Fréttablaðið - 29.02.2016, Blaðsíða 24
Teppin fengu á sig
þrívíddaráferð þótt
unnin væru í tvívídd og
var ég t.d. undir miklum
áhrifum frá gosinu í
Holuhrauni en einnig
jöklunum okkar og nú er
ég að snúa mér aftur að
fornsögunum.
Sigrún Lára Shanko
Heimilið Kynningarblað
29. febrúar 201610
Textíllistakonan Sigrún Lára
Shanko hefur um nokkurra ára
skeið hannað eigin teppalínu undir
heitinu Shanko Rugs sem vakið
hefur athygli fyrir frumlegheit
og litadýrð. Sigrún hefur starf-
að við textíllist frá árinu 2003 en
hafði áður sinnt henni sem áhuga-
máli um áratugaskeið. „Lengi vel
starfaði ég við textíllitun, aflit-
un, batik, þæfingar og fleira. Ég
vann nánast eingöngu með silki og
hannaði m.a. slæður og bæði stór
og smá myndverk. Innblásturinn
fyrir silkiverkin sótti ég í Eddurn-
ar okkar og Heimskringlu þar sem
ég færði textana yfir í yngri eða
eldri rúnaletur.“
Árið 2009 segist Sigrún hafa
þurft að endurhugsa nálgun sína
í listinni þar sem nær öll sala á
listaverkum datt niður. Árið 2013
hóf hún að hanna teppin undir
eigin nafni, Shanko Rugs. „Breyt-
ingin var bæði spennandi
og krefjandi; að fara frá
frelsinu í að blanda
mína eigin liti fyrir
silkið, í að vinna
með takmarkaðâ
litapallettu í íslenska
ullarbandinu.“
Þegar Sigrún hóf að
hanna fyrstu teppin sín
sótti hún innblásturinn í íslenska
náttúru. „Það var þessi fallega og
jafnframt hrikalega fegurð sem
hefur heillað mig frá barnsaldri.
Formin voru stílhrein og ólík öllu
sem ég hafði gert í silkinu. En
þegar ég fór að vinna undir eigin
merk i , Sha nko
Rugs, þá braust
textíl málarinn
fram í mér. Teppin
fengu á sig þrívídd-
aráferð þótt unnin
væru í tvívídd og
var ég t.d. undir
miklum áhrifum frá
gosinu í Holuhrauni en
einnig jöklunum okkar og
nú er ég að snúa mér aftur að
fornsögunum.“
Undirstrikar lífsstíl
Við hönnun fyrstu mottunnar seg-
ist hún hafa haft í huga híbýli
þeirra sem kunna fallegt að meta
og vantaði teppi sem væri sér-
unnið að þeirra óskum og undir-
strikaði lífsstíl þeirra.
„Stundum þarf ekki
nema lítið teppi til þess
að setja punktinn yfir
i-ið en oftast hef ég verið
beðin um að gera stærri
verk í óreglulegri lögun.
Þykk handgerð teppi á
gólf, sem eru lögð park-
eti eða flísum, geta dreg-
ið úr endurkasti hljóðs
og hef ég unnið nokk-
ur slík verk fyrir inn-
lenda aðila þar sem kraf-
ist var að teppið væri í
formi listaverks en um
leið drægi það úr endur-
kasti hljóðs.“
Þessa dagana
er allt á hvolfi á
vinnustofu Sigrúnar sem hún deil-
ir með Þóru Björk Schram textíl-
listakonu. „Ég er eins og fleiri að
undirbúa þátttöku mína á Hönnun-
arMars en það er alltaf jafn gaman
að taka þátt. Að þessu sinni er ég
að sýna með fjölbreyttum hópi
hönnuða hjá Syrus son hönnunar-
húsi. Þar verð ég að með ný verk,
t.d. Fingrafar Íslands og Óður
til hvalsins. Síðan verður gott að
slaka aðeins á hér heima eftir ann-
asamt 2015 og vinna úr því sem
síðasta ár skilaði bæði í pöntunum
og fyrirspurnum.“
Heimasíða Sigrúnar Láru er
www.shankorgs.com en teppi
hennar fást hjá Syrusson hönnun-
arhúsi.
Stundum þarf ekkert nema lítið teppi
Eftir að hafa starfað við textíllist í mörg ár sneri Sigrún Lára Shanko sér að eigin hönnun á teppum undir merkinu Shanko Rugs. Innblástur
sækir hún í fallega og hrikalega náttúru landsins. Fram undan er HönnunarMars þar sem Sigrún mun sýna nokkur ný verk.
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Teppi Sigrúnar eru mörg hver hálfgerð listaverk.
mYND/GRÍmUR BJARNA
„Það var þessi fallega og jafnframt hrikaleg fegurð sem hefur heillað mig frá
barnsaldri,” segir Sigrún lára Shanko. mYND/ANTON BRiNK
2
9
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
9
D
-1
8
0
4
1
8
9
D
-1
6
C
8
1
8
9
D
-1
5
8
C
1
8
9
D
-1
4
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K