Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2008, Side 29
DV Fólkiö
MÁNUDAGUR 10. MARS 2008 29
OLAFUR DE FLEUR MEÐ MORG JARN I ELDINUM
Ólafur de Fleur
Jóhannesson leggur nú
lokahönd á Stóra planið
„Það er ekki búið að læsa því alveg og því
vil ég ekki tala um það," segir Ólafur de Fleur
Jóhannesson kvikmyndagerðarmaður þegar
blaðamaður spyr hann út í orðróm um að sýna
eigi sérstaka útgáfu, og lengri, af mynd hans,
Stóra planið, í Ríkissjónvarpinu í náinni framtíð.
Ólafur er nú að leggja lokahönd á myndina
en stefnt er að frumsýningu í íslenskum
kvikmyndahúsum þann 28. mars.
„Lengri útgáfan fer á DVD en annars er ekki
búið að læsa þessu alveg. Ýmislegt getur gerst
og á meðan hlutir eru ekki læstir þá vil ég ekkert
vera að tala um þá," segir Ólafur. Hann segir hins
vegar allt á fljúgandi áætlun með frumsýninguna
í lok mánaðarins. „Það var verið að leggja
lokahönd á hljóðið og þetta er í rauninni allt á
góðri leið. Það eru ansi mörg handtök sem fylgja
þessu alltaf. Annað hvort vakir maður langt fram
eftir eða vaknar mjög snemma. Aðalatriðið er
bara að drulla sér í leikfimi á hverjum degi og þá
hefur maður orku í þetta."
Tekinn fram yfir Peter Jackson
f mjög stuttu máli fjallar Stóra planið um
handrukkarasemverðuraðalmaðurinnígenginu
sínu þegar hann hittir grunnskólakennara
sem þykist vera glæpakóngur. Undirtitillinn er
„Næstum því gangster mynd" og eins og nærri
má geta er hún í léttum dúr. Á meðal íslenskra
leikara í myndinni eru Pétur Jóhann Sigfússon,
Ingvar E. Sigurðsson og Eggert Þorleifsson.
Eins og virðist æ algengara í íslenskum
myndum eru þarna líka þekktir erlendir leikarar,
til að mynda Michael Imperioli, sem leikur í
Sopranos-þáttunum og lék í Goodfellas og Jungle
Fever, og Robert ,Toshi' Kar Yuen Chan sem lék
í The Departed. Að sögn Ólafs verður Imperioli
því miður ekki viðstaddur frumsýninguna því
hann er að leika í lítilli mynd sem enginn annar
en Peter Jackson er að leikstýra á Nýja-Sjálandi.
„Þetta er náttúrlega óþolandi að maður sé ekld
látinn ganga fýrir" segir Ólafur í léttur dúr. „Það
væri auðvitað gaman að bjóða Michael en það
er bara ekki hægt." Hins vegar á Ólafur von á
því að einhver hinna erlendu leikaranna verði á
frumsýningunni.
Englar sem hafa það skítt
Ólafur er ekki við eina fjölina felldur í kvik-
myndagerðinni frekar en fýrri daginn því mynd
hans The Amazing Truth About Queen Raqu-
ela verður frumsýnd á fslandi 25. apríl. Eins og
greint hefur verið frá var myndin frumsýnd á
Kvikmyndahátíðinni í Berlín í síðasta mánuði og
fékk þar svoköfluð Teddy-verðlaun sem veitt eru
af The Internationaf Gay & Lesbian Film Festival
Associatíon. Þá hefur hann verið að leggja drög
Vigalegir Leikhópurinn í
Stóra planinu er ekki
amalegur en hann skartar
m.a. Michael Imperioli
(Sopranos, Goodfellas),
Ingvari E. Sigurðssyni og
Pétri Jóhanni Sigfússyni.
að mynd sem ber vinnuheitið Diary of a Circ-
ledrawer sem gerist að hluta tíl á íslandi og að
hluta í New York og dvaldist hann af þeim sökum
í Stóra eplinu fyrr í vetur.
