Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2008, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2008, Side 17
DV Sport FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 17 Liverpool er að missa af lestinni í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn eftir óvænt 1-1 jafntefli við Wigan í gær. Þeir eru nú tólf stigum á eftir toppliði Arsenal. Liverpool missti tvö dýrmæt stig til Wigan í gærkvöldi þegar liðin skildu jöfn á Anfield, 1-1. Yfirburð- ir Liverpool skiluðu ekki nema einu marki og var liðinu grimmilega refs- að tíu mínútum fyrir leikslok með marki frá engum öðrum en Tims Bramble. Þrátt fyrir að vera með tvo fram- herja á varamannabekknum, þá Dirk Kuyt og Peter Crouch, kaus Rafa- el Benítez að leggja upp með fimm manna miðju. Steven Gerrard var í stöðu fremsta miðjumanns til að- stoðar Fernando Torres sem var að vanda fremstur. Af hverju Benítez kaus að leika ekki með tvo fram- herja hefur allavega lítið með síðustu leiki liðanna að gera. Síðustu fimm leiki þessara liða í úrvalsdeild hefur Liverpool unnið alla, skorað ellefu mörk og fengið ekkert á sig. Liverpool byrjaði strax að pressa að marki Wigan og komst Fern- ando Torres í dauðafæri, einn gegn Kirkland í markinu, en var dæmdur rangstæður sem er umdeildur dóm- ur. Michael Brown skaut hins veg- ar viðvörunarskoti að marki heima- manna þegar 30 metra þrumufleygur hans þaut rétt framhjá markinu. Það var þó eins nálægt og Wigan átti eft- ir að komast að marki Liverpool. Þeir voru meira að verja sitt mark. Pressan jókst en vörn Wigan komst vel ffá sínu í fyrri hálfleik. Besta færi Liverpool fékk Javier Mas- cherano þegar þríhyrningur hans við Torres lagði upp gott skotfæri en slakt skot hans varið auðveldlega af Kirkland. Torres reyndi svo fyrir sér sjálfur með skalla eftir aukaspyrnu Xabi Alonso, en rétt yfir. Það var svo fyrirliði Liverpool, Steven Gerrard, sem átti lokatilraun að marki Wigan í fyrri hálfleik þegar skot hans utan úr teignum sigldi framhjá stönginni. Snöggir að brjóta ísinn Það tók Liverpool ekki nema fimm mínútur í seinni hálfleik að brjóta ís- inn og skora markið sem þurfti. Ste- ven Finnan, nafni hans Gerrard og Fernando Torres sundurspiluðu þá Wigan og skoruðu glæsilegt mark. Finnan gaf boltann á Torres inni á miðjunni sem fleytti honum út á kantinn á Gerrard. Gerrard fann svo Finnan í svæðinu við vítateiginn og Finnan renndi boltanum fyrir mark- ið með fyrstu snertingu, beint á Tor- res sem afgreiddi knöttinn eins og honum einum er lagið og skoraði tí- unda úrvalsdeildarmarkið sitt. Eftir þetta virtist aldrei ætla að verða spurning um úrslitin. Liver- pool fór sér hægt og örugglega í sóknaraðgerðum sínum og þurfti ekki að hafa miklar áhyggjur af baks- væðinu. Mikil hætta skapaðist við mark Wigan eftir klukkustundarleik þegar aukaspyrna Stevens Gerrard var of föst fyrir Kirkland að halda og boltinn skoppaði fyrir framan tómt markið. Kapphlaupið að boltanum vann Mario Melchiot af mikilli hörku í baráttu við Torres og bjargaði því að Liverpool bætti við marki. Kirkland gerði þó betur í að halda föstu skoti Gerrards af mun styttra færi og mun- urinn áfram aðeins eitt mark. Leikurinn snérist í höndum Liverpool Þegar ekkert virtist líklegra en auðveldur sigur Liverpool var lið- inu grimmilega refsað á 79. mínútu þegar Wigan jafnaði leikinn. Tit- us Bramble skallaði þá boltann að marki Liverpool eftir aukaspyrnu Dennys Landzaat en skallinn var laus og dreif ekki að marki. Steven Gerrard hreinsaði boltann frá marki sem heppnaðist ekki betur en svo að boltinn barst aftur á Bramble sem skoraði laglegt mark með góðu skoti í bláhornið fyrir utan teig. Sjaldséð tilþrif hjá þessum umdeilda leik- manni. Upp frá markinu hófst gífurleg pressa frá Liverpool á mark Wigan. Það tók Rafael Benítez samt tæpar fimmtán mínútur að skipta inn fram- herja þegar hann setti Peter Crouch inn á á 84. mínútu. Tveimur mínút- um síðar kom svo Dirk Kuyt inn á en hvorugur skilaði miklu. Það var Ste- ven Gerrard sem fékk langbesta færi Liverpool það sem eftir lifði leiks þegar hann náði frákasti frá sínu eig- in skoti en frábær tvöföld markvarsla Chris Kirkland bjargaði stigi fyrir gestina. Þetta eina stig þýðir að Liverpool simr áfram í fjórða sætinu eins og var vitað en er sex stigum frá Chelsea sem situr í þriðja sætinu og á einn leik til góða. Fast á hæla þeim koma grannarnir í Everton sem hafa fagn- að mikið í kvöld enda aðeins tvö stig í fjendurna hinum megin við ána. tomas&dv.is Léttur dans Fyrrverandi Liverpool maðurinn Emile Heskey sækir hér aftan að Xabi Alonso Eftir tíðindalausan fyrri hálfleik á Ewood Park færðist fjör í leikinn þar sem tvær vítaspyrnur og rautt spjald litu dagsins ljós: McCarthy sendi Sunderland tómhent heim Blackburn vann vinnusigur, 1-0, á Sunderland á heimavelli í gærkvöldi. Markið skoraði Benni McCarthy úr vítaspyrnu á 55. mín- útu en tíu mínútum áður höfðu Sunderland-menn klúðrað víti. Áhorfendur á Ewood Park í Blackburn fengu ekki mikið fýr- ir nýárspeninginn sinn í fyrri hálf- leiknum. Mikill vindur hafði áhrif á leikinn og boltinn var mikið úr leik. Hálfleiksræður beggja þjálfara skiluðu sér heldur betur því allt annað var að sjá leikmenn í síð- ari hálfleik. Sunderland fékk víta- spyrnu eftir aðeins fímm mínútur í seinni hálfleik þegar tröllið í vörn Blackburn, Christopher Samba, braut á Daryl Murphy innan teigs. Dean Whitehead fór á punktinn til að reyna að skora mikilvægt mark fýrir gestina en Brad Friedel gerði sér lítið fyrir og greip spyrnu Whiteheads. Tíu mínútum síðar var aft- ur dæmd vítaspyrna en þá hinum megin á vellinum. Danny Higgin- botham, varnarmaður Sunderland, handlék þá knöttinn innan teigs og fékk að launum gula spjaldið. Gíf- urlega ódýr gjöf frá Higginbotham til Blackburn. Benni McCarthy lét ekki bjóða sér vítaspyrnuna tvisvar og kom sínum mönnum yfir, 1-0. Eftir markið færðist mikil harka í leikinn og litu fjögur gul spjöld dagsins ljóst á næstu fimmtán mín- útum. Tvö af þessum gulu spjöld- um fékk hinn annars dagfarsprúði Dwight Yorke. Á 65. mfnútu fékk hann gult spjald fyrir brot á hinum unga framherja Blackburn, Matt Derbyshire, og aðeins sex mínútum síðar var hann sendur í sturtu með tvö gul spjöld á bakinu eftir annað brot, nú á David Dunn. Marki undir og manni færri var fjallið of bratt fyrir Sunderland að klífa. Blackburn hélt boltanum vel og leyfði Sunderland lítið að fá að vera með. Færin voru ekki mörg og næst komst Blackburn því að bæta við þegar Daryl Murphy spyrnti