Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 3. MARS 2008
Síðast en ekki síst DV
t.
BÓKSTAFlega
„Þetta mark er brandari."
■ Arnar Björnsson, íþróttafréttamaður á
Sýn, að lýsa leik Bolton og Liverpool
eftir að Steve Gerrard setti knöttinn (
markið á ævintýralegan hátt.
„Ég get ropað rosalega hátt
oglengi."
■ Hin glæsilega Svala
Björgvins, í DV,
spurð hvort hún
hafi einhverja
leynda hæfileika.
„Stílistarhafa
eyðilagt allt. Engin vill vera
Björk, ég elska Björk og við
þurfum Björk,"
i Bandaríski
kvikmyndaleikstjór-
inn John Waters í
tískutímaritinu
WWD.
„Nei,égheld
ekki, þeir eru svo viðkvæm-
ir þarna í Bandaríkjunum."
■ Rúnar Rúnarsson kvikmyndagerðar-
maður, í MBL. Rúnar var tilnefndur til
Óskarsverðlauna fyrir stuttmyndina
Síðasti bærinn í dalnum. En er ekki viss
um að næsta mynd hans hæfi
Akademíunni.
„Hjörð afógeðum."
■ Gagnrýnandi blaðsinsNewYorkSun
segirað (slendingar
séu ekki sýndir (
fögru Ijósi í Mýrinni
eftir Baltasar
Kormák.
%
„Allt stafar
þetta af, að fólk
er fífl. Það hefur ekki greind
til að leika hlutverk herra
jarðar."
■ Jónas Kristjánsson,
jonas.is. Jónas er
einn þeirra sem
gruna að heimurinn
sé að fara til
fjandans.
„Ég hélt þetta væri einhver
snilld en þá var þetta bara
Pappírs-Pési 2"
■ Dr. Gunni á bloggi
sínu, um kvikmynd-
ina Astrópíu sem olli
honum vonbrigð-
„Þeirgera
spurt sig Framarar,
hverjir em Reykjavíkurstór-
veldið."
■ Sigurður Eggertsson, leikmaður Vals,
- enhannogfélagar
hans hömpuðu
l-lPfc JS1 bikarmeistaratitl
&&&! ioum um helgina
‘ með fræknum sigri
pr áFram-
LORDILANGAR AÐ
HITTA SILVÍU NÓTT
Finnska skrímslið Lordi
var statt á landinu um helgina í tilefni
þess að hryllingsmyndin Dark Floors,
The Lordi Motion Picture, var frum-
sýnd á föstudaginn. Lordi sigraði svo
eftirminnilega í Eurovision-keppninni
árið 2005 og er myndin byggð á
persónum hljómsveitarinnar.
Hver er Lordi?
„Lordi er karakter. Hann er mesta
skrímsli allra skrímsla, hann er stór
og mikill og söngvari í hljómsveit-
inni Lordi."
Hvaðan ert þú?
„Ég er frá Lapplandi í Finnlandi."
Hvernig finnst þér ísland?
„Mér finnst það frábært. Ég er búinn
að vera svo hissa á því að það séu
engin tré hérna en ég var einmitt
að keyra áðan og sá glitta í nokkur.
Mér finnst líka mjög undarlegt veð-
ur hérna. Akkúrat núna er mjög fal-
legt veður en það gæti orðið snjó-
stormur hérna eftir fimm mínútur.
Ég held að ísland sé ekki á þessari
jörð. mér líður eins og ég sé á tungl-
inu eða eitthvað."
Af hverju kepptuð þið í Euro-
vision?
„Okkur var boðið að taka þátt. Við
vorum náttúrulega sannfærðir um
að við myndum aldrei sigra svo
við ákváðum bara að skella okkur í
sjónvarpið til að kynna nýju plötuna
okkar sem var að koma út."
Voruð þið frægir áður en þið
tókuð þátt t Eurovision?
„Já, í Finnlandi, Þýskalandi, Bret-
landi, Ástralíu, Spáni og Sviss. Ég
held reyndar að það sé ástæðan
fyrir því að við unnum keppnina.
