Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Qupperneq 11
PV Sport MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 11 m EITTSTtó eimskip 1 4 Sigurður Eggertsson, leikmaöur Vals, sleit eitthvað í náranum aö eigin sögn í bikarleiknum: SIGURÐUR LENGIFRÁ? „Ég held svei mér þá að ég hafl slitið allt í náranum. Ég fór í náran- um tveimur æfingum fyrir leikinn og hef verið tæpur síðan. Helvít- ið hann Hjalti Pálma vildi eitthvað fá að spila og felldi migsagði Sig- urður Eggertsson glaður eftir leik- inn. Sigurður meiddist snemma leiks og gæti verið lengi frá. Allavega býst Óskar Bjarni, þjálfari Vals, ekki við honum í næstu leikjum. „Ég var ógeðslega klár í þennan leik en því miður held ég að það hafi farið allt í náranum," sagði Sigurður og bætti við að það hefði bara verið fínt að sitja fyrir utan völlinn. „Ég fékk fullt af súkkulaði og ég var að háma í mig allan tímann. Þetta var líka búið í hálfleik að mínu mati og það gerði bekkjarsetuna aðeins auðveldari. Mér fannst þeir aldrei eiga séns. Þeir geta spurt sig Framarar hvert sé Reykjavlkurstórveldið í handbolta." Ólafur Haukur Gíslason, fyrir- liði Vals, var að vonum kampakátur í leikslok og var kominn með Einar son sinn í fangið sem fagnaði með pabba sínum. „Þetta er svo geggj- að, einn leikur, frábær umgjörð og fólkið í stúkunni. Hvað vill maður meira? Þetta var algjör slátrun að hætti Rambó. Við komum hungraðir til leiks, viljinn var okkar megin, við vorum á tánum og við vorum með þetta allt. Þeir vissu ekkert hvað þeir voru að gera fyrsta korterið." Ólaf- ur byrjaði ekki inni á heldur á vara- mannabekknum og var ekki sátt- ur skiljanlega. Hann kom þó inn af miklum krafti þegar Pálmar skipti sjálfum sér út af. „Ég var lengi að troða fýlunni úr mér þegar við kom- um inn í sal og er jafnvel enn ekki búinn að því en svona er handbolt- inn. Þjálfarinn ræður og maður verður að hlýða því sem hann segir. Ég held ég hafi fengið á mig ein- hver tvö mörk í fýrri hálfleik og það er ekki hægt að kvarta yfir því. Þeg- ar Ingvar fór svo af velli vorum við í vandræðum, heljarinnar vand- ræðum. Við þurftum að ákveða nýja vörn og við prófuðum einhverj- ar nýjar sem gekk ekkert. Við vor- um aðeins of værukærir með svona mikið forskot en við unnum þannig að hverjum er ekki sama?" sagði Ól- afur um leið og hann tók við bikarn- um eftirsótta. Fyririiðanum fagnað Sigurður Eggertsson fagnar hér Ólafi Hauki sem lyftir bikarnum hátt á loft.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.