Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2008, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 10. MARS 2008
Umræða DV
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðiö-Vísir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
JónTrausti Reynisson og ReynirTraustason
FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson
FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins á stafrænu
formi og (gagnabönkum án endurgjalds.
öll viötöl blaösins eru hljóðrituö.
AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010,
ÁSKRIFTARSlMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40.
SANDKORN
■ Landsmenn tóku höndum
saman í síðustu viku og söfn-
uðu fé í styrktarsjóð UNIFF.M
til afnáms
ofbeldis gegn
konum að
frumkvæði
Hrundar
Gunnsteins-
dóttur og
samherja í
Fiðrildavik-
unni. Hertz
lagði sitt af mörkum og auglýsti
í síðustu viku að tíu prósent af
leigu kvenna rynnu í sjóðinn.
Einhverjum svelgdist á enda
ólöglegt að leigja konur út.
Nema auðvitað að hugsunin
væri sú að tíu prósent af þeirri
leigu sem konur greiddu fyrir
bílaleigubíla rynni í sjóðinn.
Og kynnu þá einhverjir að tala
um mismunun á grundvelli
kynferðis.
■ Ómar Ragnarsson lendir enn
í vanda með netið á ferðalög-
um sínum. Fyrir nokkru var
hann á ferð á Norðurlöndum
og hét því þá að fara eftirleið-
is með eigin tölvu í ferðalög til
útlanda vegna þess að hann gat
ekki skrifað á heimasíðu sína
meðt'slenskum stöfum. Ómar
hafði því
varann á
sér þegar
hann hélt
til Flór-
ída nýlega
og hafði
fartölvuna
með. Það
skilaði þó
ekki tilætluðum árangri því
einhverra hluta vegna reyndist
hvergi unnt að tengja fartölv-
una. Varð Ómar því að sætta sig
við að skrifa áfram á heimasíðu
sína án íslenskra broddstafa.
■ Allsherjarnefnd kemur sam-
an í dag. Engir þingfundir eru
í dag og á morgun og því ætti
nefndarmönnum að gefast
góður tími til að ræða hin ýmsu
mál sem bíða nefndarinnar.
Það mál nefndarinnar sem
mest hefur verið rætt um opin-
berlega undanfarið er þó hvergi
að finna á dagskránni. Það er
frumvarp Valgerðar Bjarna-
dóttur um að afnema lífeyris-
sjóðsforréttindi þingmanna.
Birgir Ánnannsson, formaður
nefndarinnar, benti auðvitað
á það í síðustu viku að venjan
væri að ræða helst stjórnar-
frumvörp og væru þingmanna-
frumvörp aftarlega í forgangs-
röðinni.
■ Eitt eftirminnilegasta við-
talið sem tekið hefur verið við
Björn Bjarnason var viðtalið
sem Koíbrún Bergþórsdóttir
tók við hann fyrir margt löngu
þar sem Björn lýsti aðdá-
un sinni á
Bruce Willis.
Kvikmyndir
eru honum
enn ofarlega
í huga og
undrast hann
á vef sínum
grimmdina
og ofbeld-
ið í óskarsverðlaunamyndun-
um There Will Be Blood og No
Country For Old Men.
LEIDARI
Varðmenn hás matarverðs
BRYNJÓLFUR Þ0R GUÐMUNDSSON FRETTASTJÓRISKRIFAR.
„ 1‘etln ertiuói’ilad svo mikil Inasni ud Ámi ivtti uö skammast sin."
Ráðherrarnir Einar K. Guðflnnsson og Ámi Mathiesen
ætla að tryggja að íslendingar greiði áfram eitthvert
hæsta matvælaverð í heimi. Þeirra pólitíska starf í þess-
um geira mannlífsins miðar að því að það verði mun dýr-
ara en þörf krefúr að kaupa í matinn.
