Fréttablaðið - 29.02.2016, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 29.02.2016, Blaðsíða 46
Ég held að ég sé loksins að finna minn eigin stíl, sem mun fylgja mér áfram. Ester Inga Óskarsdóttir Ester Inga Óskarsdóttir förðunar- fræðingur segist alltaf hafa haft áhuga á hönnun heimilisins, skreyt- ingum og breytingum og finnur hún þeim áhuga farveg á hugmyndasíð- unni Allt sem gerir hús að heim- ili, sem hún heldur úti ásamt Krist- jönu Diljá, elstu dóttur sinni. „Ég hugsa mikið um hönnun heimilis- ins, við hjónin hönnuðum og byggð- um húsið okkar í Kjósinni sjálf svo það er nákvæmlega eins og við vild- um, svo hefur fjölskyldan stækkað og breyst svo húsið er endurskipu- lagt jafnóðum ef okkur finnst þurfa þess,“ segir hún. Hlutir án hlutverks teknir Í herbergi dótturinnar sem nýlega var tekið í gegn voru í fyrir breyt- ingu gömul húsgögn frá Ikea, öll úr sömu línu sem báðar dætur Esterar höfðu notað og var herbergið málað pastelgrænt og hvítt. „Ég byrjaði á að mála græna vegginn svartan en þeir hvítu fengu að halda sér. Dótt- irin fékk nýtt rúm sem er 120 senti- metrar á breidd og ég tók fataskáp- inn út. Í staðinn setti ég kommóð- ur, tvær saman sem mynda í leiðinni skenk fyrir sjónvarpið, spegil og fleira. Ég keypti nýtt skrifborð og myndahillur, skipti um gardínur og púða. Ég límdi líka nokkrar svartar doppur á hvíta vegginn sem er allt- af hægt að taka af, minnkaði smádót og tók út hluti sem höfðu ekki hlut- verk,“ lýsir Ester. Góð ráð Beðin um nokkur góð ráð fyrir þá sem eru í sömu sporum, að breyta barnaherbergi í unglingaherbergi segist Ester mæla með að rúmið sé haft nógu breitt, þetta sé líklega síð- asta rúmið sem keypt verði handa barninu og það getur jafnvel tekið það með sér þegar það flytur að heiman. „Gott er að nota hlutlausa liti á veggjum og húsgögnum og nota frekar liti til að skreyta. Hafa unglinginn með í ráðum, þeir vita oft hvað þeir vilja eða hvað þarf að leggja áherslu á. Sniðugt er að hugsa herbergið út frá áhugamáli, ef ungl- ingurinn er bókaormur þarf góðar bókahillur, ef hann hefur áhuga á tölvum þarf hann frekar gott pláss fyrir tölvu og þess háttar. Setjið bara það inn í herbergið sem hefur notagildi eða það sem unglingnum finnst fallegt, öðru er ofaukið.“ Ef herbergið er lítið er sniðugt til að láta það virðast stærra að nota ljósa liti og stóra spegla og setja hillur svolítið hátt upp fyrir það sem minna er notað. „Mér finnst góð hugmynd að hafa lítinn sófa eða stóla í unglingaherbergjum svo vinirnir þurfi ekki að sitja á rúm- inu þegar þeir eru í heimsókn. Svo er tilvalið að skoða netið, bestu hug- myndirnar koma oft þegar maður skoðar myndir af öðrum rýmum. Þá má líka athuga hvort það megi breyta þeim húsgögnum sem eru til fyrir, filmur sem eru límdar á hús- gögn og málning getur breytt heil- miklu og oft óþarfi að kaupa allt nýtt.“ Fann sinn stíl Ester er mikið fyrir að breyta til á heimilinu og segist þurfa að prófa alla möguleika séu þeir margir. „Svo getur einn nýr hlutur inn á heimilið orðið til þess að ég þarf að breyta öllu en það er bara gaman,“ segir hún og brosir. Einfaldur stíll, skandinavískur með fáum og fal- legum, hlýjum hlutum og húsgögn- um, viður og gler heilla Ester mikið núna. „Ég held að ég sé loksins að finna minn eigin stíl, sem mun fylgja mér áfram en ég er búin að prófa þá marga í gegnum árin.“ Gott að hafa unglinginn með í ráðum Þegar börnin eldast og stækka þarf að laga herbergin þeirra að breyttum þörfum og áherslum. Ester Inga Óskarsdóttir er nýbúin að breyta herbergi dóttur sinnar sem er á þrettánda ári þannig að það hæfi hennar aldri. Hún deilir hér góðum ráðum um breytingar. Ester málaði einn vegginn í herbergi dóttur sinnar svartan en húsgögnin eru í hlutlausum litum. MYNDIR ÚR EINKASAFNI Gott er að rúmið fyrir unglinginn sé nógu breitt, það er líklega síðasta rúmið sem keypt er af foreldrunum. Óþarfi er að hafa annað en það sem hefur notagildi í herberginu og það sem unglingnum finnst fallegt. Fataskáp var skipt út fyrir tvær kommóður. Þær mynda skenk fyrir sjónvarp, spegil og ýmsa smáhluti. Opið virka daga 9 -18, laugardaga 11- 16. – www.rafkaup.is Wireflow frá Hönnuður er Arik Levy HEIMIlIð Kynningarblað 29. febrúar 201616 2 9 -0 2 -2 0 1 6 0 4 :2 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 9 C -E B 9 4 1 8 9 C -E A 5 8 1 8 9 C -E 9 1 C 1 8 9 C -E 7 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.