Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Side 7
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 7
Hlutabréfaeign þriggja lífeyrissjóða í Exista hefur rýrnað um rúma tíu milljarða króna á átta mánuðum
en þrátt fyrir verðfall hlutabréfanna halda sjóðirnir áfram að fjárfesta í félaginu. Tapið gæti því verið
mun meira. Skiptar skoðanir eru um hvort lífeyrissjóðir eigi að vera í áhættufjárfestingum sem þessum,
en enginn gat séð fyrir þær gríðarmiklu lækkanir sem orðið hafa undanfarið segir Ásmundur Gíslason,
sérfræðingur á greiningardeild Glitnis. Talsmenn lífeyrissjóðanna þriggja segja að ekki sé um tapað fé
sé að ræða. Sjóðirnir þurfa iðgjaldagreiðslur 29 þúsund manns í átta mánuði til að bæta upp tapið.
10MILLJARÐA
MÍNUSVEGNA
BRÉFA í EXISTA
2
Lífeyrissjóðurinn Gildi, Lífeyris-
sjóður verslunarmanna og Lífeyr-
issjóðir Bankastræti 7 þurfa átta
mánaða iðgreiðslur af launum 29
þúsund launþega til að bæta upp
verðhrunið á hlutabréfaeign sinni
í Exista. Hlutabréfm voru tæplega
sextán milljarða króna virði 2. júlí á
síðasta ári en eru núna ekki nema
fimm og hálfs milljarðs króna virði.
Tapið nemur rúmum tíu milljörð-
um króna og það þrátt fyrir að líf-
eyrissjóðirnir hafi haldið áfram að
kaupa hlutabréf í Exista.
„Það eru ekki margir aðilar sem
sáu fyrir þessa gríðarlegu lækkanir
sem komið hafa í ljós. Sumir þeirra
sem sáu það fyrir hafa hagnast mik-
ið. Vandinn var einfaldlega stærri
og meiri en nokkur gerði sér grein
fyrir." segir Ásmundur Gíslason hjá
greiningardeild Glitnis um stöðuna
á fjármálamörkuðum og lækkanir á
bréfum Exista.
Tíu milljarða tap
Tap þriggja af fjórum þeirra líf-
eyrissjóða sem eiga stærstan hlut í
Exista nemur 10 milljörðum und-
anfarna 8 mánuði, frá 2. júlí 2007 til
27. febrúar 2008. Þeir eru Gildi-líf-
eyrissjóður, Lífeyrissjóður verzlun-
armanna og Lífeyrissjóðir Banka-
stræti 7. „Það er náttúrulega ekkert
rangt að setja myndina þannig upp"
segir Ásmundur spurður um tap líf-
eyrissjóðanna. „Þetta er bara hluti
af leiknum. Þeir sem eru að fjár-
festa í hlutabréfum eiga oft á tíðum
möguleika á góðum gróða, en þeir
bera líka áhættuna sem því fylgir."
Einn þeirra fjögurra lífeyrissjóða
sem voru meðal 20 stærstu hlut-
hafanna í Exista 1. júlí veitti engar
upplýsingar um hvernig sjóðurinn
hefði komist frá verðbréfahrun-
inu. Það er Sameinaði lífeyrissjóð-
urinn sem svaraði engu þrátt fyrir
ítrekaðar fyrirspurnir. Svo virðist
sem Sameinaði lífeyrissjóðurinn
hafi ólíkt hinum lífeyrissjóðunum
minnkað eign sína í Exista. 1. júlí
á síðasta ári var hann skráður fyrir
0,41 prósenti af öllum hlutabréfum
í Exista. Nú kemst hann ekki inn á
lista yfir 20 stærstu fjárfesta, sá sem
er skráður fyrir minnstum hlut nú
er Byggingamiðstöðin með 0,40
prósent.
Gildi lífeyrissjóður
Hafa ber í huga að þær tölur
sem hér eru settar fram miðast við
eignahlut lífeyrissjóðanna annars
vegar 2. júlí 2007 og 27. febrúar síð-
astliðinn hins vegar. Allir þrír sjóð-
irnir hafa bætt umtalsverðu við sig í
Exista og er tap þeirra á bréfum sín-
um í það minnsta 10 milljarðar, og
að öllum líkindum mun meira.
Markaðir undir pressu
Ásmundur vildi ekki tjá sig sér-
staklega um hvort lífeyrissjóðir
ættu yfir höfuð að vera í áhættu-
fjárfestingum og sagði þá einfald-
lega vinna eftir sínum fjárfest-
ingastefnum sem samþykktar
eru af sjóðunum. „Þeir hafa skýra
stefnu og eru einfaldlega að fýlgja
henni. Mér finnst ekkert óeðlilegt
við það sem þeir eru að gera. Það
liggur ljóst fýrir að þegar markaðir
eru búnir að vera undir pressu eins
og núna svíður öllum fjárfestum.
Og þar sem lífeyrissjóðir eru með
ákveðinn hluta sinna eigna í hluta-
bréfum bitnar það á þeim eins og
öðrum fjárfestum. Það er náttúru-
lega ekki gott, en svona er leikur-
inn."
Ráðlagt að kaupa
í frétt frá greiningardeild Glitn-
is 26. október 2007 segir að þar á
bæ telji menn að gengi bréfa í Ex-
ista muni hækka um 12% næstu sex
mánuðina og var fjárfestum ráðlagt
að kaupa bréf í félaginu.
