Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2008, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 10. MARS 2008
Sport PV
Ten Cate skammar fjölmiðla
HenkTen Cate, yfirmaður knattspyrnu-
mála hjá Chelsea, segir harða gagnrýni
fjölmiðla hafa áhrif á undirbúning liðsins
fyrir leiki.„Maður
hefði ekki haldið
að það væri
svona mikil
pressa frá
fjölmiðlum þar
sem við erum að
standa okkurvel.
Hinsvegarer
hún gríðarlega
mikil. Ein slæm
úrslit og allir eru tilbúnir að hengja þig f
fjölmiðlum. Ég kom til Chelsea í leit að
friði. Ég vildi vinna á toppnum en á
sama tfma fá frið, en það er ekki hægt í
Englandi. Það sem fer mest í taugarnar á
mér er þegar leikmenn leka sögum
vísvitandi af æfingasvæðinu en svona er
þetta," segirTen Cate.
Ég er ekki slæmur strákur
Emmanuel Eboue, leikmaður Arsenal,
hefur legið undir ámæli á yfirstandandi
leiktíð í ensku úrvalsdeildinni fyrir að
vera óheiðarleg-
urleikmaður.
Eboue hefur
fengiðfimmgul
spjöld auk þess
að hafa fengið
rautt spjald í
ensku
bikarkeppninni f
leikgegn
Manchester
United. Hann segist hins vegar vera
dæmdur óheiðarlega.„Fólk heldur að ég
sé slæmur strákur en ég er það ekki. Ég
er heiðarlegur leikmaður. Ég sver að ég
snerti Evra aldrei og veit ekki af hverju
ég fékk rautt spjald. Ég stökk upp í loftið
til þess að verja mig, annað ekki. Ég veit
það núna að ég þarf að fara varlega
þegarég erá vellinum," segir Eboue.
Hugsar um aö breyta leikstílnum
Cristiano Ronaldo leikmaður
Manchester United segist hugsa um að
breyta leikstíl sfnum vegna þess að
leikmenn með tækni fá ekki vernd frá
dómurum.„Dómarar vernda ekki
tækníska leikmenn. Ég hugsa að
Eduardo, eins og ég, sé stundum
hræddur við að nota tækni mína af því
að sumir leikmenn þrjóta hrottalega á
manni og dómarar vemda varnarmenn,
ekki tækníska leikmenn. Þetta er mjög
leiðinlegt og ég hugsa mikið um að
breyta leik mínum þegar dómarar
dæma ekki vfti, gefa gul spjöld eða rauð.
Það er mjög erfitt að spila undir svona
aðstæðum," sagði Ronaldo.
Ferdinand vill enda ferilinn hjá
United
Rio Ferdinand, leikmaður Manchester
United, vill enda ferilinn hjá Manchester
United.„Ég vil enda feril minn hjá United
og planið er að skrifa undir nýjan
samning sem mun tryggja það. Ég vil
ekki tala um það sem gerðist í fortíðinni,
ég held að það sé augljóst að ég er
ánægður hjá United. Það er mikilvægt
fyrir mig að tryggja framtíð mfna hérna.
Það er mikilvægt fýrir alla að vita hvað
framtíðin ber í skauti sér og ég held að
félagið sé að halda mörgum leikmönn-
um,"sagði Ferdinand.
Tottenham vann 4-0 sigur á West Ham en varnarleikur West Ham er í molum
1' Æ l V V V c Éfl l-. H .
i w l - V i* Ky\lí| HlL, ' .srom
BERBATOV SKORAÐI
MEÐ SKÖLLUM
id
HORÐUR SNÆVAR JONSSON
bladamcidur skrifar: sportwdv.is
Það var Lundúnarslagur á White Hart
Lane í gær þegar West Ham sótti Tot-
tenham heim. Fyrsta mark leiksins
kom eftir átta mínútur, Tom Huddles-
tone tók aukaspyrnu á vallarhelmingi
West Ham, hann sendi íyrir markið
þar sem Dimitar Berbatov var réttur
maður á réttum stað og skallaði bolt-
ann fram hjá Robert Green. Berbatov
var aftur á skotskónum aðeins þrem-
ur mínútum síðar. Aftur var það Tom
Huddlestone sem var maðurinn á bak
við markið, hann tók aukaspyrnu á
vinstri vængnum og aftur rataði bolt-
inn á kollinn á Berbatov sem sneiddi
knöttinn í netið. Þegar ein mínúta var
eftir af fyrri hálfleiknum var Luis Boa
Morte vikið af velli þegar hann fékk
sitt annað gula spjald í leiknum.
Það var ekki fyrr en að fimm mín-
útur voru til leiksloka að Tottenham
náði að auka forystuna og það var
varamaðurinn Gilberto sem skor-
aði eftir undirbúning frá Steed Mal-
branque og Aaron Lennon. Það var
svo Darren Bent sem skoraði síðasta
mark leiksins í uppbótartíma með
góðum skalla og þar við sat. Varnar-
leilcur West Ham í síðustu þremur
leikjum hefur verið skelfilegur, lið-
ið hefur fengið á sig 12 mörk og ekki
skorað eitt einasta mark.
