Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2008, Blaðsíða 18
I# MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008
Sport PV
ÍÞRÓTTAMOLAR
SVERRIR TIL SUNDSVALL
Miðvörðurinn SverrirGarðarsson er loks
farinn utan en gengið var frá
félagaskiptum hans til sænska
úrvalsdeildarliðsins Sundsvall.„Þetta eru
góð kaup fyrir
félagið. Sverrir er
stórogsterkur
leikmaður sem
eykur
keppnisandann (
liðinu til muna"
sagði Cain Dotson
íþrjóttastjóri
Sundsvall, á
heimasíðu
félagsins. Kynna átti Sverri sem
leikmann Sundsvall fyrir helgi en
blaðamannafundi sem var boðaður (
tilefni þess var aflýst. Með Sundsvall
leikur annar Islendingur, Ari Freyr
Skúlason, sem færði sig úm set frá
Hacken eftirtímabilið.
ANDRISLAPPVIÐ BANN
„Ég er ánægður með þetta," sagði Andri
Berg Haraldsson, handboltamaður úr
Fram, kátur í gær en þá kom (Ijós á
aganefndarfundi HSÍ að hann var ekki
dæmdur (leikbann. Andri Berg fékk
rautt spjald gegn Akureyri fyrir engar
sakir og var að vonum ósáttur. Upp
hófst mikil fjölmiðlaumfjöllun sem
virkaði þvl Andri
fékk spjaldið
afturkallað.„Þeir
sem sáu
myndbandið sáu
að þetta var
rangt þannig að
ég verð með á
móti Stjörnunni
og Haukum sem
eru næstu tveir
leikir. Það verður bara að koma í Ijós
hvort það verði eitthvað fylgst með mér.
Ég er ekki vanur að gera eitthvað
ólöglegt þannig að það skiptir engu
máli. Ég er alveg heiðarlegur og hef
alltafveriö." Nikola Jankovic, leikmaður
Akureyrar, sá sem kýldi Andra, fékk hins
vegartveggja leikja bann.
1
ENGIN KÆRA OG lR IÚRSLIT
Samkvæmt KSl liggur engin kæra fyrir (
kjölfar leiks KR og Vals í Reykjavíkur-
mótinu (knattspyrnu. KR-ingar sigruðu (
leiknum 4-0 en gleymdu að setja nafn
Guðmundar Péturssonar á leikskýrslu.
Valsmenn ætla hins vegar ekkert að
aðhafast í málinu„Ég hef ekki sent inn
neina formlega kvörtun eða kæru. Ég á
ekki von á þvl að við munum gera
nokkuð meira (þessu. Það eru engin for-
dæmi fyrir því að leikur tapist á þessu
tækniatriði. Hins vegar er athyglisvert
að lið sé ólöglegt í þremur leikjum af
fjórum (Reykjavíkurmóti," segir Óttar
Edwaldsson, yfirmaður afrekssviðs Vals.
Því er Ijóst að úrslitaleikur Reykjavíkur-
mótsins í knattspyrnu verður á milli
Fram og lR.
I DAG
Heimur úrvalsdeildarinnar .Nýr þáttur
þar sem enska úrvalsdeildin er skoðuð
frá ýmsum óvæntum hliðum. Leikmenn
heimsóttir, gömlu stjörnurnar leitaðar
uppi og svipmyndir af æðinu fyrir enska
boltanum um heim allan.
Gömlu brýnin leika listir sínar, stjörnur á
borð við Matt LeTissier, Glen Hoddle,
lan Wright, Paul Gascoigne, Lee Sharpe,
Jan Mölby og Peter Beardsley. UK
Masters cup er orðin griðarlega vinsæl
mótaröð en þar taka þátt 32 lið skipuð
leikmönnum sem gerðu garðinn
frægan á árum áður í ensku
úrvalsdeildinni.
GÆTUM UNNIÐ ALLA í DAG
GAMLA
FRETTIN
Gamla fréttin að þessu
sinni er af leik Víkings og
ÍBV í bikarúrslitum í hand
knattleik kvenna árið
1994. Halla Margrét
Helgadóttir leikmaður
Víkings rifjar hér upp
leikinn.
Gamla fréttin að þessu sinni er af
leik Víkings og IBV í úrslitum bik-
arkeppninnar árið 1994. Halla Mar-
grét Helgadóttir fór mikinn í leikn-
um og skoraði fimm mörk eða
rúman fjórðung marka Víkings sem
vann leikinn 19-18. DV sló á þráð-
inn til Höllu Margrétar sem ætlaði
ekki að trúa að blaðamaður væri á
línunni, sannfærð um að um vinnu-
grín væri að ræða. Halla sannfærðist
þó að lokum og spjallaði um ieikinn
sem að hennar sögn var leiðinlegur.
