Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Qupperneq 9
DV Fréttir MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 9 /' ' ; ' ' 'v’ ^ Parlagol í Siberíu Gengið með kjórkassann hús úr húsi. minna mega sín. Ein þeirra er Alla Semyonova, en hún sagðist vera orðin þreytt á að líta á það sem af- rek að afla matar fyrir bamið sitt. Hundsaðar kosningar Áætlað er að kjörsókn í kosn- ingunum hafai verið um sextíu og fjögur prósent, og lfkur leiddar að því að svæðisstjórar hafi verið undir þrýstingi frá stjómvöldum í Kreml að ná tveimur þriðju hlut- um þjóðarinnar inn í kjörklefana svo sigur Medvedevs yrði sannfær- andi. Eftirlitsmenn á vefum ÖSE, öryggis- og samvinnustofhunar Evrópu, vom fjarri góðu gamni því sökum takmarkana af hálfu rúss- neskra stjómvalda töldu þeir sér ekki fært að sinna eftirliti sínu. Færri en þijú hundmð alþjóð- legir eftirlitsmenn fylgdust með kosningunum og komu flest- ir þeirra frá fyrrverandi Sovét- lýðveldum. Þurftu þeir að fylgjast með níutíu og sex þúsund kjör- stöðum á svæði sem nær yfir ellefu tímabelti. Mahmoud Ahmadinejad, forseti írans, í heimsókn til íraks: Blað brotið í sam- skiptum þjóðanna Forseta írans, Mahmoud Ahmad- inejad, var vel tekið þegar hann kom í opinbera heimsókn til íraks í gær. Með heimsókninni er brotið blað í samskiptum grannþjóðanna, því aldrei fýrr hefur íranskur forseti sótt írak heim. Jalal Talabani, forseti fraks, sagði heimsóknina sögulegan við- burð, en þjóðirnar háðu blóðuga og mannskæða styrjöld á árunum 1980 til 1988. Bandaríkjamenn komu hvergi ná- lægt öryggismálum vegna heimsókn- arinnar, enda andar köldu í samskipt- um þeirra og írana um þessar mundir. Þess í stað var ekið með Ahmadinejad frá flugvellinum til aðseturs Talabanis, leið sem talin er ein af þeim hættulegri í Bagdad. Á sameiginlegum blaða- mannafundi forsetanna sagði Ahmad- inejad að þjóðimar væru staðráðn- ar í að efla stjómmála-, efhahags- og menningarleg tengsl sín á milli. Hann sagði einnig að sameinað og öflugt írak snerti hagsmuni allra ríkja á svæðinu. í erfiðri aðstöðu Opinber heimsókn íransforseta til íraks og nýtilkomið vinfengi þjóð- anna setur Írakí undarlega stöðu. Rík- isstjóm fraks lendir í eldlínu kaldra samskipta frans og Bandaríkjanna. Bandaríkin hafa verið dugleg við að saka íran um að vera uppsprettu stuðnings við uppreisnaröfl sjía-mús- líma í írak. Mahimoud Ahmadinejad hefur ekki gefið mikið fyrir fullyrðing- ar Bandaríkjamanna og sagði áður en hann lagði upp í heimsóknina að hon- um fyndist skjóta skökku við að þjóð sem væri með eitt hundrað og sextíu þúsund hermenn í frak sakaði aðra um afsldpti. Hvað sem líður nýorðnum sáttum frans og íraka eru margir þeirra sem þekkja til samskipta þjóðanna þeirr- ars skoðunar að þær muni áfram sem hingað til berjast um áhrif á svæðinu. Forsætisráðherra Danmerkur heimsótti Bush: Ræddu Afganistan og fangaflug Anders Fogh Rasmussen, forsæt- isráðherra Danmerkur, sótti Georg W. Bush Bandaríkjaforseta heim um helgina. Á meðan á heimsókninni stóð ræddu þeir meðal annars ástand mála í Afganistan, loftslagsbreytingar og fran. Bush tók á móti Rasmussen á búgarði sínum í Texas. Danir eru með um sex hundruð manna lið í Afganistan og eru þeir í suðurhluta landsins sem talinn er einn sá hættulegasti. Öll tuttugu og sex aðildarrfld Norður-Adantshafsbanda- lagsins eru með hermenn í Afganist- an og þau rfld sem hafa hermenn í suðurhluta landsins eru langþreytt á að önnur aðildarrfld, til dæmis Þýska- land, ftalía, Frakkland og Spánn, ein- skorði veru sinna hermanna við svæði sem þokkalegur friður rfldr. Fangaflug leyniþjónustunnar í Washington Post segir að fanga- flug bandarísku leyniþjónustunn- ar hafi borið á góma og Fogh hafi til- kynnt Bush um þá ákvörðun dönsku ríkisstjómarinnar að rannsaka full- yrðingar sem segja að flugvellir á Grænlandi hafi verið notaðir af leyni- þjónustunni. Anders Fogh Rasmuss- en sagði dönskum fréttamönnum að Bush hefði lofað fullri samvinnu vegna þeirrar rannsóknar. Danska stjómarandstaðan sagði að Rasmussen lokaði augunum fyrir fjölda vandamála þegar hann mærði Bandaríkjaforseta sem stjórnmála- mann sem berðist fyrir lýðræði og frelsi um heim allan. Mette Freder- iksen hjá sósíaldemókrötum sagði að samvinna í mikilvægum málum væri eitt, en að loka augunum fyrir raun- vemleikanum væri annað. Forkosningar í Texas og Ohio Forkosningar vegna forsetakosning- anna í Bandaríkjunum fara ffam í Texas og Ohio á morgun. Samkvæmt könnunum er ekki marktækur mun- ur á fylgi Hillary Clinton og Baracks Obama. Sigur á morgun er Hillary Clinton bráðnauðsynlegur enda hef- ur hún átt á brattann að sækja, en Obama hefur hins vegar haft sigur í ellefu forkosningum í röð og er, sam- kvæmt bandarískum íjölmiðlum, farinn að imdirbúa slaginn gegn rep- úblikanum John McCain. John McCain ber höfuð og herðar yfir keppinauta sína um útnefningu rep- úblikana til forsetaframboðs og fátt virðist geta komið í veg fyrir að hann tald slaginn fyrir þeirra hönd. Hvort keppinauturinn verður Hillary Clint- on eða Barack Obama mun tíminn leiða í ljós. Birkiaska UmboÖs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is BETUSAN Minnistöflur Umboðs- og söluaðiti Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is FOSFOSER MEMORY . Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.