Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2008, Qupperneq 11
DV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 11
RÓBERT HLYNUR BALDURSSON
biaðamadur sknfar: roberthb@dv.is
Meirihluti þeirra þingmanna og ráð-
herra sem hættu eftir alþingiskosning-
amar á síðasta ári gegnir enn stöðum
á vegum hins opinbera. Einn er fang-
elsisstjóri, annar hefiir verið skipaður
sendiherra og aðrir sitja til að mynda
í stjóm Byggðastofnunar, Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar og stjóm Ibúðalána-
sjóðs. Flestir þeirra sex þingmanna
sem komnir vom á eftirlaunaaldur á
þessum tíma sitja í einhverjum opin-
berum stjómum og fá greitt fyrir.
Alls fá 128 þingmenn og ráðherr-
ar eftirlaun greidd úr ríkissjóði vegna
starfa sinna, samkvæmt upplýsingum
frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins.
Þá fengu 35 eftirlaun sem fyrrverandi
ráðherrar, samkvæmt eftirlaunalög-
um frá árinu 2003. í það heila fengu
þingmenn rétt rúmar 200 milljónir
króna í eftirlaunagreiðslur fyrir árið
2007. Þá fóm tæpar 49,5 milljónir
króna í eftirlaun ráðherra.
Af þessum hópi em sex ráðherr-
ar og níu þingmenn sem greiða sam-
hhða eftirlaunagreiðslunum áfram
í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins
vegna annarra starfa. Þar er þó ekki
sundurliðað hvort stjómmálamenn-
imir fái greitt fyrir störf á vegum hins
opinbera eða á öðrum vettvangi. Því
má segja að þessir fyrrverandi þing-
menn og ráðherrar séu á tvöföldum
launum.
65 þúsund króna kjörtímabil
í eftirlaunalögunum frá 2003 er
kveðið á um að upphæð eftirlauna-
greiðslna til þingmanna og ráðherra
nemi 3 prósentum af þingfararkaupi
fyrir hvert ár sem viðkomandi hefur
verið í starfl. Þar sem þingfararkaup
er 540 þúsund krónur á hver þing-
maður því rétt á um 16 þúsund krón-
um á mánuði í eftirlaun fyrir hvert ár
á þingi. Fyrir eitt kjörtímabil fást því
tæpar 65 þúsund krónur í eftirlaun á
mánuði.
Eftirlaunaréttur ráðherra er svo
enn rýmri. Valgerður Bjarnadóttir,
varaþingmaður Samfylkingarinnar,
lagði á sínum tíma fram frumvarp
þess efnis að lögum um eftirlaun
æðstu embættismanna yrði breytt.
Valgerður hefur gagnrýnt að alls-
herjarnefnd Alþingis hafi ekki enn
fjallaö um máhð, en framvinda þess
mun skýrast á næstunni. f stjórnar-
sáttmála ríkisstjórnar Samfylkingar-
innar og Sjálfstæðisflokksins er lagt
til að lögunum verði breytt.
Birgir Armannsson, formaður
allsherjarnefndar, segir málið vera
í vinnslu og að nefndin hafi tekið
frumvarpið til umræðu ásamt fjölda
annarra þingmannamála. „Það er
ekkert ljóst hvað gerist svo í fram-
haldinu, en það eina sem hægt er
„Það er ekkert Ijóst
hvað gerist svo í fram-
haldinu, en það eina
sem hægt er að segja á
þessum tímapunkti er
að málið er í vinnslu."
að segja á þessum tímapunkti er að
málið er í vinnslu," segir Birgir.
Gréta Ingþórsdóttir, aðstoðar-
maður forsætisráðherra, segir málið
einnig í vinnslu innan forsætisráðu-
neytisins í samræmi við málefna-
samning núverandi ríkisstjórnar.
Hún vill að öðru leyti ekki tjá sig um
málið.
25 embættismenn hættu
Ástæður þess að þingmennirn-
ir lém af störfum síðasta vor voru
margslungnar. Margir þeirra höfðu
áratuga reynslu af þingstörfúm og
fóru í framhaldinu á eftirlaun. Aðrir
höfðu staldrað styttra við í þinghús-
inu og hugðust þá snúa sér að öðr-
um vettvangi eða duttu einfaldlega
út af þingi eftir að atkvæði höfðu ver-
ið talin.
