Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2008, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008
Heimili DV
Verslunin Epal býður upp á húsgögn eftir íslenska hönnuði:
HEIMSÞEKKT
(SLENSK HÖNNUN
„Það hefur alltaf verið eitthvað af ís-
lenskri hönnun hjá okkur," segir Eyj-
ólfur Pálsson, húsgagnasmiður og
eigandi verslunarinnar Epal. „Eftir
fyrstu þrjú til fjögur árin höfum við
lagt upp úr því að vera með íslenska
hönnun," segir Eyjólfur en hann
opnaði verslunina árið 1975. „Við
AMESEINN Nýjasta
hönnunin frá Erlu Sólveigu.
erum alltaf vakandi fyrir íslenskri
hönnun sem verið er að framleiða
erlendis og reynum þá að ná henni."
Eyjólfur segir að hönnunin verði þó
að uppfylla kröfur verslunarinnar
um gæði.
Meðal þeirra íslensku hönnuða
sem Epal býður upp á verk eftir er
Katrín Pétursdóttir. „Katrín gerði
meðal annars Tréð, eða Tree, sem
orðið heimsþekkt hönnun og gríð-
arlega vinsæl víða," segir Eyjólfur en
Katrín hannaði Tréð ásamt Michael
Young. „Þetta er svo einföld og vina-
leg hönnun. Hönnun sem líkir eftir
þekktu formi eins og tré eða kúlu er
líkleg til þess að ná vinsældum því
fólk þekkir formið aftur."
Epal er einnig með hönnun eftir
Erlu Sólveigu Óskarsdóttur. „Nýjasti
hluturinn frá Erlu er stólinn Ames
einn sem er stórglæsilegur. Bláa
lónið var meðal annars að kaupa
stólinn í nýja salinn hjá sér," og seg-
ir Eyjólfur að stærsti framleiðandi
Erlu sé væntanlegur til hans í dag.
„Hann heitir Ivan Hansen og fram-
leiðir allt eftir Erlu."
Epal býður upp á verk eftir marga
fleiri hönnuði svo sem Pétur B.
Lúthersson, Sigurð Gústafsson og
Ólöfu Jakobínu Ernudóttur. „Síðan
er Sigríður Heimisdóttir einnig með
hillur hérna svo fleira sé nefnt," seg-
ir Eyjólfur að lokum og hvetur fólk
til þess að koma og kynna sér hönn-
unina nánar.
asgeir@dv.is
TRÉ KATRÍN-
AR Erorðin
heimsþekkt
hönnun að
sögn Eyjólfs.
TAKE AWAY Lampi
eftir Sigurð Gústafsson.
Við höfum ýmislegt til að fegra garðinn, pallinn, sumarbústaðinn og heimilið.
styttur, gosbrunnar, vindhanar, dvergar, fuglar, blóm og allskonar gjafavörur.
Þið eruð alltaf velkomin til okkar.
Sláið á þráðinn. Síminn okkar er: 487 5470.
v/ Suðurlandsveg 850 Hella.