Fréttablaðið - 29.02.2016, Blaðsíða 21
Eitt erfiðasta húsverk hverrar hús-
móður eða -föður er að þrífa eld-
húsháfinn. Klístur og skítur mynda
órjúfanlega heild sem erfitt er
að losna við með venjulegum og
óvenjulegum sápum sem finna má
í hinum ýmsu spreybrúsum.
Þó er ekki öll von úti því til er gott
og gagnlegt húsráð sem virk-
ar. Það sem þarf er venjuleg mat-
arolía og eldhúspappír. Berið olí-
una ríflega í pappírinn eða hellið
á flötinn sem á að þrífa. Dreifið úr
olíunni og sjáið hvernig skíturinn
leysist upp á nóinu. Þegar búið er
að þurrka það mesta af með papp-
írnum er hægt að grípa til hinna
klassísku hreinsiefna til að þrífa
afganginn af olíunni af og „voila“ –
háfurinn er sem nýr.
Háfurinn klístraði
Martha Stewart er öflug á net-
inu. Hún heldur úti heimasíðu,
Face book-síðu og er á Pinterest.
Martha gefur óteljandi ráð fyrir
heimilið á þessum síðum sínum og
frábærar uppskriftir. Það er þess
vegna nauðsynlegt fyrir alla fagur-
kera að fylgjast með henni.
Eitt af góðum ráðum Mörthu
fyrir eldhúsið er geymsla á olíu,
salti og pipar. Hún notar kökudisk
á fæti til að spara pláss á eldhús-
borðinu. Ólífuolían, krydd og mort-
él geta staðið uppi á kökudiskinum.
Martha notar hvítan kökudisk.
Annað gott ráð frá Mörthu
fyrir þá sem eru með lítið eld-
hús er geymsla á pottum og pönn-
um. Martha hengir pottana upp á
króka í lofti. Þá taka þeir ekki pláss
í skápum.
Einnig er hægt að hafa hengi á
veggnum þar sem hægt er geyma
ausur, spaða, píska og annað
stærra dót sem fer illa í skúffu. Þá
segir Martha að með því að hafa
bollapörin saman í skápnum taki
þau minna pláss. Hún hefur sem
sagt bollann ofan á undirskálinni
og setur eitt sett ofan á annað.
Myndin er fengin af heimasíðu
Mörthu. Skoðið marthastewart.
com til að fá góð ráð.
Góður staður
fyrir olíuna
KOMDU MEÐ MÁLIN og við
hönnum, teiknum og gerum
þér hagstætt tilboð.
FAGMENNSKA í FyrIrrúMI
Þú nýtur þekkingar og
reynslu og fyrsta flokks
þjónustu.
VIÐ KOMUM hEIM tIL þíN,
tökum mál og ráðleggjum
um val innréttingar.
þú VELUr að kaupa
innréttinguna í
ósamsettum einingum,
samsetta, eða samsetta
og uppsetta.
Mán. - föst. kl. 10-18 · Laugardaga kl. 11-15
Við sníðum
innréttinguna að þínum
óskum. þú getur fengið
skúffur og útdregin
tauborð undir vélarnar,
einnig útdreginn
óhreinatausskáp,
kústaskáp o.m.fl .
Baðherbergi
Uppþvottavélar
Helluborð Ofnar
Háfar
Kæliskápar
RAFTÆKI
FYRIR ELDHÚSIÐ
SANNKALLAÐ
Vandaðar hirslur Þvottahúsinnréttingar
ÁByrGÐ - þJÓNUStA
5 ár á innréttingum, 2 ár á raftækjum.
Fríform annast alla þjónustu.
(Trésmíðaverkstæði,
raftækjaviðgerðaverkstæði).
20% AFSLÁttUr AF
rAFtæKJUM
friform.is
Viftur
PÁS A ERÐ
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
AFSLÁttUr
15%
AF ÖLLUM
INNrÉttING
UM
tIL PÁSKA
VÖNDUÐ rAFtæKI
Á VæGU VErÐI
Nú í AÐdRAgANdA PÁSKANNA höFum VIÐ ÁKVEÐIÐ
AÐ bjóÐA oKKAR ALbESTA VERÐ
Þegar fólk tekur ákvörðun um að
endurnýja eldhúsinnréttingar þarf að
huga að ýmsum hlutum. Maður þarf
fyrst að mynda sér skoðun á hvað
maður vill fá út úr innréttingunni. Til
að fá hugmyndir er gott að heim-
sækja verslanir sem selja innrétting-
ar, kíkja á netið, lesa bækur og híbýla-
og heimilistímarit. Þegar hugmyndin
er fædd er eftirleikurinn auðveld-
ari. Innréttingin þarf að passa við stíl
hússins. Ertu í gömlu eða nýju húsi?
Vinnupláss er mikilvægt í eldhús-
inu, hvort sem það er lítið eða stórt.
Til að fá sem bestar lausnir og ráð
getur verið nauðsynlegt að leita til
innanhússhönnuðar. Flest innrétt-
ingafyrirtæki bjóða upp á slíka að-
stoð. Þá er gott að gera verðsaman-
burð og hafa ákveðna upphæð í
huga um kostnað. Valið á borðplötu
og nýjum heimilistækjum getur haft
áhrif á heildarkostnað.
Ekki færa vask eða uppþvotta-
vél frá því sem var. Það getur kost-
að mikið að færa vatnsleiðslur. Síðan
ætti að vera gott pláss til að athafna
sig á milli ísskáps, vasks og eldavélar.
Oft er mesta umferð heimilisfólks á
þessum stöðum.
Gott vinnupláss er mikilvæGt
Kynningarblað Heimilið
29. febrúar 2016 7
2
9
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
9
C
-F
F
5
4
1
8
9
C
-F
E
1
8
1
8
9
C
-F
C
D
C
1
8
9
C
-F
B
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K