Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2008, Side 7
NÝIFORSTJÓRINN
VERÐURAÐ:
■ Bjóða góðan daginn!
■ Njóta trausts og virðingar
■ Vita hvað forstjóri á að gera
■ Vera meðvitaður um hvað er
að gerast í fyrirtækinu
■ Líta á starfsfólk sem auðlind
■ Vera framsækinn
■ Móta stefnu - aðra en þá að
hanga á forstjórastöðunni eins
og hundurá roði
■ Beita nútímalegum
stjórnunaraðferðum
■ Taka skynsamlegar ákvarðanir
■ Hafa kímnigáfu
■ Ná árangri í starfi
■ Henda kristöllunum!
Afslaturfelagid.com
auðvitað ömurlegt að fá svona utan-
aðkomandi árás á sig. Ég veit hins
vegar að að baki árásunum eru svo
afbrigðilegar hvatir að ég get ekki
látið þetta trufla mig mikið. Ég
er ekká á barmi þess að brotna
undan þessu en að mér ei
mjög ómaklega vegið. Vissu-
lega er þarna verið að reyna að
eyðileggja mitt mannorð og
það særir að sjálfsögðu.
mikil ósköp," segir
Steinþór.
Slæmt and-
rúmsloft
í könnun VR
um starfsánægju
starfsmanna að-
ildarfélaga fyr- 1
ir árið 2007 kom
SS illa út. Fyrirtækið
er í næstneðsta sætí af
þeim 117 fyrirtækjum sem
tóku þátt í könnuninni. Trúverðug-
leiki stjórnenda fyrirtækisins bíður
einnig hnekki þar sem hann mæld-
ist aðeins 8 af 100 mögulegum.
Steinþór er ekki ánægður með
þessa útkomu hjá fyrirtækinu. Hann
telur óánægjuna ekki síst hafa birst
hjá söludeild fyrirtækisins og and-
rúmsloftið i kringum fyrrverandi
markaðs- og sölustjóra, Friðrik Ey-
steinsson. „Andrúmsloftíð í sölu-
deildinni var ekki gott og það tengd-
ist auðvitað stjórnun deildarinnar.
Við höfum verið að vinna í því að
laga andrúmsloftíð í deildinni und-
anfarið," segir Steinþór.
„Ég get ekki verið með neinar
„Það liggur ekkert
fyrir um málarekstur
og óvíst hvort mað-
ur hafi áhuga á slíku
gagnvart einhverjum
sem á svona bágt."
getgátur um það hvort þessi fyrrver-
andi yfirmaður standi að baki síð-
unni. Ég tel mig vita nákvæmlega
hver þetta er og nú þarf að sanna
það eftir tiltækum leiðum. Auðvitað
erum við að rekja þessa slóð, bæði
með skoðun innanhúss og með ut-
anaðkomandi aðstoð."
Líkur á kæru
Steinþór segist ekki ætla að láta
þessa slaingilegu herferð trufla sig
of mikið. Aðspurður útilokar hann
að stuðningsyfirlýsingar hafi ver-
ið píndar fram. „Skaðinn er í
raun skeður og það er virki-
lega neikvætt að reynt sé
að láta þetta líta út sem
verknaður núver-
andi starfsfólks. Ég
sannfærður um að
svo sé ekki," segir
Steinþór. „Ég á ekki
í neinum vandræðum
með að standa við mín
/erk. f atvinnugreininni
íafa verið miklir erfið-
.eikar en Sláturfélagið
stendur gríðarlega vel."
Steinþór staðfestír að
lögregla aðstoði við rann-
sókn málsins og vonast
hann til þess að því ljúki sem
fyrst. Hann útilokar ekki að höfðað
verði meiðyrðamál vegna skrifanna
á vefsvæðinu. „Við viljum bara að
þetta hætti. Að sjálfsögðu höfum við
leitað til lögfræðings vegna máls-
ins og erum við að kanna lagalega
stöðu. Það þarf að meta vandlega
hvaða hlutír hafa komið þarna fram
og við hvaða lög það varðar. Mér er
að sjálfsögðu annt um mitt mann-
orð. Það liggur ekkert fyrir um mála-
rekstur og óvíst hvort maður hafi
áhuga á slíku gagnvart einhverjum
sem á svona bágt," segir Steinþór.
Við vinnslu fréttarinnar var
ítrekað reynt að ná í Friðrik Ey-
steinsson, fyrrverandi markaðs- og
sölustjóra SS, en án árangurs.
Vaktstjóri Vegamóta biöst afsökunar á meintu háttalagi dyravarðar:
Eru ekki rasistar
„Ég get ekki útilokað að þetta hafi
gerst og biðst innilega afsökunar ef
einhver viðskiptavinur okkar hefur
lent í svona uppákomu. Það er alls
ekki stefna staðarins að fæla útlend-
inga ffá eða hamla þeim inngöngu,"
segir Fannar Alexander Arason,
vaktstjóri á skemmtístaðnum Vega-
mótum.
Hluti viðskiptavina Vegamóta hef-
ur vaxandi áhyggjur af fordómum í
garð útlendinga á staðnum.
Einn gestanna hafði samband
við DV og lýstí upplifun sinni um
nýliðna helgi. Hann hafði ætlað sér
að heimsækja Vegamót í slagtogi við
þeldökkan félaga sinn. Er viðkom-
andi kom • að innganginum vísaði
dyravörður staðarins honum ffá og
gaf þá skýringu að hann væri ekki
velkominn þar sem hann væri klædd-
ur eins og Pólveiji. Að þessu sinni var
viðkomandi klæddur í gallabuxur
og hettupeysu. Ekki tók betra við
er gesturinn gerði aðra tílraun tíl
inngöngu, þá svaraði dyravörður því
til að hann væri velkominn inn á stað-
inn en ekki negrinn vinur hans.
Fannar er verulega hissa á því að
heyra slíka ffásögn viðskiptavinar.
Hann segir alla velkomna á Vegamót
og ítrekar að stefna staðarins sé alls
ekki að fæla ákveðna hópa ff á.
„Ég kannast ekki við nein svona
dæmi enda gefum við okkur ekki
út fýrir að vera rasistar. Það eru allir
að sjálfsögðu velkomnir tíl okkar.
Gaman væri ef viðkomandi gætí
leitað tíl okkar því við viljum ræða við
þann starfsmann okkar, viðkomandi
dyravörð, sem kom svona fram því
það hefur hann tekið algjörlega upp
hjá sjálfum sér," segir Fannar.
trausti@dv.is
**?■
Vísað frá? Frásagnir
viðskiptavina Vegamóta gefa
til kynna að útlendingum sé
markvisst hömluð innganga.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
bladamadur skrifar: trausti@dv.is
Innanhússrannsókn Sláturfélags
Suðurlands, SS, stendur yfir vegna
ásakana á hendur forstjóra fyrirtæk-
isins, Steinþóri Skúlasyni. Hann er
sakaður um forneskjulega stjórn-
unarhætti sem jafnt og þétt séu að
eyðileggja allan starfsanda innan
félagsins. Þá hefur einnig verið leit-
að tíl bæði lögreglu og lögmanna
vegna málsins.
Óánægðir og ónafngreindir
starfsmenn hafa komið á sérstöku
vefsvæði, slaturfelagid.com, þar sem
stjórnunarháttum forstjóra SS er
mótmælt harðlega og honum kennt
um hina miklu óánægju sem mælist
meðal starfsmanna. Yfirskrift vef-
síðunnar er: Látum ekki slátra félag-
inu! Fljótlega eftir að vefsíðan komst
í umræðuna kom fr am tilkynning frá
söludeild fyrirtækisins þar sem öll-
um tengslum við síðuna var algjör-
lega vísað á bug. Skömmu síðar var
sett inn færsla á síðuna þar sem til-
kynningin er sögð hafa verið knúin
fram af stjórnendum og starfsmenn
píndir til að skrifa undir.
Talsmenn SS hafa hins vegar
svarað þessum ásökunum fullum
hálsi og sagt fyrrverandi starfsmenn
reyna að koma höggi á fýrirtækið og
um leið forstjórann.
Vegið úr launsátri
„Að sjálfsögðu særir þetta mig
því hér er ekkert annað en lygavefur
á ferðinni og ráðist á mannorð mitt.
Að mínu mati er þetta vel á mörk-
unum að kallast níð og óhróður sem
beinist að mér persónulega. Þetta
lítur út eins og haturssíður sem
finnast víða erlendis. Ég vorkenni
eiginlega þeim sem stendur þarna
að baki. Lygavefurinn er greinilega
skáldaður af mjög bitrum einstakl-
ingi sem hefur ekkert betra að gera
við líf sitt," segir Steinþór í samtali
við DV. Aðspurður telur Steinþór sig
vita hvaða starfsmaður stendur fyrir
síðunni og segist vorkenna honum
sárlega. Hann undrast nafnlausar
árásirnar. „Það er leiðinlegt að þurfa
að eyða tíma í svona sora því þetta
er ekkert annað. Mér þykir nafn-
leyndin sorgleg þar sem vegið er úr
launsátri. Það er eðlilega þreytandi
að þurfa að standa í þessu og það er
Úttekt að Ijúka
Ríkisendurskoðun vinnur
!“‘l
Lt»i».
hörðum höndum að því að ljúka
stjórnsýslu-
úttekt sinni á
vinnubrögðum
Þróunarfélags
Keflavíkurflug-
vallar við sölu
á ríkiseign-
um á varn-
arliðssvæðinu. Áhersla er lögð
á að leggja mat á söluaðferðir
félagsins við sölu 1.660 íbúða til
fyrirtækisins Háskólavalla ehf.
og sölu 22 skemma tíl fýrirtæks-
ins Base ehf. Forsvarsmenn Þró-
unarfélagsins og bæjarfulltrúar
Reykjanesbæjar hafa verið sagð-
ir vanhæfir í málinu og bent hef-
ur verið á rík tengsl kaupenda
við Sjálfstæðisflokkinn. í úttekt
Ríkisendurskoðunar verður
tekin afstaða til þessa vanhæfis.
Vonast er tíl þess að henni ljúki
í vikunni og niðurstöður verði
ljósar fyrir helgi.
Sár forstjóri
Steinþór vorkennir starfsmanninum
sem stendurað baki haturssíðunni f
hans garð. Hann telur sig vita hver
þetta er og útilokar ekki málaferli.
PV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR20. FEBRÚAR 2008 7,
Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, SS, er sagður vera að slátra fyrirtækinu með harð-
neskjulegum stjórnunarstíl sínum. Því er haldið fram á sérstöku vefsvæði, slaturfelagid.com, sem stofnað
var til höfuðs forstjóranum. Særandi lygavefur þar sem ráðist er að mannorði mínu, segir Steinþór forstjóri.
SS kom næstverst út í könnun VR á starfsánægju.
SSSTJ0RIVER SIG