Einar og Ámi hafa báðir lýst því yflr að undanförnu að ekki
standi tU að lækka vemdartoUana sem íslenska landbún-
aðarkerfið snýst að stórum hluta um. Þessir vemdar-
toUar sem em notaðir tíl að halda uppi aUtof háu mat-
arverði eiga sér trausta verjendur í landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðherra og fjármálaráðherra. Þannig er
tryggt að íslenskir neytendur verða að greiða eitt allra
hæsta matvælaverð sem um getur á jarðarkringlunni.
Fátæku fólki er gert enn erfiðara fyrir en eUa að kaupa
inn tíl heimUisins. Þetta er stefna Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks, að því er virðist Frjálslynda flokksins og
Vinstri-grænna líka. Einhverjar raddir heyrast í aðra átt frá Sam-
fylkingunni en ekki verður vart að því fylgi nokkrar gjörðir, bara
tal. AUa vega er víst að það er stefna þessarar ríkisstjórnar líkt og
þeirrar síðustu að íslenskir neytendur eigi að borga miklu meira
fyrir matinn en þeir þyrftu að borga ef opnað væri fyrir samkeppni
frá útlöndum. Stjómarherrum finnst að því er virðist hið besta
mál að maturinn sé dýr á íslandi.
Ámi Mathiesen fjármálaráðherra sagði í svari við fyrirspum
Bjama Harðarsonar, þingmanns Framsóknarflokksins, fyrir helgi
að Bjami þyrfti ekki að hafa áhyggjur af þvf að nokkur sú vinna
væri í gangi þar sem hagsmunir annaðhvort neytenda eða bænda
væm fyrir borð bomir. Þetta er auðvitað svo mikU hræsni að Ámi
ætti að skammast sín. Hagsmunir neytenda em fyrir borð
bomir hvem einasta dag ársins. Þetta hafa íslensk
stjórnvöld tekið ískalda ákvörðun um. íslensk stjórn-
völd ráða því að toUar á margar erlendar matarteg-
undir em svo háir að íslenskir framleiðendur geta
sett upp nánast hvaða verð sem er fyrir afurðir sín-
ar. Samkeppnin frá útlöndum er nefhUega stoppuð
af. Nú er í tísku að tala um mataröryggi þjóðar. SUkt
tal er fyrirsláttur. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af
því að svelta við það eitt að íslenskir bændur verði að
búa við samkeppni erlendis frá eða að maturinn yrði stór-
hættulegur. Matarverð yrði sennUega sveiflukenndara en verið
hefur. Það væri þó ekki slæmt. Það er betra að borga sveiflukennt
lágt verð en stöðugt hátt verð. Höfum í huga að vemdartoUamir í
landbúnaði eru og hafa aUtaf verið hugsaðir tU að vernda bænd-
ur gegn erlendri samkeppni. Þeir hafa aUtaf verið hugsaðir tU að
halda verði háu. Svo lengi sem ráðamenn viðhalda vemdartoUun-
um viðhalda þeir háu matvælaverði. Þeir ættu að skammast sín.
FLAGARANN AFTUR í HVÍTA HÚSIÐ
Svarthöfði man hversu heim-
urinn var góður á meðan flag-
arinn Bill Clinton réð ríkj-
um í Hvíta húsinu. Clinton hafði
meiri áhuga á því að subba út bláa
kvöldkjóla en drepa Araba. Og þess
vegna var hryðjuverkavá ekki helsta
áhyggjuefni heimsbyggðarinnar sem
glímdi við það lúxusvandamái að
reyna að átta sig á hvort munnmök
skilgreindust sem kynlíf eður ei.
Þegar flagarinn tókföggur sínar
fyllti veruleikafirrtur púrítani
og alki á þurrafylliríi
skarð hans og heimur-
inn fór á hliðina. Turnar
hrundu og blóð sak-
lauss fólks í Afganistan
og Irak blandaðist galls-
vartri stríðsgróðaolíu.
Flagarar eru betri leið-
togar en ofsatrúarmenn.