knettinum næstum í eigið net. Sig- urinn skilaði Blackburn ekki sæti ofar í töflunni en engu að síður mikilvægum stigum til að nálgast liðin í Evrópubaráttunni. tomas@dv.is Öllum ráöum beitt Ryan Nelsen varnarmaður Blackburn beitir hér öllum ráðum til að halda Kenwyne Jones frá boltanum MYNDI EKKI SKIPTA A GERR- ARD OG TORRES FYRIR NEINN Þegar Rafael Benítez var spurður á heimasíðu Liverpool hvort hann myndi vilja skipta Steven Gerrard eða FernandoTorres út fyrir einhverja leikmenn svaraði hann hátt og snjallt nei. Hann sagði að það kæmi ekki til greina að skipta þeim út fyrir nokkurn mann. Hann sagði þá báða vera heims- klassaleikmenn og trygga Liverpool og það skipti máli. Gerrard ogTorres hafa verið burðarásar Liverpool-liðsins það sem af ertímabilinu og hafa skorað samtals 27 mörk það sem af er. HUNTFERHVERGI Tilboði Sunderland í írska vinnuhest- inn hjá Reading, Stephen Hunt, var hafnað um leið og það barst. Roy Keane bauð 2,5 milljónir punda í leikmanninn sem var neitað strax og hinn einkargeðþekki knattspyrnu- stjóri Reading, Steve Coppel, var mjög ósátturvið tilraun Sunderland-manna. Hann sagði að það kæmi ekki til greina að Hunt yrði seldur enda væri hann allt það sem Reading stendur fyrir. Coppel sagðist líka þreyttur á nútímaviðskiptaháttum, að menn geti sent tilboð hingað og þangað. Coppel vill fara gömlu leiðina þar sem menn hringja í hver annan og ræða málin áðuren lengra erfarið. PORTSMOUTH VANTAR LEIKMENN Portsmouth er það enska lið sem missirflesta leikmenn á Afríkumótið eða fimm talsins. Harry Redknapp sárvantarnú menn en þegar þessirleikmenn fara verður hann einungis með fjórtán leikfæra menn í sínum hópi.„Ég verð að fá nokkra leikmenn einhvers staðar frá. Ég er að leita að leikmönnum til að fá að láni ef við getum fundið einhverja og kannski nokkra án greiðslu," sagði Redknapp sem veit um nokkra leikmenn sem hann vill fá.„Það eru nokkrir leikmenn sem ég veit um sem myndu henta okkur mjög vel ef við gætum fengið þá." URSLITÍ ENSKA Newcastle - Manchester City 0-2 0-1 (38.)Elano, 0-2 (77.) Femandez Liverpool -Wigan 1-1 1-0 (49.) Torres, 1-1 (79) Brambell Bolton-Derby 1-0 1-0 (90.) Stelios Blackburn - Sunderland 1 -0 1-0 (56.) McCarthy Staöan Lið L U J T Mörk St. 1. Arsenal 21 15 5 1 42:16 50 2. Man.Utd. 21 15 3 3 38:11 48 3. Chelsea 21 13 5 3 33:16 44 4. Man.City 21 11 6 4 29:22 39 5.Liverpool 20 10 8 2 34:13 38 6. Everton 21 11 3 7 37:22 36 7. Aston Villa 21 10 6 5 37:27 36 8. Portsmouth 21 9 7 5 31:20 34 9. Blackburn 21 9 6 6 28:28 33 lO.WestHam 20 8 5 7 25:19 29 II.Newcastle 20 7 5 8 27:33 26 12.Tottenham 21 6 6 9 42:38 24 13. Reading 21 6 4 11 29:44 22 14. Middlesb. 21 5 5 11 18:35 20 15. Bolton 21 5 5 11 23:32 20 ló.Birmingh. 21 5 4 12 22:32 19 17. Wigan 20 4 5 12 21:36 17 18. Sunderl. 21 4 5 12 20:40 17 19. Fulham 21 2 9 10 22:37 15 20. Derby 21 1 4 16 10:46 7 Markahæstu leikmenn: 1 Crlstiano Ronaldo Man Utd 13 2 Emmanuel Adebayor Arsenal 12 3 Roque Santa Cruz Blackburn 10 3 Robbie Keane Tottenham 10 3 Nicolas Anelka Bolton 10 6 FernandoTorres Liverpool 9 6 Benjani Mwaruwari Portsmouth 9 6 Ayegbeni Yakubu Everton 9 9CarlosTevez Man Utd 8 9 Dimitar Berbatov Tottenham 8 9 Dave Kitson Reading 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.