„Hann er nú ekkert mjög sterkur í
minningunni þessi leikur. Við unn-
um bikarinn tvisvar á þessum tíma
og þetta var í síðara skiptið. Leikur-
inn var ekki góður en hann var mjög
jafn og spennandi fyrir áhorfendur.
Það er alltaf gaman að vinna bik-
ar en það sem var sérstakt við þenn-
an leik var að hann var einn afþeim
fáu sem voru leiknir í Austurbergi,"
segir Ilalla María en hefð er íyrir
því að bikarúrslitaleikir séu spilað-
ir í Laugardalshöllinni. „Þetta var
algjör ströglleikur og ÍBV var með
gott lið. Judith, Ingibjörg og Andrea
voru sterkar," segir Halla.
„Við vorum með mjög gott lið
á þessum tíma og þetta sama ár
unnum við íslandsmeistaratitilinn
þriðja árið í röð en síðan ekki
söguna meir," segir Halla sem .A
hætti að leika handknatt- Æf
leik árið 2002 og ein- f
beitir sér að uppeldi
þriggja barna. «£■"'
Þetta var mjög
skemmtilegur tími W
og við náðum upp «
Rosalega erfitt
-í skemmtilegum
kjarna út frá 71 ár-
ganginum og unn-
um marga titla. I liðinu
K voru margir góðir leikmenn
v auk þjálfara á borð við
Gústaf Björnsson
og Theadór Guð-
Við
myndum
lcga
SB taku
þessar stelpur sem eru að spila í dag
í bakaríið, eigum við ekki að segja
það," segir Halla og hlær við.
„Ég hef að vísu lítið séð af Fram
sem er á toppnum en svo virðist
sem þar sé að koma upp samheld-
inn hópur stelpna sem spila með
hjartanu. Það skiptir miklu að vera
ekki alltaf að þessari liðsflokkun.
Við í 71. árgangnum unnum mikið
í yngri flokkunum og við þekktum
hver aðra vel," segir Halla.
Eftir 1994 hættu margir leik-
menn og eftir það tók að halla und-
an fæti hjá liðinu og nú er svo komið
að Víkingur er ekki með kvennalið
í handbolta. „Því miður datt botn-
in úr þessu hjá Víkingi og vonandi
verður ráðin bót þar á," segir Halla.
Gummersbach og Ciudad Real mætast í kvöld
í kvöld mætast Gummersbach og
Ciudad Real í meistaradeild Evrópu
í handbolta. Með Gummersbach
leika þrír íslendingar. Þeir
Guðjón Valur Sigurðsson, Róbert
Gunnarsson, Sverre Jacobsson
og þjálfarinn auðvitað Alfreð
Gíslason. Með Ciudad Real leikur
besti handknattleiksmaður íslands,
Ólafur Stefánsson. Ólafur hittir
því fyrir gamla þjálfarann sinn
frá Magdeburg og félaga sína úr
landsliðinu.
Alfreð Gíslason hlakkar til
leiksins en býst ekki við sigri. „Það
verður gaman að fá Óla í heimsókn.
Petar Metlecic sem er í sömu stöðu
og Óli er meiddur þannig að hann
á líklega eftir að spila allan leikinn.
Hann er nú líka búinn að spila miklu
betur en hann hvort eð er þannig að
það er ekkert verra fyrir hann.
Ásamt Kiel er Ciudad besta lið
í heimi og það verður gaman fyrir
mína stráka að mæta þeim. Þegar ég
er í meiðslavandræðum er ég með
mjög þunnan hóp en Ciudad glímir
ekki við þannig vandamál. Þeir segj-
ast vera í einhverjum vandamálum
með rétthentu skyttustöðuna sína
en eru samt með fjóra heimsklassa-
leikmenn þar. Þetta er alveg rosa-
legt vandamál hjá þeim sem ég væri
alveg til í að eiga við," sagði Alfreð
þegar DV talaði við hann um leik-
inn í gær.
Gummersbach er sem stendur í
6. sæti þýsku deildarinnar og því úr
meistaradeildarsæti eins og er. „Ég
er nú farinn að leggja mun meiri
áherslu á deildina úr því sem komið
er og legg í raun mun meira upp úr
leiknum gegn Balingen um helgina.
Það fer aðeins eitt lið upp úr þess-
um riðli í meistaradeildinni og þótt
við myndum vinna Ciudad í kvöld
er vonin samt veik. Sigur breytir í
raun afstöðu minni ekki. Ef Ciudad
tapar þarf það bara að klára Mont-
pellier, Gorenje og svo okkur heima.
Það er nokkuð sem þeir eiga að fara
létt með. Aðalatriðið er að komast í
meistaradeildina aftur að ári því þá
verðum við með miklu betra lið,"
segir Alfreð Gíslason.
tomas@dv.is
Alltaf að
Kunnugleg stelling
hjá Alfreð Gíslasyni.
VIÐAR GUÐJONSSON
blcidamaöur skrifar: