Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2008, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 1. MA( 2008
Umræða DV
HVAÐ BAR HÆST í VIKUNNI?
Verðbólga, óeirðir
og meistaradeildin
„Það má kannski segja að það sé þrennt
sem ber hæst í þessari viku. Þegar óeirð-
irnar áttu sér stað við Rauðavatn var ég
staddur í Þýskalandi. Fékk óljósar fréttir af
málinu í gengum síma og sms. Það var sér-
stök tilfinning að fá fréttir þar sem lögregl-
an þurfti að nota skjöld og piparúða. Mað-
ur upplifir þetta á annan hátt en heima. Ég
sá líka birtast frétt um þetta á CNN. Maður
vonar að þetta gerist ekki aftur. Annað eru
verðbólgufréttirnar. Sú mesta í tuttugu ár.
Enginn veit hversu lengi þetta skot varir ef
það er hægt að kalla það það. Hvort það
verður verðbólguhríð, það er spurning.
Það er ekki óeðlilegt að það setji ugg í fólk
því ef við berum okkur saman við önnur
lönd er verðbólgan langt frá því að vera
eins og hér. Svo er þriðja málið auðvit-
að meistaradeildin. Manchester United
tryggði sér sæti áfram. Þá munu tvö ensk
lið koma til með að leika úrslitaleikinn.
Það er svoh'tið merkilegt í fótboltanum."
Heimir Karlsson, dagskrárgerðamaður á
Bylgunni
Ömurleg niðurstaða
„f efnahagsmálum er það augljóst að
nýjar tölur um verðbólgu ber hæst liðna
viku. Það má kannski segja að þær beri
lægst. Þetta er ömurlegasta niðurstaða í
langan tíma og enn einn vitnisburður um
máttleysi Seðlabankans og getuleysi hans
til að takast á við vanda tímans. Það er það
sem þetta er. Það er allt í góðu lagi í efna-
hagslífi þjóðarinnar. Hér er full atvinna.
Fiskveiðarnar ganga nokkuð vel þrátt fyrir
tímabundinn samdrátt í fiskveiðum og
landsframleiðslan gengur sinn vanagang.
Hér er eitt besta hagkerfi í heiminum.
Peningamálin eru það sem er í rúst. Það
er vegna þess að Seðlabankinn og fyrrver-
andi ríkisstjórn hafa ekki áttað sig á því
hver vandinn er þrátt fyrir ítrekaðar við-
varanir. Nú er allt komið í strand og þetta
er mjög erfitt fyrir þjóðina, þótt það séu að
vísu til vandamál í peningamálum erlendis
eru þau smávægileg miðað við þau hérna
heima.
Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur
Áhyggjur af verðbólgunni
„Það er auðvitað þessi mikla verðbólga
sem er núna. Hún tengist líka mínu starfi
og henni fylgja miklar áhyggjur varðandi
framtíðina. Sérstaklega hjá ungu fólki sem
er að kaupa sína fýrstu íbúð og hefur tek-
ið hundrað prósent lán. Það er að lenda í
vandræðum. Svo með þessi mótmæli. Auð-
vitað er réttur fólks að mega mótmæla en
þetta er að fara úr böndunum núna. Eru
orðin skrílslæti. Svo fóru unglingarnir að
mótmæla, þá hugsar maður með sjálfum
sér hvaða skilaboð er verið að senda til
unga fólksins. Manni finnst þetta óeðlilegt
en þeim finnst þetta fyndið. Svo tekur nú
bara nokkra daga að melta málið í Aust-
urríki, það er svo hrikalegt. Þetta er annað
málið sem kemur upp á skömmum tíma.
Það er umhugsunarvert að fólk geti bara
horfið án þess að einver rannsaki það, eins
og það séu ekki skráningar á einsktakling-
um. Það er eitthvað voðalega furðulegt við
þetta allt saman og þeir hljóta nú að fara að
endurskoða máiin þarna."
Ásta S. Helgadóttir, framkvæmdastjóri
Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna
Átti afmæli
„Það sem bar nú langhæst í vikunni er
að ég átti afmæli. Ég varð 52 ára 28. apríl
og hélt upp á það með þrjú hundruð kon-
um á öllum aldri. Við vorum þrjár konur
sem áttum afmæli af þessum þrjú hundr-
uð. Þarna ákváðum við að fagna sumri
með söng og buðum borgarfulltrúum og
alþingiskonum í veislu. Ég var mjög stolt
af því að utanríkisráðherra lét ekíd á sér
standa og mætti. Það voru bornar fram
léttar og hressar veitingar og svo var sung-
ið út í eitt í þrjá klukkutíma. Það er mikill
fögnuður að eignast sönghús. Domus Vox
þýðir hús raddarinnar og er það fyrsta og
eina sönghúsið sem við fslendingar eig-
um. Við vorum þarna konur og stúlkur að
syngja og það var æðislega gaman. Ég er
mikið naut og elska að hafa fólk í kringum
mig. Þarna fann ég líka hvað það gleður
fólk og hvað það leggur mikið í að varð-
veita íslenska menningu og tungu með
söngnum. Henni verðum að halda á lofti."
Margrét Pálmadóttir, tónlistarmaður
I
Norm - X hefur sérhæft sig íframleiðslu heitra potta frá 1982 sem henta íslenskum aðstæðum einstaklega vel og
ætlaðir fyrir hitaveituvatn. Við bjóðum einnig allan tengibúnað, nudd, Ijósabúnað og tvær gerðir af lokum.
Lok, fjótandi veitingabakka og m.fl. Við seljum einnig kamínur verð kr. 43.900
Heimasíðan okkar er www.normx.is
íslensk framleiðsla