Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 3. MARS 2008
Fréttir DV
Jarðskjálftar við
Upptyppinga
Frá því í lok febrúar hef-
ur verið mikil skjálftavirkni við
Upptyppinga sem eru norðan
Vatnajökuls, skammt frá Kára-
hnjúkum. Skjálftarnir eru hluti af
hrinu sem hefur verið við Upp-
typpinga frá því í febrúar á síð-
asta ári. Hrinan um helgina var
undir Alftadalsdyngju sem marg-
ir jeppamenn þekkja. Klukkan
tvö í gær stóð hrinan sem hæst
en ekki var hætta á ferðum þar
sem allir skjálftarnir voru um
þrír á Richter. Betra er hins vegar
ef jeppafólk fer þarna nálægt að
fara með öllu með gát.
Hættan er Ijós,
það er Ijóst
Fræðsluherferð undir
slagorðinu „Hættan er ljós"
er hafin og beinist að ferm-
ingarbörnum og foreldrum
þeirra. Varað er við skaðleg-
um áhrifum geislunar frá
ljósabekkjum og sól. Þorgeir
Sigurðsson, rafmagnsverk-
fræðingur hjá Geislavörn-
um ríkisins, segir heilbrigt líf
og hreysti ekki lengur vera
tengt brúnum húðlit. Félag
íslenskra húðlækna, Geisla-
varnir ríkisins, Krabbameins-
félag íslands, Landlæknis-
embættið og Lýðheilsustöð
standa að fræðsluherferðinni.
Einnig verður leitað eftir lið-
sinni presta landsins. Tíðni
húðæxla hefur tvöfaldast hér
á landi síðustu 10 ár.
Landbúnaðar-
verðlaunin veitt í
tólfta sinn
Ábúendur fjögurra jarða
fengu í gær Landbúnaðarverð-
launin. Um er að ræða viður-
kenningu til þeirra sem á einn
eða annan hátt tengjast land-
búnaði og hafa sýnt áræðni og
dugnað í verkum sínum og fram-
kvæmdum. Þeir sem fengu verð-
launin búa á Stað í Reykhóla-
sveit, Árbæjarbúinu, Þórisholti í
Mýrdal og Möðrudal í Efra-Fjalli.
Einar Kristinn Guðfinnsson
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, afhenti verðlaunin en
þetta í er tólfta sinn sem þau eru
veitt.
Fjórir undir áhrif-
umfíkniefna
„Þetta eru vissulega háar tölur
en þess má geta að þetta er ný-
legur brotaflokkur hjá okkur. Við
vitum í raun ekki fyrr en eftir ár
eða svo hvort akstur undir áhrif-
um eiturlyfja hefur aukist," segir
lögreglan á Selfossi en alls voru
fjórir ökumenn stoppaðir af lög-
reglunni á Selfossi undir áhrifum
ffkniefna um helgina. Aðeins
einn var stoppaður vegna ölv-
unaraksturs. Ekki er langt síðan
fíkniefnaakstur var skilgreindur
frá ölvunarakstri hér á landi.
„Það erhlutverk
forstöðumannsins
það ergert.
töðumaður á
ellefu föngum á
deild 3-B. Þeir eru bálreiðir yfir framkomu í
sinn garð eftir að hafa verið ræstir um miðja
nótt og hreinsað út úr klefum þeirra. Fangarn-
ir segjast ekki komast í bað þar sem þeir hafi
ekki föt til skiptanna og hafa leitað liðsinnis
lögmanna sem undirbúa stjórnsýslukæru.
að halda uppi aga og
reglu í fangelsinu og
hann ákveður hvernig
*
gi
Klefar tæmdir Aðfaranótt miðvikudagsins
voru allir fangar á deild 3-B í fangelsinu
ræstir og þeim skipað út úr klefum sínum.
FANGARNIR KÆRA
Margrét Frímannsdóttir, forstöðu-
maður á Litla-Hrauni, verður kærð
til dómsmálaráðuneytisins íyrir
ólögmætar hóprefsingar í fangels-
inu og hugsanlega til lögreglu fyrir
þjófnað. Ellefu fangar af sömu deild
fangelsisins boða kæruna og eru
ævareiðir út í fangelsisstjórann.
Síðla kvölds í síðustu viku voru
allir fangar á deild 3-B í fangelsinu
ræstir og þeim skipað út úr klefúm
sínum. Að öllum líkindum hefur
það verið gert vegna grunsemda um
fíkniefnamisferli. Þegar út á gang
var komið urðu fangarnir að afklæð-
ast og fangaverðir fjarlægðu eigur
þeirra úr klefunum. Eigurnar hafa
ekki verið afhentar föngunum aftur.
Skýring fangelsisins á aðgerðunum
var sú að hreinsa fangelsið af neyslu
fíkniefna og tilefnið hafi verið ann-
arlegt ástand tveggja fanga, ann-
ar þeirra dvelur á deild 3-B. Fang-
ar deildarinnar hafa leitað liðsinnis
lögmanna og kæra á hendur fang-
elsisstjóranum er í fúllri vinnslu.
Brot á stjórnsýslulögum
„Hér eru undur og stórmerki að
gerast á Litla-Hrauni. Fangelsis-
stjóri fyrirskipaði árás á deildina og
allar okkar eigur voru hirtar. Mar-
grét hefúr síðan sagst æda að af-
henda þær að eigin geðþótta. Mál-
ið hefur snúist í höndunum á henni
því við ætíum að kæra tíl lögreglu
fyrir stórfelldan þjófnað. Það höf-
um við allir fangarnir gert," segir Þór
Óliver Gunnlaugsson, refsifangi á
Litla-Hrauni.