Alls hættu 25 þingmenn og ráð-
herrar eftir síðustu kosningar að Jóni
Sigurðssyni, fyrrverandi iðnaðarráð-
herra, meðtöldum, en hann var utan
þings. f hópi þeirra sem hættu eru
margir góðkunnugir, líkt og Halldór
Blöndal, fyrrverandi hvalskurðar-
maður, þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins og forseti Alþingis. Halldór fædd-
ist í ágúst árið 1938 og var því rétt
tæplega sjötugur þegar hann hætti og
fór á eftirlaun. Hann gegnir enn opin-
berri stöðu þar sem hann er formaður
bankaráðs Seðlabanka fslands.
Þeir þingmenn sem hættu störf-
um sökum aldurs hafa flestir hverj-
ir haldið þó áfram á hinu pólitíska
sviði að einhveiju leyti og sitja taka
þá gjarnan áfram í starfi flokks síns.
Flestir þeirra fyrrverandi þing-
manna og ráðherra sem DV hef-
ur rætt við hafa nýtt þann tíma sem
þeim hefur gefist eftir að þeir hættu
störfum til þess að sinna verkefnum
sem hafa setið á hakanum, viðhalds-
framkvæmdum á húsnæði sínu, eða
þá til að verja meiri tíma með fjöl-
skyldunni en áður. Þeir eru flestir
hveijir ánægðir með að hafa tekið þá
ákvörðun að hætta störfum og segja
þingmennskuna geta verið kreíjandi
starf sem taki oft mikinn tíma.
Framhaldá
næstusíðu
\______ J
FYRRVERANDI ÞINGMENN: HVAR ERU ÞAU NU?
IHUGAR LOGFRÆÐINA j SLEKKUR ELDA
Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi dóms- j Valdimar L. Friöriksson, fyrrverandi
og kirkjumálaráðherra, er menntaöur j þingmaöur Samfylkingarinnar og
lögfræðingur með málflutningsréttindi j Frjálslynda flokksins, hóf störf sem
fyrir héraösdómi. Flún veltir nú fyrir sér j framkvæmdastjóri Landssambands
hvort hún eigi að fara út á þann j slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna í
vettvang.„Það er tiltölulega stutt síðan j nóvember.„Ég er hættur að kveikja elda
ég hætti á þingi. Ég hef verið að líta í j eins og var á þinginu og fæst nú við að
kringum mig og skoða möguleikana," j slökkva þá. Hér er líka minna áreiti og
segir Sólveig. Sólveig segist hafa haft j skipulagðri vinnutimi. Ég málaði húsið
meiri tíma eftir að hún hætti á þingi, en j allt að utan í sumar, sem ég hefði
hún var að ganga út í fiugvél á leið til j líklega aldrei gert sem þingmaður,"
Bandaríkjanna þegar DV náði tali af j segir Valdimar og telur reynsluna af
henni. Hún tekur enn þátt í flokksstarfi j Alþingi hafa nýst sér vel í starfi.
Sjálfstæðisflokksins og er formaður j
nefndar um afmæli Jóns Sigurðssonar. j F .
FARIN I SVEITINA
Drífa Hjartardóttir, fyrrverandi
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur
snúið sér að bústörfunum heima á
Keldum við Hellu.„Við skiptum um
eldhús- og baðinnréttingu. Það góða
við að hætta á þingi er að þá gefst meiri
tími fyrir fjölskylduna, manninn og
barnabörnin. Við höfum stækkað fjósið
hjá okkur og nýlega fluttu sonur minn
og tengdadóttir til okkar til að taka þátt
í búskapnum," segir Drífa. Drifa er
varaþingmaður í Suðurkjördæmi, en er
auk þess formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna, er í framkvæmda-
stjórn flokksins og miðstjórn.
Formaður nefndar um afmæli Jóns
Sigurðssonar.
