Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2008, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2008, Blaðsíða 32
Litlar samlokur 399 kr. + lítid gosgias 100 kr. = 499 FRÉTTASKOT 51 2 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 ■ DAGBLAÐIÐ VfSIR STOFNAÐ 1910 Sextán áríkerfinu Skaðabótamál 53 ára karlmanns á hendur íslandsbanka var tek- ið fyrir í Héraðsdómi Reykjavík- ur í gær. Bankinn keyrði manninn í ótímabært gjaldþrot árið 1992. Bankinn hafði keypt fasteign hans á Akranesi á uppboði fyrir tölu- vert lægri upphæð en markaðs- virði hússins sagði til um. í kjölfarið gerði bankinn manninn gjaldþrota á grundvelli eftirstöðva skuld- anna. Maðurinn höfðaði mál á þeim grundvelli að tekið yrði tillit ^ til markaðsvirðis hússins á móti skuldunum og var það viðurkennt. Þá voru engar skuldir til staðar sem voru grundvöllur gjaldþrotsins. Maðurinn fer fram á tugmilljónir í skaðabætur. Linda selur Sporthúsið Linda Pétursdóttir og með- eigendur hennar að Icelandic Spa and Fitness hafa selt Sporthúsið í Kópavogi. Linda stóð að stofn- un Sporthússins árið 2002, en nú mun hún einbeita sér að rekstri annarra stöðva. „Baðhúsið, Þrek- húsið og stöðvarnar fyrir austan munu halda fullum dampi. Við gerum þetta til að létta á fyrir- tækinu og stefnum á að Baðhúsið verði lúxusstöð fyrir mitt ár," segir Linda. Nýir eigendur Sporthússins eru bræðurnir Þröstur Jón og Jón Ingi Sigurðssynir. Þeir segjast ætla að endurnýja tækjakostinn í Sporthúsinu strax um miðjan . mánuðinn. ><k Ólánsfley eður ei Stór hluti farþega fystiskipsins Queen Victoria situr á klósettinu vegna heiftarlegrar magakveisu sem heijar á hátt í áttatíu af farþegunum, ^ að sögn Daily Telegraph. Samkvæmt gamalli hjátrú boðar það ógæfu ef kampavínsflaskan sem notuð er þegar skip er nefnt brotnar ekki og það var einmitt tilfellið þegar greif- ynjan af Cornwall nefndi skipið. N1 deilan um sjóðina! Félagar í starfsmannafélagi ESSO höfnuðu því að sameinast starfsmannafélagi Nl: VILJAEKKIDEILAAUÐNUM MEÐ ÖÐRU STARFSFÓLKI TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðqmadur skrifar: Fyrrverandi starfsmenn Oh'ufélags- ins, umboðsaðila ESSO á íslandi, sem margir hverjir starfa hjá N1 í dag, eru flestír ósáttir við hugmyndir um að færa sjóð gamla starfsmannafélagsins undir hið nýja starfsmannafélag Nl. Tillaga þess efnis var felld á aðalfundi félagsins fyrir jól. Peningastaða sjóðs hins gamla starfsmannafélags er mjög góð ásamt því að það á fjölda fasteigna. Eftir því sem DV kemst næst geymir sjóðurinn hundruð milljóna króna ásamt fjölda fasteigna, meðal annars sumarhúsa- byggð við Laugarvatn. Lagt var til að sjóðurinn rynni óskiptur inn í hið nýja starfsmannafélag en á aðalfundi 17. desember var því hafnað. ESSO kvatt Málað var yfir merki ESSO í apríl. Þá var mikið fé I starfsmannasjóði sem félagar vilja halda fyrir sig. Tillagan felld Hið nýja starfsmannafélag var stofiiað í vor, um það leyti sem hið nýja fyrirtæki, Nl, var stofnað. Stjórnarmenn gamla starfsmannafé- lagsins færðust yfir í hið nýja félag og formaðurinn er sá sami, Magnús Ás- geirsson. Hann vildi sem minnst tjá sig um málið að svo stöddu og von- ast til að það verði afgreitt endan- lega á næsta aðalfúndi félagsins. „Við erum í því að ýta hinu nýja félagi úr vör og eins og málin standa núna hef ég lítíð um þetta að segja. Tillagan var lögð fram og hún var felld. Þetta er fyrst og fremst mál sem þarf að ræða innan félagsins og það verður gert á aðalfundi," segir Magnús. Gæta jafnræðis Þórir Ingþórsson, viðskiptastjóri Nl, staðfestir að hið gamla starfs- mannafélag Olíufélagsins eigi digra sjóði. Aðspurður segir hann óljóst hver ffamvindan verður. „Tillagan var felld þannig að gamli sjóður- inn er í óbreyttri mynd í