Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Side 10
10 MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 Umræða DV ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir RITSTJÓRAR: JónTrausti Reynisson og ReynirTraustason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins á stafrænu formi og (gagnabönkum án endurgjalds. 011 viðtöl blaðsins eru hljóörituð. AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010, ÁSKRIFTARSlMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40. SANDKORN ■ Björn Bjarnason dóms- málaráðherra er einn öflug- asti andstæðingur þeirra sem hann kallar Baugsmiðla. Sérlega er ráðherranum uppsigað við Gunnar Smára Egilsson, íyrr- verandi ritstjóra Fréttablaðsins og fram- kvæmda- stjóra Dags- brúnar. Björn hnýtur um þau orð Gunnars Smára í þættinum I vikulok- in að ísland sé að verða eins og Kúba. „Málflumingurinn endur- speglaði sjónarmið, sem virðist vera stefna Baugsmiðlanna um þessar mundir, að Island eigi að ganga í Evrópusambandið," bloggar Björn en það vantar þó rökstuðning fyrir því að Gunnar Smári sem horfinn er frá fjöl- miðlum kenndum við Baug, sé sérstakur talsmaður þeirra. ■ Björn Bjarnason hefúr aldrei bloggað um Existamiðla eða Björgólfsmiðla en sjálfur var hann lengi innvinklaður í Moggaveldið sem einn eigenda Árvakurs. Það er ekki loku fyrir það skotið að Björn muni ganga aftur til liðs við Árvakur en það vantar sárlega ritstjóra á það blað eftir að StyrmirGunn- arsson hverfur á braut í haust. Björn þykir henta ágætlega í starfið þar sem hann er hallur undir viðskiptablokk Björgólfs og þar að auki að missa ráð- herrastól sinn í seinasta lagi á miðju kjörtímabili og horfúr í at- vinnumálum hans slæmar. ■ Pétur Gunnarsson á Eyjunni hljóp illa á sig um helgina þeg- ar hann bar það upp á Össur Skarphéð- insson, yfirblogg- ara sinn og iðnaðarráð- herra, að hann hefði eytt út pistl- um sínum. Ýjað var að því að þetta væri vegna harð- orðra pistla um Gísla Martcin Baldursson borgarfulltrúa og fleiri og þrýstíngur hefði ráðið því að aftnáð var. Össuri var ekki skemmt vegna þessa áburðar sem var úr lausu loftí gripinn og Pétur baðst afsökunar. ■ Það er hrollur í mörgum þeim börnum góðærisins sem starfa sem atburðastjórar banka og stórfyrirtækja. Nú þegar bauna- teljarar eru komnir á kreik er þetta gjaman fýrsta fólkið sem fær pokann sinn. Hjá Glitni er í gangi niðurskurður starfsmanna ogmun söngvarinn og atburða- meistarinn Jónsi hætta ávordögum. f Lands- bankanum voru þeir félagar Jói og Sinnni. Nú er Signnir Vilhjálms- son farinn tíl Hive og Jóhannes Ásbjörnsson sér um gleðina í bankanum. »T LEIDARI L!$| Dauði á vegum ríkisins iáai rn aiicti nruuirrnki niTCTiÁm ri/nirftn r\ a 4'..: ...'A i.'.a: -1 - JON TRflUSTI REYNISSON RITSTJORI SKRIFAR Daudarefsingar eni ekki vid lýdi á Islancli Um 120 manns eru í fangelsi hverju sinni hérlendis. Samkvæmt rannsókn Stoða, hagsmunafélags aðstand- enda fanga, hafa 47 manns látist síðustu fjögur ár sem voru læstir inni í fangelsi eða voru á leið- inni í eða úr fangelsi. Samtals níundi hver fangi deyr. Sumir kunna að hafa minni samúð með föngum en öðrum, þar sem þeir hafa brotið af sér. Hitt er ljóst að um leið og ríkið hefur tekið stjórn á lífi fólks ber það ábyrgð á lífi fólks. Ríkið ber að hluta ábyrgð á dauða þessa fólks. í Bandaríkjunum deyja 0,25% fanga árlega. Þar er vandinn stórtækur og felst meðal ann- ars í starfsemi gengja, gífurlegum þrengslum og morðum. Ef sama dánarhlutfall væri hérlendis myndi fangi aðeins látast þriðja hvert ár. Því fer fjarri. Síðustu níu ár hafa fimm fangar svipt sig lífi. Hlutfallslega fleiri fangar svipta sig lífi hér- lendis heldur en deyja yfirhöfuð í banda- rískum fangelsum. Þótt fámennið hér bjóði upp á sveiflur í töl- fræðinni verður að taka þetta alvarlega. Það sjónarmið hefúr orðið ofan á í fangelsismálum hérlendis að fremur eigi að miða að betnm af- brotamanna heldur en refsingu þeirra. Hér hefur meiri áhersla verið lögð á velferð fanga. En það virðist gjörsamlega hafa mis- tekist. Grundvallaratriði er að þeir menn sem eru fangelsaðir týni ekki lífi. Lögreglan er rannsökuð vegna þess að einn fangi slapp úr haldi hennar. Það er eðlilegt. En hvers vegna hefur ekki farið fram allsherjarrannsókn á dauða tæplega fimm- tíu fanga? Þetta kallar á tafarlaus viðbrögð yfir- valda. Dauðarefsingar eru ekki við lýði á íslandi og það er nauðsynlegt að öll kurl komi til grafar. KRUMLA KREPPUNNAR SVARTHÖFÐI Þegar kreppir að hjá bönkun- um