Því aðdáendur okkar eru ekki vanir
að horfa á Eurovision og taka þátt
í kosningunni en þarna gerðu þeir
það og kusu okkur svo við unnum."
Hefur þú heyrt íslenska Eurov-
ision-lagið í ár?
„Nei, reyndar ekki en ég fílaði Silvíu
Nótt vel á sínum tíma. Eg var reynd-
ar mjög hissa á því að hún væri hætt
með þann karakter og að það hefði
allt farið niður á við hjá henni eft-
ir Eurovision. Ég væri virkilega til í
að hitta hana núna. Kannski reyni
ég bara að koma mér í samband við
hana og hitta á hana?"
Hver eru áhugamál þín?
„Hart rokk, hryllingur í allri sinni
mynd, góður matur, nammi, gos-
drykkir og hundar. Listinn er reynd-
ar miklu lengri en einhvers staðar
verð ég að hætta."
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn?
„Pitsa með pepperóní og tvöföldum
skammti af osti."
Hvað óttast þú mest?
„Sem Lordi óttast ég ekki neitt en
þegar ég er kominn úr karakter ótt-
ast ég það sama og aðrir. Ég óttast
hlýnun jarðarinnar og allar þessar
klisjur. Svo er ég líka mjög hræddur
við hesta."
Hver er uppáhaldshryllings-
myndin þín?
„The Ring, Evil Dead 2 og Texas
Chainsaw Massacre."
Átt þú fjölskyldu í Finnlandi?
„Já, ég á eiginkonu og þrjá hunda.
Þegar ég er kominn í Lordi-búning-
inn er ég eins og risastórt hunda-
dót fyrir hundana mína því bún-
ingurinn er búinn til úr gúmmíi."
Hver er draumurinn þinn?
„Það er að vera kleift að gera það
sem mig langar að gera eins lengi og
ég get."
SANDKORN
■ Eins og fram kom í DV síðast-
liðinn föstudag mun Jón Jósep
Snæbjörnsson í hljómsveitinni
í svörtum
fötum ljúka
störfum
hjá Glitni
ánæstu
mánuð-
um. Héldu
margir að
Jónsi hefði
verið rekinn
ásamt öðrum starfsmönnum úr
viðburðardeild. En svo var víst
ekki, Jónsi var aðeins ráðinn
sem verktaki og var því Ijóst frá
upphafi að hann myndi ljúka
störfum í vor. Hins vegar hafa
Glitnis-menn verið eitthvað
ákafir því búið er að strika Jónsa
út af starfsmannalista sem hægt
er að sjá á heimasíðu Glitnis.
■ Eins og kunnugt er skiptust
starfsmenn Rásar 1 og Rásar 2
á þáttum síðastliðinn föstudag í
tilefni hlaupársdagsins. Magn-
ús Már Ein-
arsson, sem
aUajafna sér
um þátt-
inn Brot úr
degi á Rás 2,
stýrði Hlaup- ý
anóttmni en
í stað hans
hélt Sigríður
Stephensen um stjórnartaum-
ana í Brot úr degi. Sigríði leysti
verldð bara vel af hendi, og nýtti
hún líka tækifærið til að skjóta
létt á Magnús. Eftir að hún hafði
kynnt sig í upphafi þáttar og
útskýrt fjarveru hans sagði hún
hlustendum að sökum vista-
skipta þáttastjómenda mætti
búast við færri fréttum af Amy
Winehouse, tunglinu og Elvis
í Brot úr degi þennan föstudag-
inn.
■ Danska hljómsveitin Munich,
sem spilaði á þrennum tónleik-
um á Islandi á dögunum, hefur
greinilega verið iðin við að taka
myndir á íslandstúr sínum.
Á myspace-síðu sveitarinnar,
myspace.com/munichdk, má
sjá fjölda mynda frá klakanum.
Bæði frá tónleikum þar sem
má sjá glitta í hressa íslenska
tónleikagesti og ffá daglegu lífi
sveitarinnar. Er ekki annað að
sjá en þessar dönsku indí-popp-
stjömur hafi skemmt sér vel á
íslandi.