Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2008, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008
Helgarblað PV
Gil Grissom lætur það oftast eiga sig að skjóta einhvern. Hann er iyrst og fremst vísindamaður og
það er ekkert sem hann ekki veit. Hann er dæmigerður sérvitringur sem heldur öllum í kringum
sig í gíslingu, með orðheppni sinni, heraga og snilligáfu. Persónan er byggð á Daniel Holstein
nokkrum, sem er ráðgjafi við þáttinn og fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður í Las Vegas. Þeg-
ar ákveðið var að leikarinn William Peterson myndi leika hann var persónunni breytt lítillega svo
Peterson myndi líða meira eins og á heimavelli. TIl dæmis hefur hann áhuga á veiðum og var
nafni hans einnig breytt, en upphaflega átti persónan að heita Daniel Holstein.
Horatio Cane er eini rauðhærði
töffarinn í bransanum. Hann er
leikinn af David Caruso, sem
lék eftirminnilega lögregluþjón
í þáttunum NYPD Blue fyrir
mörgum árum. Horatio svar-
ar yfirleitt samstarfsfélögum
sínum með stuttum og hnit-
miðuðum setningum. Hann
er botnlaus pyttur fróðleiks og
ekki hræddur við neinn. Hor-
atio fer gríðarlega í taugarnar á
mörgum. Hann þykir vera hall-
ærislegur á köflum og er gálga-
húmorinn oft yfirgengilegur
á köflum. Það breytir þó ekki
þeirri staðreynd að CSI: Mi-
ami eru ógurlega vinsælir þætt-
ir, þeir allra vinsælustu af CSI-
þáttunum, bæði hér á landi og
í Bandaríkjunum. Eitthvað gerir
því Horatio rétt, hann nær alla-
vega alltaf sínum manni.
SIGILDAR
LÖGGUR
Elliot Stabler er aðalmaðurinn
í Special Victims Unit. Hann er
leildnn af leikaranum Christop-
her Meloni og er algjört hörkutól.
Stabler er sjálfur faðir og mað-
ur mikilla prinsippa, þess vegna
geta ógeðfelld mál oft farið fyrir
brjóstið á honum. Hann er mikil
tilfinningavera, rýkur oft upp við
minnsta tilefni og hefur oft ver-
ið kominn á fremsta hlunn með
að slást við félaga sína. 1 Elliot
blundar ákveðin seigla og harka
sem eru hans helstu vopn gegn
glæpamönnum. Við yfirheyrsl-
ur er hann vís til þess að láta allt
flakka, sem oftast er smiðshöggið
á jámingasmíð glæpamannsins.
Lögfræðingurinn Matlock
Þýski lögregluforinginn Derrick
Mac Taylor er fyrrverandi her-
maður sem kallar ekki einu sinni
ömmu sína, ömmu sína. Hann er
vel lesinn í heimsbókmenntunum
og kann réttarvísindin aftur á bak
og áfram. Mac er þó örlítið mann-
legri en ff ændi hans í Miami, hann
á í vandræðum með að tjá tilfinn-
ingar sínar og er hálffjarlægur. í
hernum náði hann að læra á hin
ýmsu vopn og bardagalistir. Mac
Taylor er líklegri til að berja og
skjóta einhvem en kollegar hans.
Hann er langhasarhetjulegasta
löggan sem CSI-þrennan býður
upp á. En leikaranum Gary Sin-
ise tekst að gera hann mannlegan,
sem er fyrir öllu. f raun og vem er
Mac langótrúverðugasti karakter-
inn í hópnum, en hins vegar Gary
Sinise hugsanlega besti leikar-
inn, svo úr verður skemmtilegur
hrærigrautur.
Hinn skeggjaði Magnum P.l,
Leikkonan Kyra Sedgewick fer
með hlutverk Brendu John-
son í þáttunum The Closer.
Hún vann áður fyrir leyniþjón-
ustu og hefur einstakt inn-
sæi í glæpamálum. Brenda er
þekkt fyrir lagni sína til þess
að sjá staðreyndirnar hverju
sinni, knýja fram játningar og
leysa málin, þess vegna er hún
kölluð the closer, eða lokar-
inn. Hún er algjör vinnualki og
er slétt sama um hver grípur
glæpamennina svo lengi sem
réttlætinu er framfylgt. Brenda
ber sig vel, er kurteisari en
næstum allir í kringum sig, en
þegar hættan steðjar að glittir
í stálið.
Léttgeggjaður Barði Hamar
Charlie Crew er nýliðinn í hópnum. Hann er leikinn af hinum efnilega
Damien Lewis sem sló í gegn í þáttunum Band of Brothers. Charlie var
lögreglumaður á uppleið þegar hann var dæmdur í fangelsi fyrir þrefalt
morð sem hann framdi ekki. f fangelsinu var hann laminn eins og
harðfiskur dag hvern, en með hjálp bókar um Zen-búddisma tókst
honum að komast í gegnum vikumar. Charlie var búinn að sitja inni í 12
ár þegar upp komst að hann væri saklaus. Að launum fékk hann glás af
peningum og starf sitt í löggunni aftur. Charlie er gallharður efdr dvölina
í fangelsinu, en heimspekilegur og spaugilegur um leið. Nútíminn vefst
fyrir honum, enda missti hann af innreið intemetsins, farsíma og
mynddiska. Charlie Crews gæti verið nýliði ársins.
Gamli og gamalreyndiTaggart
HVER ER
RAUÐHÆRÐI
TÖFFARINNMEÐ
GÁLGAHÚMORINN
Horatio Cane - CSI: Miami
TILFINNINGA-
TÖFFARINN
ElliotStabler-Law
&0rder: Special
Victims Unit
ÞOKKAFULLI
„LOKARINN'
BrendaJohnson-
The Closer