20 júlí á síðasta ári náði gengi
bréfa í Exista hámarki þegar þau
stóðu í 40,15, 26. febrúar þessa
árs, tæpum 8 mánuðum síðar, stóð
gengi bréfa félagsins í 12,22. Lækk-
unin hefur verið gríðarleg, á ekki
lengri tíma, og ljóst að margir hafa
tapað formúu fjár á bréfum félags-
ins. Lífeyrissjóðirnir þar á meðal.
Engin áhrif á sjóðsfélaga
„Þetta hefur engin áhrif haft á líf-
eyrisréttindi sjóðfélaga, þau standa
Lífeyrissjóður verslunarmanna
nákvæmlega eins góð og þau hafa
verið eftir hækkanir undanfarinna
ára. Og uppgjör ársins er mjög gott
í ljósi erfiðra markaða." segir Árni
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Gildis lífeyrissjóðs, spurður um
útreikninga DV. Að öðru leyti sagð-
ist Árni ekki geta tjáð sig um út-
reikninga blaðsins. „Við erum ekkj
hérna sjálfir að reikna frá degi til
dags, og sérstaklega ekki að taka
bara lækkunarferli og finna hvað
eignirnar hafa lækkað." Árni segir
borðleggjandi að aðrar niðurstöð-
ur fengjust ef reiknað yrði hálft ár
fyrir tiltekið tímabil DV. Hann segir
einnig furðulegt að fjölmiðlar sýni
fjárfestingum lífeyrissjóðanna að-
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7
eins áhuga þegar eignirnar hafa
lækkað, en hafi svo engan áhuga á
þeim þegar þær hækka.
Verðgildi hlutabréfa í Exista er
núna um 35 prósent þess sem það
var 2. júlí á síðasta ári og 48 prósent
þess sem það var 2. febrúar sama
ár.
Exista getur hækkað
Ásmundur gefur lítið fyrir hrak-
spár fjölmiðla erlendis og segir fé-
lög eins og Exista ekki vera í jafn-
gríðarlegu basli og teiknað hefur
verið upp til dæmis á Norður-
löndunum. „Ef mönnum langar að
teikna myndina svarta er það ekk-
ert vandamál. Staða Exista er bara
Sameinaði lífeyrissjóðurinn
ágæt, en vissulega mun erfiðari en
hún var fyrir hálfu ári." Ásmundur
þvertekur fyrir að Exista rambi á
barmi gjaldþrots líkt og sögusagnir
hafa verið uppi um undanfarið. „Ég
get ekki séð að eitthvað hafi breyst í
umhverfi þeirra sem réttlæti að það
sé verra ástand hjá þeim núna en
var til að mynda í upphafi árs." seg-
ir Ásmundur Gíslason hjá greining-
ardeild Glitnis.
Greiðir ekki út arð
Á aðalfundi Exista á fimmtu-
daginn var samþykkt að greiða ekki
út arð að þessu sinni vegna erfiðra
markaðsaðstæðna. í máli stjórn-
arformanns félagsins, Lýðs Guð-
mundssonar, kom fram að ef mark-
aðsaðstæður bötnuðu á árinu kæmi
til greina að endurskoða arðgreiðsl-
ur, enda sé það í stefnu félagsins að
y greiða hluthöfum sínum arð und-
ir venjulegum kringumstæðum. Á
aðalfundinum var einnig samþykkt
að breyta hlutafé félagsins í evrur.
Lýður Guðmundsson sagði að rík-
isvaldið yrði að gera það sem það
gæti til að bæta starfsumhverfi fýr-
irtækja hér á landi, meðal þess væri
að heimila þeim að skrá hlutafé sitt
í eriendum gjaldmiðlum.
29 þúsund iðgjöld
Miðað við upplýsingar frá VR
eru meðalheildarlaun félagsmanna
félagsins 363 þúsund krónur miðað
við árið 2007. Lágmarksiðgjöld líf-
eyrissjóða eru 12 prósent af heild-
arlaunum þar sem launagreiðandi
leggur fram átta prósent og laun-
þegi fjögur prósent. Á mánuði ger-
ir það 43.560 krónur sem hver ein-
staklingur greiðir. Yfir átta mánaða
tímabilið sem hér um ræðir greið-
ir meðalmanneskja því 348.480
krónur. Því má sjá að 28.964 iðgjöld
liggja að baki þeirra rúmlega 10
milljarða sem tapast hafa á eignar-
hlutum lífeyrissjóðanna í Exista á
undanförnum 8 mánuðum.
TAP Á FJÁRFESTINGU
s
% X
k. A M
GILDI-LlFEYRIS- LÍFEYRISSJ. VERZLUN- LÍFEYRISSJ.
SJÓÐUR ARMANNA BANKASTRÆTI7
4.301.173.677 3.276.889.946 2.515.456.442
TAP SAMTALS: -10.093.520.065
EIGNIR SJÓÐANNA í EXISTA
2. júlí 27.febrúar
Gildi-lífeyrissjóður 6.676.245.630 2.375.071.954
Lífeyrissj. Verzlunarmanna 5.086.361.033 1.809.471.087
Lífeyrissj. Bankastræti 7 3.904.470.347 1.389.013.905
SIGURÐUR MIKAEL JÓNSSON
blaðcimaður skrifar: mikaeh<Pdv.is