er höggvið þar sem síst skyldi og atburðastjórarnir ásamt aðstoðarmönnum látnir fara. Þetta er í raun furðuleg ráðstöfun því fátt er nauðsynlegra þegar köld krumla kreppunnar læðist yfir en að hafa fýndni og gleði í öndvegi. Eðlilegra hefði verið að segja upp þeim fýlupúkum bankanna sem neita almennilegu fólki um hærri yfirdrátt og reyna með öllum tíl- tækum ráðum að ergja viðskipta- vini sína. Bankarnir verða sameig- inlega að móta stefnu um að gera líflð skemmtilegra fremur en auka á drungann. Það er tíl dæmis marg- falt meira gefandi fyrir viðskiptavini Glitnis að eiga þess kost að lesa um uppákomur sem stjórnað er af Jónsa en að taka við tuði um of háan yfir- drátt. Hið sama er uppi á teningnum í öðrum bönkum þar sem atburða- stjórar hafa sprotttið upp eins og eð- alsveppir og fólk hreinlega elskar að lesa um slíkt. óðæristíminn sem nú ■virðist vera að baki geymir óborganlegar frásagnir um þá gullöld sem ríkt hefur. Lands- bankinn hefur reglulega farið með heilu þomfarmana af fólki tíl útlanda þar sem ekkert hefur verið sparað til þess að gera Islendingunum ferð- ina ógleymanlega. Þannig fóru ekki færri en þrír þotufarm- ar til Mflanó á Italíu síðasta sumar þar sem reisnin var slíkyfirmör- landanum að kóngafólk hefði orðið grænt af öfúnd. Ferðin þótti heppnast ótrúlega vel og þá sérstaklega at- riði þar sem bankastjóri og stórfor- stjóri sýndu íslenska glímu. Um mitt góðærið var komið með Elton John til Islands og hann látinn syngja í frystigeymslu Ólafs Ólafssonar, for- stjóra Samskipa, sem átti afmæli og lét sér ekki nægja einfalda skúffu- köku. Ólafur er með allra örlátustu mönnum og hann gættí þess vand- lega að allir fjölmiðlar fengju innsýn í það að hann gaf peninga tíl fátækra í Afríku. Þjóðin stóð á öndinni enda fæstír með meiri burði en svo að greiða mánaðar- lega nokkur þúsund krón- ur tíl SOS-þorpa í Afríku. Þjóðin hreifst af þessum einstaka manni sem átti þyrlu til að tn var t frystí- fljúga á í sveitína tíl að nýta tímann vel. Og fleiri blómstruðu í góðærinu. Vikulega buðu stórfýrirtæki og bankar völdum kúnnum að fljúga til útlanda og njóta alls þess besta sem er í boði þar. KB-banki gerði enn betur og réð heimsþekktan gamanleik- ara til að grínast í auglýsingum sínum. John Cleese var sem sagt orðinn einn af þjónum Islendinga og kom ffarn við hliðina á brottrekn um Spaugstofuleikara. Auglýsinga- herferðirnar munu hafa kostað eitt- hvað um 100 milljónir króna að því er almannarómur hélt fram. En Svarthöfði hefur á tílfinningunni að nú hafi allt þetta dregist saman og það sé ekki sami glansinn yflr þjóðinni. Ekkert hef- ur frést af afmælis- veislum á borð við þá sem hald- geymslunni. Og nýjungar í auglýs- ingum eru fáar. Við erum um það bil hætt að gera heimsffæga einstakl- inga á sviði lista að þrælum okkar eða talsmönnum. Og í stað þess að vel haldnir atburðastjór- ar haldi tölur í kallkerfi þotna sem eru á leið í átt til gleðinnar stefnir nú í að einhverjir þeirra gangi um beina á almenningsfarrými. En Svarthöfði er þakklátur, hvort sem er í góðæri eða kreppu. Það gætí orðið eftír- minnilegt að fá sjálfan atburðastjóra Glitnis, Jónsa, til að bjóða sér kaffi á flugleiðinni Reykjavík, Kulusuk Svarthöfði er almúga- maður og víst er að við þann atburð fyndist honum hann vera kom- inn í raðir hinna riku. „Það er búið að vera ansi hryssingslegt veðrið og það má alveg fara að koma vor bráðum. Það má alveg fara að minnka snjóinn og koma smá grænt. Mér líkar ágætlega við snjóinn en slabbið, drulluna og umhleypingarnar þoli ég illa." Sigrún Skúladóttir, 52 ára skrifstofumaður „Þetta er búinn að vera langur og strangur vetur. Það er allt í lagi í smá tíma en ekki of lengi. Ég vil að nú fari að vora þannig að við fáum smá sól og grænt." Atli Sæbjörnsson, 37 ára atvinnurekandi „Ég er kominn með nóg af þessu veðurfari, eru ekki allir komnir með nóg af þessu? Vetrarharkan er búin að vera óvenju mikil og veðurfarið óvenju hart. Ég er alveg hrifinn af vetrinum en harkan má ekki standa svona lengi yfir. Nú vil ég fara að sjá breytingu." Hjálmar Harðarson, 60 ára veitingamaður „Ég skil ekki alveg hver pantaði þetta, sá á inni vel valin orð. Þó svo mér sé ekki illa við snjóinn þá má vetrinum alveg linna því allt er gott í hófi. Ég er orðin þreytt á þessu, eiginlega alveg búin á því. Ef ég hefði einhver tækifæri til væri ég löngu búin að yfirgefa skerið." Laila Margrét Arnþórsdóttir, 46 ára ráðgjafi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.