Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Page 17
DV Sport
MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 17
UNITEDÁGÓÐUSKRIÐI
Sir Alex Ferguson gat leyft sér að hvíla þá Cristiano Ronaldo og Wayne Rooney
en það kom ekki að sök því liðið vann öruggan sigur á slöku liði Fulham
HÖRÐUR SNÆVAR JONSSON
bladamadur skrifar: sport^dv.is
Manchester United sótti Fulham
heim á Craven Cottage en United
var þremur stigum á eftir Arsenal
íyrir leikinn. Cristiano Ronaldo og
Wayne Rooney byrjuðu á bekkn-
um en liðið á mikilvægan leik gegn
Lyon í Meistaradeild Evrópu á
þriðjudag. Danny Murphy var ná-
lægt því að koma heimamönnum
yfir eftir tíu mínútna leik en fyrr-
verandi leikmaður liðsins, Edwin
van Der Saar, náði að slæma hend-
inni í boltann og varði vel.
United komst svo yflr fimm mín-
útum síðar þegar Owen Hargreav-
es skoraði beint úr aukaspyrnu.
Hargreaves setti boltann í mark-
mannshornið og spurning hvort
Anti Niemi, markvörður Fulham,
hefði ekki átt að verja skotið. Þetta
var fyrsta mark Hargreaves fyrir
United frá því að hann gekk í raðir
félagsins í sumar en hann hefur átt
við þráðlát meiðsli að stríða á þess-
ari leiktíð.
Forysta Manchester jókst svo
þegar ein mínúta var eftir af fyrri
hálfleik, Nani sem átti frábær-
an dag fékk boltann inni í teig og
renndi honum til hliðar á Paul
Scholes sem kom í utanáhlaupi,
Scholes átti góða fyrirgjöf sem rat-
aði beint á kollinn á Ji-Sung Park
sem skallaði boltann í slána og inn.
Frábært mark hjá Park eftir góðan
undirbúning frá Scholes og Nani.
Simon Davies, leikmaður Ful-
ham, skoraði svo síðasta mark
leiksins þegar átján mínútur voru
til leiksloka. John O'Shea ætlaði
að gefa fyrir markið en Davies kom
á ferðinni og lagði boltann snyrti-
lega framhjá Anti Niemi og í sitt
eigið net. Lokastaðan 0-3 en Un-
ited er nú einu stigi á eftir Arsen-
al og ljóst er að baráttan um sigur
í deildinni verður gríðarlega hörð
en Chelsea er aðeins þremur stig-
um á eftir United og langt frá því
búið að segja sitt síðasta orð.
Frábært að hvíla
Ronaldo og Rooney
Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, var gríðarlega
sáttur í leikslok en hann hvfldi þá
Wayne Rooney og Cristiano Ron-
aldo í leiknum. „Það sem mér
fannst jákvætt var að ég gat breytt
liðinu. Við eigum mikilvægan leik
gegn Lyon á þriðjudag og að geta
hvílt Rooney og Ronaldo var virki-
lega mikilvægt. Liðið sem ég valdi
gerði frábærlega, þeir lögðu virki-
0:3
MEÐ BOLTANN 40%
SKOTAÐMARKI
SK0TÁMARK
RANGSTÖÐUR
HORNSPYRNUR
AUKASPYRNUR
GUL SPJÖLD
RAUÐ SPJÖLD
Hargreaves 15, Park 44, Davies
72 sm.
,q Niemi,Stalteri,Hangeland,
Hughes, Konchesky,Vob (Kamara
90), Johnson (Nevland 90),
Bullard, Murphy (Smertin 64),
Davies,McBride.
ÁH0RFENDUR: 25,314
Van der Sar, Evra, Ferdinand,
Brown, 0'Shea, Nani (Anderson
75), Scholes, Hargreaves, Park,
Tevez(Ronaldo69),Saha
(Rooney 69).