Það veit Svarthöfði enda sjálfur
lausgyrtur en hefur aldrei gert flugu
mein svo heitið geti. Svarthöfði hef-
ur síðustu mánuði því eðlilega alið
í brjósti sér draum um veröld betri
þar sem góðar líkur em á að flagar-
inn Clinton komist aftur í Hvíta hús-
ið. Að vísu nú undir pilsfaldi
hinnar kokkáluðu eigin-
konu sinnar.
Svarthöfða brá því
illilega í síðustu
viku þegar sjálft
Ríkissjónvarpið upp-
lýsti nánast allan lands-
lýð, sem horfir nauðbeygð
ur á RÚV með rafmagnsmæli
ívasanum, að Hillary Clinton
hefði uppi áform um að myrða
amerísk börn í fastasvefni.
Þessu átti Svarthöfði bágt með
að trúa þótt ýmsu megi ljúga
upp á þau heiðurshjón, Hill
og Billary, í ljósi þess að þeim hefúr
orðið fótaskortur á siðferðissvellinu.
En George W. Bush hefúr hingað
til sýnt miklu sterkari tllheigingu til
þess að vilja myrða börn en nokk-
urn tíma hin landsmóðurlega
Hillary.
A uðvitað má halda því
J \ fram að hjónin séu gír-
X Aug og valdagráðug og
fórni öllum prinsippum til þess
að endurheimta kalda hjónasæng
sína í Hvíta húsinu. Annars
væm þau vitaskuld löngu skilin.
1 T“
Vs
rangaveltur um siðleg hei-
lindi þeirra eru þó aukaat-
riði þar sem Bill hefur þeg-
ar sýnt fr am á að krónískir flagarar
og siðleysingjar geta verið fyrirtaks
forsetar. Það er því með öllu ólíðandi
að ríkisstofnun með einokunarstöðu
á fjölmiðlamarkaði skuli leggjast jafn
lágt og raun bar vitni í ófærgingar-
herferð gegn þeim hjónum.
S'
t
t
I varthöfði skilur í
.raun ekkert í því
' hvers vegna kosn-
ingaskrifstofa Hillaryar
hefur ekki gert athug-
semd við fréttaflutning
Kastljóss og ráðið Vilhjám H.
Vilhjálmsson lögmann
til að gæta réttar síns
gagnvart íslenska
bákninu.
Svarthöfði
deilir ekki
jafnaðargeði
hins skörulega forseta-
frambjóðanda og mun gera Þórhall
Gunnarsson í Kasdjósi og hans fólk
persónulega ábyrgt fyrir því ef helför
heimsbyggðarinnar mun halda
áfram í fjögur ár komist flag-
arinn ekki aftur að eftirsótt-
asta kjötkatli heims. Þar
sem hann getur útdeilt rétt-
læti og sæði sínu á meðan
heimsbyggðin jafnar sig á
afleiðingum átta ára fjarvem
hans.
SVARTHÖFÐI
DÓMSTÓLL GÖTUmAR
Á AÐ DRAGA ÚR TOLLUM Á INNFLUTTA MATVÖRU?
„Matvöruverð er alltof hátt á íslandi og
lækkun tolla myndi auka samkeppni.
Það hlýtur að vera til góðs."
Kristmann Eiðsson,
71 árifyrrverandi kennari
„Já, ég tel það stuðla að samkeppni og
lægra matarveröi. Þessi tvö atriði
vantar bæði í þjóðfélagið. Landbúnað-
urinn stenst þetta með þvl að gera það
sem hann gerir best, að framleiða
hágæðavörur."
Kristján Stefánsson,
38 ára söiumaður
„Ég vil hafa verndartoll á innlenda
framleiðslu. Mér finnst óskynsamlegt
þegar menn tala um að það eigi að
flytja allt inn. Við eigum að vera okkur
sjálfum næg."
Sverrir Kristjánsson,
65 ára bóndi
„Já, það er frumskilyrði ef við ætlum að
borða. Ég held að þetta myndi líka
leiða til þess að fólk myndi borða
hollari mat, þar sem það gæti nálgast
gæðavöru á lægra verði."
Hrafnhildur Hákonardóttir,
48 ára einkaþjálfari