Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2008, Síða 23
DV Umræða
MIÐVIKUDAGUR20. FEBRÚAR 2008 23
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRi: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
JónTrausti Reynisson og ReynirTraustason
FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson
FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viötöl blaösins eru hljóörituö.
AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010,
ÁSKRIFTARSiMI 512 7080, AUGLÝSINGAR S12 70 40.
SANDKORN
■ Elín Hirst sagði þá frétt í kvöld-
fréttum Sjónvarps á sunnudags-
kvöld að Islendingur í New York
væri farinn að selja þarlend-
um íslenskt skyr. Þessi frétt er
mörgum lesendum DV að góðu
kunn enda sagði DV frá þessu 4.
september á síðasta ári. Þá kom
einnig fram að íslenskir útrásar-
menn eru afskaplega ósáttir við
framleiðslu Sigurðar Hilmars-
sonar sem var mikið mærður í
Sjónvarpinu. Baldvin Jónsson,
ráðunautur Bændasamtakanna,
sagði framleiðsluna ekki skyr
heldur jógúrt og að þetta gæti
skemmt fyrir útflutningi skyrs ffá
íslandi.
■ Bloggarar Eyjunnar eru á
meðal þeirra fáu sem enn nenna
að þræta fyrir óeiningu innan
Sjálfstæðisflokksins. í hvert sinn
sem einhver
fjölmiðill
fjallarum
klofninginn
í flokknum
rísa til varnar
þau Hafrún
Kristjánsdótt-
ir, systir Sig-
urðar Kára
Kristjánssonar, Tómas Hafliða-
son, stjómarmaður SUS, og Frið-
jón Friðjónsson, einn af banda-
mönnum Bjöms Bjamasonar
dómsmálaráðherra. Tómas er
sérlega ákveðinn í vöminni fyrir
Sjálfstæðisflokkinn en er sagð-
ur eiga sér þá von að ná ff ama í
flokknum en ekki er almennur
skilningur á erindi hans.
■ Illugi Jöladsson er maður fjöl-
hæfúr. Þessa dagana er hann að
leggja lokahönd á fyrsta tölublað
Skakka tumsins, tímarits sem
fjallar um vísindi á mannamáli.
Þar með er Illugi orðinn ritstjóri
tveggja tímarita en hann stýrir
einnigSög-
unni allri og
er að auki
forleggj-
ari bókaút-
gáfunnar
Skugga. Sú
útgáfa lifði
afjólabóka-
flóðið fyrir
tilstilli bróður forleggjarans,
Hrafns Jökulssonar, sem náði
metsölu með bók sinni, Þar sem
vegurinn endar. Hrafn situr nú
sveittur á Ströndum við að skrifa
næstu bók.
■ Össur Skarphéðinsson iðn-
aðarráðherra skemmtir sér
konunglega þessa dagana í rík-
isstjóm Geirs H. Haarde sem
iðnaðarráðherrann hælir við
hvert tækifæri. Össur rifjar upp
skammir sjálfstæðismanna við
skrifum hans um borgarstjórn-
arflokkinná
sínumtíma
en snýtir
sfðan Davið
Oddssyni
seðla-
bankastjóra
sem hafi
niðurlægt
Vilhjálm Þ.
Vilhjálms-
son, borgarstjóraefni Sjálfstæðis-
flokksins, með því að svara kald-
ranalega spumingu um stöðu
Villa með annarri um stöðu
Huddersfield í breska boltanum.
R| Zero tolerance?
JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJORISKRIFAR. I\'ú erufimmdagarliönirfráflóttanum oglögreglanhefurcnn ekkertságt nm ábyrgÖsiha n málinu.
LEIDARI
Lögreglan í Reykjavík hefur undanfarið tekið sér stöðu
gegn hinum almenna borgara. Venjulegum borgur-
um er hegnt af fullu afli fýr-
ir að pissa undir beru lofti og
hraðamyndavélar eru settar upp til
þess að grípa þá örugglega ef þeir fara
yfir hámarkshraða. Þessi stefna Stef-
áns Eiríkssonar lögreglustjóra gegn
smærri glæpum er kölluð „zero toler-
ance". Hún er hjákátleg í ijósi þess að á
sama tíma og Stefán framfylgir henni
er Annþór Karlsson, einn harðsvírað-
asti ofbeldismaður landsins, vistaður
á Iausagangi í lögreglustöð hans og
nær að flýja úr haldi án þess að nokk-
ur taki eftir því í tvo klukkutíma.
Það er ljóst að lögreglan beið álits-
hnekki við flótta þessa „hættulega"
manns, sem var vistaður í opnum
klefa. Nú eru fímm dagar liðnir frá
flóttanum og lögreglan hefur enn ekk-
ert sagt um ábyrgð sína á málinu. Með hverjum deginum sem líð-
ur án þess að Stefán Eiríksson útskýri málið vakna fleiri spurn-
ingar um starfsemi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Það
hlýtur að vera forgangsverkefni að komast að því hvers vegna j
þeim tekst ekki að halda hættulegum
mönnum. Hvað sem lögreglustjóran-
um líður á aimenningur heimtingu
á að fá að vita hvers vegna lögreglan
reyndist óhæf í það einfalda verkefni
að læsa klefa hættulegustu manna.
Oft er eins og íslenskir glæpamenn
séu með greindarvísitölu á við Bjarn-
arbófana og er það vel. Þetta hefur j
sést í ýmsum heimskulegum banka-
ránum, nú síðast í Glitni við Lækj-
argötu. Hins vegar er verra þegar ís-
lenska lögreglan minnir á Skapta
og Skafta. Og ekki skánar það þeg-
ar menn segja eins og í laginu: „Ekki J
benda á mig."
