Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2008, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008
Heimili DV
HEIMILISRÁÐ
tieimild: www.qoreni
BRÁÐÞROSKA BANANAR
Hvað gerir maður - eða kona -
þegar hann er með körfu fulla af
hörðum, grænum banönum og
ætlunin er að baka gómsæta
bananatertu fyrir afmælisveisl-
una á morgun. Allt fyrir bí. Engin
ER SVEPPURINN FERSKUR?
Það er auðvelt að sjá hvort
sveppurerferskur. Líttu á
hattinn, hann ætti að vera
lokaður þannig að tálknin undir
honum sjáist ekki. Ræturnar ættu
helst enn að vera fastar á því að
rótin er náttúruleg rotvörn; hún
lengir líf sveppsins og heldur
honum stinnum. Svo gætirðu
vitaskuld tínt þá sjálf/-ur. Frá maí
til nóvember má finna góða
garðsveppi á garðblettuni sem
borið hefur verið á. Villisveppir
finnast á beitarsvæðum hesta og
annarra húsdýra, oft margir
saman í beði, frá júlí til október.
En til að gæta alls öryggis ættir
þú að hafa góða bók um sveppi
með í för.
> ■ U—
- -
mr&r :
MONSANTO: HÚS FRAMTÍÐARINN
AR Var byqgt i Disneylandi árið 1957.
MÓÐINS Þótt margt sé hallærislegt
i húsinu er margt líka mjög flott.
Árið 1957 voru sérfræðingarfengnir til þess að reisa hús
framtíðarinnar í Disneylandi. Húsið átti að vera frá árinu
1986 og átti að innihalda ýmsar tækninýjungar sem
mannkynið átti að vera búið að tileinka sér. Meðal þeirra
voru örbylgjuofn, sjálfvirkir pottar, gammageislar og
vélknúin borð.
Árið 1957 var Monsanto: Hús framtíðarinn-
ar reist í Disneylandi í Kaliforníu. Húsið átti að
gefa gestum skemmtigarðsins innsýn inn í fram-
tíðina, nánar tiltekið árið 1986. í húsinu var að
finna ýmsar tækninýjungar sem vísindamenn
og sérfræðingar voru vissir um að mannkynið
væri búið að finna upp og tileinka sér á næstu 30
árum. Margir af spádómum sérfræðinga reynd-
ust réttir, en þeir spáðu réttilega til um græjur
á borð við örbylgjuofninn, sjónvarpsfjarstýring-
una og dyrasímann. En hins vegar skjátlaðist
þeim um margt. Var það hald sérfræðingana að
árið 1986 myndu kælar og frystar vera úr sög-
unni því fólk myndi nýta sér gammageisla til
þess að viðhalda ferskleika hráefna. Einnig að el-
dahellur myndu heyra sögunni til og þess í stað
myndu rafmagnspönnur og -pottar sem myndu
hita sig sjálf sjá um allt saman. Borð myndu rísa
úr gólfum, þök yrðu þakin álpappír til að end-
urkasta sólargeislum og allar dyr væru rafræn-
ar. Þá myndi húsið vera samansett af plasthylkj-
um og göngum, sturtur bæði hreinsa mann og
þurrka í leiðinni og böð hreinsa sig sjálf. Nán-
ast allt efni yrði gert úr nylon, hvort sem það eru
föt eða sængur. Og að lokum myndi karlmanns-
tískan draga stíl sinn af ofurmenninu og hugs-
anlega þáttunum um Jetson-fjölskylduna. Sér-
fræðingar virðast aðeins hafa farið fram úr sér
varðandi Hús ffamtíðarinnar, sem var fjarlægt
úr garðinum ári síðar. I ár á að reisa húsið aft-
ur og hafa verkfræðingar, uppfinningamenn og
aðrir slíkir verið fengnir til þess að skaffa svip-
aðar hugmyndir um hve langt mannkynið verði
komið eftir 30 ár. Fyrirtækin sem koma nálægt
húsinu eru Microsoft Corp., Hewlett-Packard
Co., hugbúnaðarframleiðandinn LifeWare og
húsasmíðarisinn Taylor Morrison.
dori@dv.is
bananaterta - nema þú flýtir
þroskaferlinu. Það geturðu gert
með því að tuska bananana
aðeins til, til dæmis í röku
viskustykki. Þurfirðu marga
banana geturðu sett þá í stóran
plastpoka og barið pokanum létt
í borðbrún. Innan skamms verða
þeir fullveðja.
RYKSUGAÐ MEÐ NÆLONSOKKI
Hvað í ósköpunum koma
nælonsokkar þrifum við? Svarið
er óvænt og einfalt. Ef þú vilt
þrífa skúffurnar
án þess að
fjarlægja
borðbúnaðinn
og hvað annað
sem þú geymir
í þeim skaltu
setja nælon-
sokkframan á
ryksugurörið
þitt og láta ryksuguna um
afganginn. Nælonsokkurinn
tryggir að ekkert hverfur nema
rykið. Sama aðferð ætti að henta
vel til að þrífa hillur með
leikföngum í og öðru því um líku.
Nó/r/
Snagar & fatahengi í úrvali
www.nora.is
Dalvegil6a Kóp. S: 517 7727
opið: má-fö. 12-18, lau 11-16
franskt ol ró
Það eru engin takmörk
Á síðustu árum hefur aukist mjög að fólk láti hanna
falleg sandblásin mynstur á gler í glugga til að lífga
upp á heimilið. Þá er aðallega um að ræða ýmiss konar
útskurð í sandblástursfilmu, en hún gefur mjög svipaða
áferð og sandblásið gler. Til dæmis er hægt að nota
sandblástursfilmu til að ekki sjáist inn um óheppilega
staðsetta baðherbergis- eða bflskúrsglugga. Filman lokar
vel á útsýni inn og út, en hleypir samt birtu í gegn. Þórður
Bjarnason, hönnunarráðgjafi hjá skilti.is, segirýmiss konar
beiðnir berast þeim. „Það sem er vinsælast er án efa að gera
nöfn, húsnúmer og föst form í glugga en það er líka mikið
um ýmiss konar krúsidúllur. Úrvalið eykst með hverju
árinu og það er óhætt að segja að það eru engin takmörk
þegar kemur að sandblástursfilmu. Það er hægt að skera
allt sem hugurinn girnist í sandblástursfilmu, ekki bara
nöfn íbúa, húsnúmer og götuheiti, heldur líka fallega grafík
og mynstur. Einnig kemur afar vel út að prenta svarthvítar
myndir á sandblástursfilmu," segir Þórður fýrir þá sem
vilja vera frumlegir. Þetta þarf ekki að vera mikið mál því
hægt er að senda þeim félögum hjá skilti.is tölvupóst með
stífum málum af þeim gluggum sem viðkomandi langar að
fegra með sandblæstri og fá hönnunarráðgjöf og tilboð.
kolbrun@dv.is