dag. Þetta er í lausu lofti í dag og ekkert búið að negla niður ennþá," segir Þórir. „Starfsmannafélag ESSO er ofboðs- lega auðugt félag enda margir starfs- menn sem lögðu sitt af mörkum. Það eru því fyrir vikið skiptar skoðanir um hvort sjóðurinn eigi að renna í Vilja sameina félög Félagar í Starfs- mannafélagi ESSO felldu tillögu um að sameinast öðrum starfsmannafélögum N1. hið nýja félag og eðlilega verður að gæta jafnræðis í þessu ferli." Kolbeinn Finnsson, fram- kvæmdastjóri mannauðssviðs Nl, segir málið alfarið í höndum stjórn- armanna starfsmannafélaganna beggja. Ekki náðist í Bjarna Bene- diktsson, stjórnarformann Nl, við vinnslu fréttarinnar. Leitað að Jakobi Fjöldi björgunarsveitarmanna leitaði í gær að Jakobi Hrafni Höskuldssyni, nítján ára pilti sem hafði ekki sést til síðan hann hélt heim á leið af Hótel (slandi á nýársnótt. Björgunarsveitarmenn gengu Elliðaámar, kafarar leituðu hans og þyrla Landhelgisgæslunnar flaug yfir leitarsvæðið. dv-myndAsgeir Jólabækur álíka dýrar og áður þrátt fyrir sjö prósenta skattalækkun: Lítil verðlækkun á bókum Verð á bókum hefur lítið lækkað síðan virðisaukaskattur var færður úr ijórtán prósentum í sjö prósent 1. mars í fyrra. Fyrir jólin máttí sjá sama verð eða örlitla lækkun ffá fyrra ári á ráðlögðu bókaverði. Er þá miðað við sambærilegar bækur höfúnda sem sendu frá sér bækur bæði árin. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að það sé ekki eðlilegt þrátt fyrir mikla verð- bólgu á árinu. „Það er greinilegt að bókaútgefendur eru að taka meira tíl sín," segir Jóhannes og bætir því við að útgefendur séu að reyna að stýra verðinu á einhvern hátt með verð- lagningu sem þeir setja á bækumar. Þetta sé úrelt fyrirbæri. „Boltínn er klárlega hjá útgefendum," segir Jó- hannes. Svipuð verð Leiðbeinandi verð jólabók- anna voru svipuð milli ára þrátt fyrir að virðisaukaskattur hafi lækkað í mars í fyrra. Egill Öm Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Forlagsins, fullyrðir að þeir hafi lækkað verð á öllum bók- um á síðasta ári og var engin undan- tekning. „Það gerir okkur tortryggi- leg þegar verð á bókum virðist ekki lækka, en mér sýnist verð almennt vera lægra en í fyrra. Taka verður tíl greina að það er ekld verið að gefa út sömu bækurnar, erfitt er að bera saman höfunda milli ára og aðeins framleiðslukostnaður getur haft áhrif á verðið. Auk þess ef bækurnar em lengri er dýrara að prenta þær," segir Egill. Hann segir lflca að útgef- endur stjórni engu um hvaða verð er í verslunum því þeir gefi eingöngu út heildsöluverð. Um það segir Jóhann- es að bókabúðir hafi ekki farið eftir leiðbeinandi verði sem Samkeppnis- stofiiun gaf út og benti á að afslætt- ir vom minni en árið áður. Það hefði áhriflíka. Samkvæmt lögum má skjóta upp flugeldum á tímabilinu 27. desember til 6. janúar, þó má ekki skjóta upp flugeldum eftir klukkan tólf á miðnætti nema á nýársnótt. Geir Jón Þórisson, yfirlög- regluþjónn á höfuðborgarsvæð- inu, segir að ekki verði hjá því komist að sprengt sé á nóttinni á þessu tímabili. Alltaf séu ein- hverjir sem fylgja ekki reglunum. „Ég verð sjálfúr var við það að verið sé að sprengja á nóttinni, vaknaði til dæmis í nótt við einn," sagði Geir Jón í gær. Flugeldursprakk íbíl Flugeldur sprakk í aftursæti bfls í Kópavogi. Lögreglan á höfuðborg- arsvæðinu segir ekki ljóst hvort um óhapp eða skemmdarverk sé að ræða en telur lfldegt að það hafi verið vindhraða að kenna. Mikill vindur var þegar áramótin gengu í garð og telur lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu líklegt að hann hafi tekið flugeldinn með sér og hann fokið inn um rúðu á nærliggjandi bfl og sprungið þar. Bfllinn skemmdist töluvert en engin slys urðu á fólki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.