Sem betur fer kom í ljós að stroku-
fanginn hættulegi sver sig í ætt við
aðra íslenska glæpamenn og fannst í
fataskáp eftir að hafa gert það eitt að breyta yfirlýstu skapi sínu á
MySpace úr „sáttur" í „vondur".
Skattar og gjöld lækka
f þessari viku var stómm áfanga
náð. Samtök atvinnulífsins og
Alþýðusamband fslands náðu,
með mikilli vinnu og virðingu
fyrir stöðu hvors annars, saman
um launaþróun og forgangsröð-
un launa. Mikilvægast við þessa
kjarasamninga er að forystumenn
atvinnulífsins og ASÍ náðu sam-
an um þá forgangsröðun að setja
mest til þeirra sem hafa setið eftir í
launaskriði og hafa lægstu launin.
Þessir kjarasamningar vom skyn-
samlegir og mjög þýðingarmiklir
og eru forsenda annarra ákvarð-
ana, bæði fyrir efnahagslífið í heild
og rekstur fyrirtækja en líka fyrir
þá samninga sem koma í kjölfarið.
f lok samningalotu kom ríkis-
stjórnin með jákvætt útspil fyrir
hönd skattgreiðenda til að styðja
við einstaklinga og fyrirtæki. Út-
spil ríkisstjómarinnar fól meðal
annars í sér sértækar aðgerðir til
að bæta stöðu bamafjölskyldna,
hækkun bóta og skattleysismarka
og aukin ffamlög til símenntunar.
Sérstaklega ánægjulegt er að sjá að
ríkisstjómin tekur á sama tíma og
hún bætir kjör launþega ákvörðun
um að lækka fyrirtækjaskatt úr 18
prósentum í 15 prósent. Sumum
þykir erfitt að skilja þessa stefnu
hægrimanna en með því að lækka
skatta á fyrirtæki geta tekjur hins
opinbera af sköttum einmitt auk-
ist verulega þar sem skattalækkan-
ir virka sem hvati fyrir efnahagslíf-
ið til að taka ákvarðanir um aukin
umsvif. Ríkið fær minni sneið af
stærri köku í stað stærri sneiðar af
minni köku áður. Gott dæmi um
þetta er lækkun fyrirtækjaskatta
hér á landi úr 33 prósentum árið
1995 í 18 prósent. Sú lækkun hefur
skilað ríkinu mun meiri tekjum en
áður og styrkir fyrirtæki til lengri
tíma. Aðrar sérstaklega jákvæð-
ar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru
loforð um frekari lækkun á tollum
og vörugjöldum og fyrstu skrefin í
að afnema stimpilgjöld. Vonandi
verða öll stimpilgjöld afnumin á
þessu kjörtímabili enda eru þessi
gjöld ósanngjarn nefskattur.
Það er skýrt að aðeins ein
„RikiO fær minni sneið af
stærri köku í stað stærri
sneiðar afminni köku áður.
Gott dæmi um þetta er
lækkun fyrirtækjaskatta
hér á landi úr 33 prósentum
árið 1995naprósent.“
ástæða er fyrir því að ríkissjóð-
ur getur spilað út svona sterkum
aðgerðum inn í kjarasamninga ASf
og haft áhrif á samninga sem eru
fram undan. Ástæðan er sú að rík-
issjóði hefúr verið stýrt með styrkri
hendi undanfarinn áratug með það
að leiðarljósi að lágmarka skuld-
ir og hámarka um leið sveigjan-
leika rfkissjóðs til að mæta aðgerð-
um eins og þessum í sambærilegu
efnahagsástandi og nú ríkir. Ábyrg
fjármálastjórnun á ríkissjóði er
grundvöllur hagsældar og ætti að
vera mikilvægasta verkefni stjórn-
málamanna að halda í heiðri.
DÓMSTÓLL GÖTUIVIVAR
HVER EIGA LÁGMARKSLAUN AÐ VERA?
„Ég myndi ekki snerta á verstu
djobbunum nema fá á bilinu 200 til 250
þúsund á mánuði. Það á að borga vel
fyrir verstu og ábyrgðarminnstu störfin
vegna þess að þau eru svo ógeðsleg.
Það þarf alltaf einhver að vinna þau og
þv( heiðursfólki á að borga vel.“
Erpur Þórólfur Eyvindarson, 30
ára tónlistarmaður
„Mér finnst að lægstu launin eigi aö
vera um 170 þúsund á mánuði. Það má
þó ekki hækka þau á einu bretti, heldur
ættu launin að hækka I áföngum.
Miklar hækkanir á stuttum tlma myndu
líklega leiöa til hærra verðlags í landinu
og þá yrðu hækkanir launa til lítils."
Ottó Gunnarsson, 26 ára athafna-
maður
„Mérflnnstað lágmarkslaun eigi að
vera á bilinu 170 til 180 þúsund. Það er
erfitt að lifa á lægri launum en það."
Anton Hilmarsson, 18 ára nemi í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
„Ég held að um 180 þúsund væru
lágmarktil að geta haldiö heimili og
átt b(l, sérstaklega fyrir ungt fólk sem
er að byrja að búa og koma undir sig
fótunum."
Svanhvít Valtýsdóttir, 17 ára
starfsmaður hjá 365 miðlum