Fréttablaðið - 29.02.2016, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 29.02.2016, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —5 0 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 2 9 . f e b r ú a r 2 0 1 6 Fréttablaðið í dag skoðun Guðmundur Andri um frumlegar fjárfestingar. 10-11 sport Óskar Bjarni Óskarsson vann fjórða bikartitilinn. 12 tÍMaMót Jón Baldvin gerður að heiðursdoktor í Vilníus. 14 Nýbökuð Brauð alla daga. ferðaþjónusta Uppfærð farþega­ spá Isavia fyrir Keflavíkurflugvöll gerir ráð fyrir að erlendir ferðamenn verði 1,73 milljónir á þessu ári – eða 37 prósentum fleiri en komu hingað til lands í fyrra. Fyrri farþegaspá Isavia er innan við þriggja mánaða gömul, en í lok nóvember gerði félagið ráð fyrir því að erlendum ferðamönnum myndi fjölga um rúm 22 prósent og þeir yrðu 1,54 milljónir. Frá staðfestum tölum Ferðamálastofu fyrir árið 2015 gerði fyrri farþegaspá ráð fyrir að 282 þúsund fleiri kæmu í ár, en ný spá gerir ráð fyrir að 468 þúsund erlendir ferðamenn bætist við hóp sem taldi tæplega 1,29 milljónir árið 2015. Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, segir tíðindin gleðileg og mikilvægt að þessi mikla viðbót ferðafólks stefnir hingað að mestu leyti utan háannatíma, sem beri þess glöggt vitni að markaðssetning Isavia og ferðaþjónustunnar allrar hafi borið tilætlaðan árangur. „Flugfélögin hafa vaxið mjög hratt og framkvæmdir á flugvöllum eru í eðli sínu tímafrekar. Þær geta því illa haldist í hendur við svo mikla aukningu sem raun ber vitni nema hún verði utan mestu álagstímanna. Flugvöllurinn er þétt setinn á álags­ tímum en nóg pláss er utan þeirra. Það er því ánægjulegt að tekist hafi að dreifa álaginu betur þar sem þannig er hægt að mæta fjölgun­ inni,“ segir Björn Óli. Fyrri farþegaspá gerði ráð fyrir að heildarfjöldi gesta í Keflavík yrði 6,25 milljónir í ár, en þeir voru 4,85 milljónir í fyrra. Ný spá gerir ráð fyrir að 6,66 milljónir ferðalanga fari um völlinn – sem er 37 prósenta aukning á milli ára. Isavia hefur gripið til ýmissa ráð­ stafana til að anna aukinni umferð. Fleira starfsfólk hefur verið ráðið og flugstöðin verið stækkuð, en hún er nú 10 þúsund fermetrum stærri en í fyrra. Á árinu 2016 verður farið í framkvæmdir fyrir um 20 milljarða króna, sem mun auka afköst og bæta flæðið innan flugstöðvarinnar. – shá Isavia spáir 470.000 fleiri ferðamönnum Um tveggja mánaða gömul farþegaspá Isavia hefur verið uppfærð til hækkunar. Spáð er 37 prósenta aukningu frá síðasta ári. Á árinu á að verja 20 millj- örðum í stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. fólk Afmælisbörn hlaupársdags, sem er í dag 29. febrúar, eru oftast ánægð með hann og segja að hann gleymist síður vegna þess hve þeim sé vorkennt að eiga afmæli svona sjaldan. Þá hafi þau hin árin val um að halda upp á afmælið 28. febrúar eða 1. mars. „Mér finnst 29. febrúar besti afmælisdagur í heimi. Ljósmóðirin sem tók á móti mér bauð mömmu reyndar að skrá mig á 1. mars, en hún tók það ekki í mál,“ segir laga­ neminn Rakel Grímsdóttir sem í dag fagnar sínum sjötta afmælisdegi (og 24 árum). Þar sem fjögur ár eru í næsta afmælisdag stefnir í að Rakel ljúki háskólanámi með aðeins sex slíka að baki. – ga / sjá síðu 22 Að ljúka laganámi með sex afmæli upp á vasann 1,73 milljónir ferðamanna sækja landið heim á þessu ári gangi ný uppfærð spá Isavia eftir. Rakel Grímsdóttir laganemi saMfélag Á árinu 2015 hýsti Rauði krossinn í Reykjavík 91 heimilislausa konu í Konukoti, rúmlega 50 prósent fleiri en árið áður. Þetta kemur fram í ársskýrslu Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Gistinóttum í Konukoti fjölgaði um fimm milli ára, voru alls 2.384, en kon­ unum fjölgaði um rúmlega 30, eða rúm 50 prósent. Gistinætur voru þó rúm­ lega 400 færri en 2013, þegar 74 konur sóttu þjónustu í Konukot. Starf ársins er sagt hafa spannað vítt svið á árinu hjá Reykjavíkurdeild Rauða krossins, en meðal verkefna Helmingi fleiri í Konukot Gistinóttum í Konukoti fjölgaði um fimm milli ára, en konum um rúmlega þrjátíu. FRéttablaðið/Vilhelm Vonskuveður var á Suðvesturlandi í gærkvöldi og fjallvegir austan af Reykjavík urðu fljótt þungfærir. Til dæmis var Hellisheiði lokað á tímabili. Ökumenn nutu þess líka að björgunarsveitir stóðu vaktina og veittu ráðleggingar um hvernig best væri að haga akstrinum. Samkvæmt Veðurstofu átti að lægja í nótt. FRéttablaðið/Vilhelm voru heilbrigðisaðstoð við fíkniefna­ neytendur, heimsóknir til einangraðra og stuðningur við flóttafólk. – sg lÍfið Aukadagur verður á Secret Solstice, sem fyrir vikið verður að fjögurra daga tónlistarveislu dagana 16. til 19. júní næst­ komandi. 18-22 plús 2 sérblöð l fólk l  lÍfið *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 2 9 -0 2 -2 0 1 6 0 4 :2 7 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 9 C -C D F 4 1 8 9 C -C C B 8 1 8 9 C -C B 7 C 1 8 9 C -C A 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.