Stjórn Byggðastofnunar
A FULLT I RITSTORF
Jón Kristjánsson, fyrrverandi heilbrigð-
isráðherra, hefur gegnt stjórnarfor-
mennsku á Reykjalundi auk þess að
sitja í tveimur öðrum stjórnum. Þá
hefur hann verið formaður stjórnar-
skrárnefndar, en starfsemi hennar hefur
legið í dvala um nokkurt skeið og þvi
ekki greitt fyrir þau störf. Jón er nú að
skrifa hundrað ára sögu Kaupfélagsins
á Egilsstöðum, en hann vann þar áður
en hann fór út í pólitíkina. „Þaö má
segja að ég hafi farið hringinn þar sem
ég er kominn aftur þangað sem ég var.
Ég hef verið í nægum verkefnum en hef
þó meiri tíma en áður til að halda
húsinu við og verja tima með
fjölskyldunni," segir Jón.
BANKARAÐ OG SKAK j I GAMLA STARFIÐ
„Ég hafði ákveðið þetta fyrir átta árum : Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi
og var reiðubúinn til að hætta fyrir : þingmaður Frjálslynda flokksins, tók
fjórum árum. Þetta eru eðlileg : aftur við starfi framkvæmdastjóra
mannaskipti þegar menn eldast og : Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra í
hafa verið lengi að. Ég kaus að hætta á : september.„Annars hef ég verið að
meðan heilsan var góð og fannst þetta : dunda í einu og öðru. Ég tók nýlega að
vera réttur tími," segir Halldór Blöndal, : mér formennsku Ungmennasambands
fyrrverandi forseti Alþingis. Halldór : Skagafjarðar. Ég tek hverjum degi með
hefur ekki misst áhugann á pólitík þrátt : tilhlökkun og næst á döfinni er ferming
fyrir að hafa hætt á þingi og skrifar : hjá dóttur minni" segir Sigurjón.
reglulega pistla í Morgunblaðið. Þá er : Sigurjón segist ekki vera í neinum
hann formaður bankaráðs Seðlabank- : opinberum nefndum eða ráðum enn
ans og var í nefnd um 200 ára afmæli : þá. Hann taki þó enn þátt í málefna-
Jónasar Hallgrímssonar. Þá er hann enn : starfi Frjálslynda flokksins, sem hann
virkur í flokksstarfinu. : segist þó hugsa um að draga sig út úr
: að einhverju leyti.
Formaður bankaráðs Seðlabankans j
• Engin
AFTUR i SKOLASTORF j BARN A LEIÐINNi
Hjálmar Árnason, fyrrverandi : Sæunn Stefánsdóttir, fyrrverandi
þingmaður Framsóknarflokksins, hefur : þingmaður Framsóknarflokksins, hóf
unnið hjá Keili við uppbyggingu : störf i haust á skrifstofu rektors Háskóla
þekkingarþorps á Miðnesheiði.„Mér : l’slands, þar sem unnið erað stjórnkerf-
líkar starfið afskaplega vel og tek því : isbreytingum innan skólans og eflingu
sem forréttindum að vakna með bros á : hans.„Hér er mikil gróska og mikið um
morgnana og sofna með bros á : að vera. Ég útskrifaðist sjálf sem
kvöldin. Þingmennskan getur verið : viðskiptafræðingur héðan og því mjög
sólarhringsvinna og eru oft miklar : gaman að takast á við þetta verkefni.
fjarvistir frá fjölskyldu. Með því að : Þá eigum við maður minn von á okkar
hætta á þingi hef ég meiri tíma til : fyrsta barni í maí og erum við mjög
annarra starfa og fæ tækifæri til að : spennt fyrir því," segir Sæunn. Sæunn
sinna vanræktum persónulegum : er ritari Framsóknarflokksíns og því
þáttum," segir Hjálmar.„Ég var i tólf ár á : áfram virk í innri málefnum flokksins.
þingi og fann að það var rétt ákvörðun : Auk þess situr hún í hverfisráði
að hætta. Það er engum hollt að vera : Vesturbæjar Reykjavíkur og stjórn
lengi á sama stað." : Flugstoða.
Stjórn Flugstoða
Formaður stjórnarskrárnefndar