„Hugmyndin byggist á englaheimi. Englum
sem hafa það meira skítt en manneskjur,"
segir Ólafur. „Ég var að taka í litla sjón
varpsmynd sem ég er að gera um það
New York, bara svona til að sjá hvernig sá
heimur kemur yfir á fllmu áður en mað-
ur fer yfir í einhverja stærri mynd. Það
er ágætt að skjóta eitthvað og flkta, og
svo kemur það bara annaðhvort illa
eða vel út. Og þá heldur maður áfram
eða ekki." kristjanh@dv.is
■Mr . ■■■■■■■■
Ólafur de Fleur
Jóhannesson Segir allt á
fljúgandi áætlun með
frumsýningu Stóra
plansins í lok mánaðarins.
HUÓÐVERIÐ
BÓKAÐ
Hljómsveitín Lights On The
Highway ætlar loksins að fara að
senda fr á sér sína aðra breið-
skífu. Samkvæmt Myspace-
síðu sveitarinnar eru strákarnir
búnir að bóka stúdíó í vor til að
taka upp plötuna í heild sinni.
Fyrsta breiðskífa sveitarinnar
sem heitír einfaldlega Lights On
the Highway kom út árið 2005
og fékk mjög góðar viðtökur. Það
eru því margir sem bíða með eft-
irvæntingu eftir annarri plötu frá
þessari þrælskemmtilegu sveit.
Á síðunni kemur einnig fram að
sveitin sé að fara að halda nokkra
tónleika á næstunni, meðal ann-
ars á Organ þann sextánda apríl.
*>>
•**!
A
SK5MAR
LYSIR
Greint var frá því í nýjasta helgar-
blaði DV að sjónvarpskonan Ragn-
hildur Steinunn Jónsdóttir myndi
lýsa lokakeppni Eurovision, sem
fram fer í Belgrad í maí, í Ríldssjón-
varpinu. Þetta er ekki alls kostar rétt
því Sigmar Guðmundsson, koll-
egi Ragnhildar í Kastljósinu, lýsir
keppninni líkt og hann hefúr gert
tvö undafarin ár. Þó eru góðar líkur
á því að Ragnhildur fari einnig út til
Serbíu, en þá tíl að vinna fréttir og
efni fýrir Kastljósið sem Sigmar hefur
haft með höndum auk lýsingarinnar j,
síðustu tvö skiptí sem keppnin hefúr
verið haldin.
Hljómsveitin FM Belfast var að senda frá sér frumlegt og skemmtilegt myndband við lagið Frequenzy:
LITLIR PAPPAKARLAR Á LYKLABORÐI
„Þetta var einfaldlega gert þannig
að Lóa teiknaði litla karla og klippti þá
svo út. Svo er bakgrunnurinn í mynd-
bandinu í rauninni bara tölvuskjárinn
á fartölvunni hans Árna og sviðið sem
litlu karlarnir standa á er lyklaborðið
sem er bara búið að fóðra með vegg-
fóðri," segir Árni Vilhjálmsson í hljóm-
sveitinni FM Belfast. Skömmu fýrir
helgi setti hljómsveitin fyrsta tónlist-
armyndband sitt í spilun á YouTube.
Myndbandið er við lagið Frequenzy en í
því má sjá hljómsveitarmeðlimi í líki lít-
illa útklipptra pappakarla syngjandi og
spilandi ofan á heimatilbúnu sviði.
„Ég er reyndar staddur núna í New
York hjá Lóu og Árna og við ætlum
hugsanlega að gera eitthvert annað
myndband hér. Það er ekki alveg komið
á hreint við hvaða lag við gerum mynd-
bandið en það getur verið að það verði
þveginn þvottur í því. Ég held samt að
það sé af þyí að Árni og Lóa eru eitthvað
löt við að þvo þvottinn sinn og vilja nýta
tækifærið og eru eitthvað að reyna að
plata mig með sér í það og reyna að láta
þetta hljóma rosalega spennandi. Svo
ég er fullur eftirvæntingar."
Hljómsveitin spilaði á tvennum vel
heppnuðum tónleikum í New York um
helgina og spilar á þeim þriðju í kvöld
en heldur svo til Texas þar sem FM
Belfast kemur til með að spila á hinni
margrómuðu South By Southwest
tónleikahátíð. krista@dv.is
Árnarnir tveir og Lóa í FM Beifast Nú má sjá frumlegt
myndband við lagið Frequenzy á YouTube.