MAÐUR LEIKSINS
Owen Hargreaves, Man. Utd
lega hart að sér. Mér fannst Ful-
ham ekki ógna oklcur mikið inni í
teig en fyrir utan teig spiluðu þeir
góðan bolta og pressuðu okkur
mikið og það reyndi á okkur. Að
skora mark rétt fyrir hálfleik sló þá
út af laginu. Þetta var flott mark Jtjá
Ji-Sung, hans fyrsta á tímabilinu og
við erum ánægðir með hann. Sig-
urinn í deildinni gæti ráðist á mar-
kamun það er engin spurning og
ég held að við eigum sjö mörk á
Arsenal núna," sagði Ferguson.
Ekkert ómögulegt
Roy Hodgson, stjóri Fulham,
var elcki brattur í leikslok en liðið
er í bullandi fallbaráttu. „Ég held
að það sé ekld ómögulegt fyrir
olckur að vinna fimm leiki af síð-
ustu tíu, það verður erfitt en ekki
ómögulegt. Manchester United er
með frábært lið, 3-0 hljómar eins
og að þeir hafi yfirspilað okkur en
mér fannst það eklci vera raunin.
Fyrir mig snýst þetta bara um að
koma sér aftur að verki og fara að
ná í stig," sagði Hodgson.
FYRSTA MARKIÐ Hargreaves í
þann mund að skora sitt fyrsta mark.
Illllll li M IM - ■ 'k
GÓÐUR Kóreumaðurinn Ji
Sung Parkátti góðan leik.
James Harper skoraði í uppbótartíma og tryggði Reading mikilvægan sigur:
Harper tryggði Reading fyrsta útisigurinn
Reading sótti Middlesbrough
heim en Ivar Ingimarsson var í byrj-
unarliði Reading og átti góðan dag.
Reading hefur gengið hræðilega að
undanfömu en liðið hafði ekki náð
í stig í síðustu átta leikjum eða frá
því í desember. Afonso Alves var ná-
lægt því að koma Middlesbrough yfir
í fyrri hálfleik þegar hann átti góða
aukaspyrnu en Marcus Hahnem-
ann varði vel. Fátt markvert gerðist í
síðari hálfleik en sigurmarkið kom í
uppbótartíma. Stephen Hunt geyst-
ist upp vinstri kantinn og lagði bolt-
ann út í teig þar sem James Harper
kom á ferðinni og tryggði Reading
gríðarlega mikilvægan sigur í botn-
baráttunni.
Gareth Southgate, stjóri Middles-
brough, var vonsvikinn í leilcslok. „Við
gerðum ekki nóg til að vinna leikinn
þrátt fyrir að við hefðum verið líklegri
til að skora. Þeir spiluðu mjög vel og
við vomm þreyttir eftir bikarleikinn í
vikunni sem fór í framlengingu. Við
náðum ekld að brjóta þá niður, and-
rúmsloftið á vellinum var lélegt og
smndum þurfa stuðningsmennirnir
að stíga upp með oklcur" sagði South-
gate.
Það var annað hljóð í Steve Copell
en þungu fargi var létt af honum með
sigrinum. „Þetta voru frábær úrslit,
að hafa ekki unnið á útivelli á þess-
ari leiktíð. Leiksldpulagið gekk full-
komlega upp, við vissum að Middl-
esbrough hefði spilað í 120 mínútu
í miðri vilcu, við vissum að þeir yrðu
þreyttir síðustu 10 til 15 mínúturnar
og það sannaði sig. Að halda hreinu
var frábært og að taka stigin þrjú var
mikilvægt. Það var frábært að ná stígi
og ég vona að þetta hafi bara verið
byrjunin," sagði Copell. -hsj
Q.<| Harpef90.
56% MEÐ BOLTANN 44%
MIDDIESRR0U0H
13 SK0TAÐMARKI
3 SK0TÁMARK
2 RANGSTÖÐUR
7 H0RNSPYRNUR
g Sdiwarzef,Young,Wheater,
F’ogatetz, Grounds, 0'Neil,
3 Boateng (Johnson 74), Arta
5 (Cattermole59),Downing,Alves
(Mido 68), Sanli.