Frábær frammistaða
Gus Poyet, aðstoðarþjálfari Tot-
tenham, var gríðarlega sáttur með
sína menn eftir sigurinn og hrósaði
Dimitar Berbatov mikið í leikslok.
„Þetta var ffábært. Við byrjuðum leik-
inn með tveimur mörkum en tókum
samt ekki of mikla áhættu þegar þeir
misstu mann út af. Við héldum bolt-
anum vel og að sjálfsögðu vorum við
alltaf að leita af þriðja markinu. Þetta
var frábær ffammistaða og ég er gríð-
arlega ánægður. Við vissum að þetta
yrði erfitt því West Ham hefur ekki
gengið vel í síðustu leikjum og því var
mikilvægt að byrja vel. Þetta voru tvö
frábær skallamörk og tvær ffábærar
sendingar frá Tom Huddlestone. Þeg-
ar þú ert með leikmenn eins og Ber-
ba þá veistu að þú munt skora mörk,"
sagði Gus Poyet.
Alan Cubishley, stjóri West Ham,
var ekki mjög borubrattur eftir leik en
vörnin hefur verið í algjörum molum
í síðustu leikjum. Liðið hefur tapað
síðustu þremur leikjum með marka-
tölunni 4-0 gegn Chelsea, Liverpool
og nú Tottenham á síðustu átta dög-
m
Bcttwtov8,11,Gilberto85, A, 8ont90. 55% MEÐ BOLTANN 45% 0
T0TTENHAM
SKOTAÐMARKI
SKOTÁMARK
RANGSTÖÐUR
H0RNSPVRNUR
AUKASPVRNUR
GULSPJÖLD
RAUÐ SPJÖLD
ÁH0RFENDUR: 36J>6
Robinson, Hutton, Dawson,
Woodgate(Tainio77),
Chimbonda, Lennon,Zokora,
Huddlestone, Maibranque
(Gilberto 58), Berbatov, Keane
Green, Neill, Ferdinand, Spector,
McCartney, Ljungberg (Rantsil
71), Parker (Noble 76), Mullins,
Boa Morte, Ashton (Cole 77),
Zamora.
wxss imrééé í
l í ■ HBiB™ r Dimitar Berbatov, Tottenham
um. „Þetta var Chelsea, Liverpool
og núna Spurs, við fórum inn í viku
með von um að fá eitthvað úr þess-
um leikjum en það varð ekki raunin.
Þetta var hræðileg vika, það sem við
verðum að gera núna er að reyna að
enda tímabilið eins vel og við getum.
I þessum þremur leikjum höfum við
verið að gefa heimskuleg mörk," sagði
Curbishley.
Everton lagði Sunderland á Leik-
vangi ljósanna. Sigurmarkið gerði
Andy Johnson með skalla eftir send-
ingu frá Mikel Arteta. Everton fylgir
Liverpool því eins og skugginn í bar-
áttunni um 4. sætið í ensku úrvals-
deildinni.
Fyrri hálfleikur fer seint í sögu-
bækurnar fyrir skemmtanagildi.
Tim Cahill, leikmaður Everton, var
nærri því að skora þegar skalli hans,
eftir hornspyrnu Arteta, endaði í
stönginni. Ljóst var að Sunderland-
menn ætluðu ekki að tapa leiknum
og hugsuðu fyrst og fremst um að
halda markinu hreinu. Roy Keane
hefur eflaust verið minnugur þess
hvernig lið hans tapaði í fyrri leik
liðanna á Goodison Park þegar Ev-
erton niðurlægði Sunderland með
7-1 sigri.
Everton-menn voru ekkert sér-
staklega góðir í því að brjóta niður
sterkan varnarleik heimamanna og
færin því fá.
Sóknir Everton báru loks árangur
á 55. mínútu. Mikel Arteta sendi fyr-
ir markið á nærstöng. Þar var mætt-
ur Andy Johnson sem skoraði með
höfði, öxl eða hendi. Ekki var það
fallegt mark, en taldi engu að síður.
Sunderland kom úr skotgröfun-
um eftir markið en ógnaði marki Ev-
erton sjaldan.
Leikurinn virtist ætla að fjara út
og heimamenn voru fjarri því að
jafna þar til í uppbótartíma. Andy
Reid átti þá hörkuskot úr auka-
spyrnu sem Tim Howard, mark-
vörður Everton, varði með tilþrif-
um. Þetta var síðasta færi leiksins
og Everton heldur áfram að hala inn
stigum í ensku úrvalsdeildinni.
David Moyes var afar sáttur við
sigurinn. „Við erum nýkomnir úr
erfiðu ferðalagi frá ítalíu og því var
þessi sigur afar góður. Við þurfum
að einbeita okkur að því að halda
áfram að bæta leik okkar. Mér er
sama hvað Liverpool-menn eru að
gera. Tim Howard gerði mjög vel
þegar hann varði aukaspyrnuna
og markvarslan kom á mikilvægu
augnabliki," segir Moyes.
vidar@dv.is
Mikel Arteta
Kom inn í lið Everton
eftir meiðsli og lagði
upp mark.
Everton gefur ekkert eftir í baráttunni um íjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
EVERTON GERÐINÓG