Fangarnir hafa leitað til lög-
mannastofunnar Opus lögmenn
til að útbúa kærurnar. Samkvæmt
upplýsingum frá lögmannastofunni
fékkst það staðfest að fangarnir hafi
leitað þangað fyrir helgi með málið
og beiðni um lögfræðiaðstoð. Þar
á bæ fengust þær upplýsingar að í
fyrstu líti málið ekki endilega út sem
lögreglumál heldur allt útíit fyrir
brot á stjórnsýslulögum. Slík brot
má kæra innan stjórnsýslunnar og
því mun stofan að öllum líkindum
beina kærunni til dómsmálaráðu-
neytisins. Að minnsta kosti benda
talsmenn stofunnar á að kæruheim-
ildir séu til staðar fyrir ólögmætum
agaviðurlögum og meðferð á föng-
um á Litía-Hrauni.
Grunur um fíkniefni
Erlendur Baldursson, deildar-
stjóri Fangelsismálastofnunar, vísar
á forstöðumann fangelsisins tíl að
útskýra aðgerðina. Aðspurður segir
hann alvanalegt að heil deild sé tek-
in fyrir í einu sé talin ástæða á annað
borð til að hafa afskipti af föngum í
klefum sínum. „Það er hlutverk for-
stöðumannsins að halda uppi aga
og reglu í fangelsinu og hann ákveð-
ur hvemig það er gert. Við skiptum
okkur ekkert af því hvort og hvernig
er leitað í klefum en fangarnir hafa
ákveðinn rétt, tíl að mynda að vera
viðstaddir þegar farið er í gegnum
eigur þeirra. Væntanlega er hugsun-
in sú að skapa einhverjar reglur yfir
hvað fangamir mega hafa inni hjá
sér og það er fangelsið sem ákveður
hvemig það er gert," segir Erlendur.
Aðspurð segir Margrét tvær
ástæður fyrir aðgerðinni og að hún
sé fyllilega heimil samkvæmt lög-
um. Hún staðfestír að lögffæðingur
fanga hafí haft samband við hana
út af málinu. „í fyrsta lagi þurftum
við af ákveðnum ástæðum, vegna
rökstudds gmns um fíkniefni, að
leita í nokkrum klefúm og í öðm
lagi þurfti deildin á allsherjar hrein-
gerningu og málningu að halda. Ég
tók þá ákvörðun að með þessum
hætti næðum við að sameina þetta
tvennt og taka deildina í gegn," segir
Margrét
Getum ekki liðið þetta
Þór segist ekki sldlja hvers vegna
svona hóprefsingum sé beitt í fang-
elsinu. Aðspurður segist hann enn
ekki hafa fengið eigur sínar og föt
afhent. „Við höfum ekki getað far-
ið í bað í marga daga því við höfum
engin föt til skiptanna. Þó fangels-
isstjóri hafi heimildir í lögum tíl að
ráða því hvað menn hafa inni í klef-
um sínum, og afturkalla leyfi fyrir
ýmsu dótí sem þeir hafa inni í ldef-
um, verður að gera það eftir réttum
boðleiðum en ekki með innrás um
miðjar næúir. Við vomm bara ræst-
ir um miðja nótt og niðurlægðir, við
þurftum til að mynda að berhátta
okkur á ganginum," segir Þór.
Margrét vísar því á bug að eitt-
hvað óeðlilegt hafi verið við að-
gerðina. Hún segir deild-
ina verða miklu betri
að þessu loknu.
„Auðvitað
em ekki all-
ir sáttir með
það þegar
öll deild-
in er tekin
með þess-
um hætti
en að þessu
loknu verð-
ur þetta flott.
Þeir hafa
fengið til
baka þá muni
sem þeir hafa
beðið um og af-
ganginn fá þeir af-
hentan um leið og
verkinu er lokið.
Ég er rosalega
stolt af ár-
angrinum og
mér finnst
fangarnir hafa staðið sig mjög vel í
hreingerningunni," segir Margrét.
Ekkert óeðlilegt
„Ég hef orðið vör við óánægjuna
meðal sumra fanganna. Við höfum
fullar heimildir fyrir svona aðgerð
sé rökstuddur grunur um fíkniefni
og það var hluti aðgerðarinnar. Það
var ekkert óeðlilegt við þetta hjá
okkur. Ég er sannfærð um að þegar
allri vinnunni verður lokið, þrifum
og málun, verða langflestir fang-
arnir stoltir" segir Margrét.
Þór segir að hafi aðgerðin verið
liður í hreinsun verði hún að eiga
jafnt við um allt fangelsið. „Þetta
er fáránleg framkoma í garð okkar
fanganna og við getum ekki liðið
þetta. f þessu tilviki var ein
deild lögð í einelti með
þessari svívirði-
legu árás. Svona
hóprefsingar
eru bannað-
ar og bitna
á mönnum
sem hafa
verið til fyr-
irmyndar.
Stjórinn þarf
að kynna
sér reglur
ÍA fangelsa
ogefhann
hefur ekki
gert það bet-
ur en þetta þarf
viðkomandi bara
að pakka saman
oghaldaheim
lí l'lf/l
til sín."
Kærð fyrir yfirgang Fangarnir
eru reiðir Margréti Frímannsdóttur
forstöðumanni og hafa leitað til
lögmanna til að undirbúa kæru.