 € á alla sem koma til landsins , nema þá sem eiga lögheimili á Íslandi. 7 . m a r s 2 0 1 6 m Á N U D a G U r14 s k o ð U N ∙ F r É T T a B L a ð i ð 0 7 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 B 0 -3 A 0 4 1 8 B 0 -3 8 C 8 1 8 B 0 -3 7 8 C 1 8 B 0 -3 6 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.