17 AUKASPYRNUR 11
4 GUL SPJÖLD 5
0 RAUÐ SPJÖLD 0
ÁH0RFENDUR: 23,273
READIN0
Hahnemann,Rosenior,lvar,
Bikey, Shorey, Oster (Kitson 68),
Harper, Matejovsky (Kebe 85),
Hunt, Doyle (Qsse 85), Long
waÆgjsari,
TlT^llf1riT*
MAÐUR LEIKSINS
James Harper, Reading
Hetja Reading
James Harper fagnar sigurmarkinu.
Jafntefli hjá Man.
City og Wigan.
SÓKNIN
í M0LUM
Smá hikst og smá áhyggjur Sven-
Göran Eriksson hefur áhyggjur af
sóknarleik liðsins.
Manchester City hikstar í bar-
áttunni um Evrópusætí og að
þessu sinni var það Wigan Athletíc
sem náði stigi á City of Manchest-
er stadium. Fyrri hálfleikur var
slakur og fátt um færi. Einu sldpt-
in sem marki var ógnað var þeg-
ar Manchester City-menn skutu
löngum skotum að Kris Kirkland,
markverði Wigan. Ekkert mark var
þó skorað í fyrri hálfleik og áhorf-
endur bauluðu á leikmenn þegar
þeir gengu til búningsklefa. Wigan
kom sterkt inn í seinni hálfleik þó
Manchester City hefði fengið íyrsta
færið. Benjani Mwaruwari fékk
góða sendingu fyrir markið en hitti
knöttinn illa á marlcteig og hann fór
ffamhjá. Ergelsi áhorfenda minnk-
aði ekki við það að Wigan fór að
halda boltanum meira og meira.
Eftír slæmt tap fýrir Everton síð-
astliðinn mánudag vildu áhang-
endur City fá jákvæðari viðbrögð
frá sínum mönnum. Wigan var
nærri því að skora undir lok leiks-
ins þegar Palacios skaut föstu skotí
frá vítapunkti en Joe Hart varði
vel, Palacios skaut svo föstu skotí
langt yfir markið úr ffákastinu.
Leikar enduðu því 0-0 og Sven-
Göran Eriksson hefur áhyggjur af
sóknarleik liðsins. „Ef við sækjum
ekld hratt eigum við í erfiðleikum
með að skapa færi. En mér fannst
við hættulegir allt þar til í lokin en
við náðum ekki að skora og því fór
sem fór. Ég hef áhyggjur af marka-
leysi okkar á heimavelli og við
náum ekki brjóta niður varnir and-
stæðinganna. Við þurfum á sigri
að halda," segir Eriksson. Steve
Bruce, stjóra Wigan, langaði í sig-
ur. „Maður tekur alltaf stigi en mér
finnst að við hefðum átt að vinna.
City elti okkur allan leikinn og við
fengum eitt til tvö mjög góð færi.
Ef við höldum áfram að spila með
þessum styrk náum við að tryggja
okkur í deildinni. Mér fannst við
frábærir á löngum köflum í leikn-
um. Við börðumst eins og ljón en
við nýttum ekki færin okkar," segir
Eriksson. vidar@dv.is
JH
II 0:0
52% MEÐ B0LTANN 48% MAN.CIIY
9 SKOTAÐMARKI 4 3 SKOlAMARK 1 3 RANGSTÖÐUR 4 7 HORNSPYRNUR 7 Hart, Coriuka, Dunne, Onuoha, Ball,Vassell, Gelson, Elano (Cakedo 49), Johnson, Ireland (Castillo 63), Mwaruwdri.
11 AUKASPYRNUR 12 WIGAN
0 GULSPJÖLD 1 0 RAUÐ SPJÖLD 0 ÁHORFENDUR: 38,261 Kiridand, Melchiot, Schamer, Boyce, Edman,Valencia, Brown, Palacios, Koumas, Heskey, King (Sibierski 66).
1 f f|Tf|’ 1 MAUUR LEIKSINS
Paul Scharner, Wigan