Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2008, Page 49
DV Feröir
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 49
Á FERÐINNI
Egill Bjamason er ferðalangur sem
ræðst ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur. Egill hefur verið á ferðalagi
í næstum einn og hálfan mánuð og
komið við á Indlandi og í Pakistan.
Hann er nú staddur í Afganistan.
Ferðaplön Egils hafa breyst nokkuð
frá því sem lagt var upp með í byrjun.
„Ég ætlaði að byrja og enda ferðina á
Delí í Indlandi. I millitíðinni ætlaði ég
að taka hring um Suður-Asíu, gegnum
Pakistan, Afganistan, Tíbet og Nepal.
En Pekingstjóm eyðilagði planið. Hún
bannar ferðamönnum að fara inn
í Tíbet ffá landamæmm Pakistans.
Núna er hún að auki búin að loka
öllum leiðum. Næst liggur leiðin til
frans eftir að hafa dvalið í Afganistan
í næstum einn og hálfan mánuð."
Egill segist ekki vita hvert leiðir munu
liggja frá fran. Það eina sem hann
veit er að hann verður kominn heim
í júní og gengur þá til liðs við ritstjóm
Sunnlenska fréttablaðsins.
Frábærar móttökur
Egill er einn á ferð þó að hann sé
í slagtogi við aðra ferðalanga inn á
milli. „Ég vil vera óháður plönum
annarra," segir hann og bætir við að
í þessum ferðalangakúltúr séu flestir
sjálfum sér nægir. Það er því nokkuð
ljóst að svona ferðalög henta ekki
öllum. Sérstaklega í Ijósi þess að
aðstæður em oft á tíðum mjög ólíkar
þeim sem við emm annars vön. „Það
þarf að sætta sig við rafmagnsleysi,
kaldar smrtur, einhæfan mat og dautt
næturlíf."
Egill segist hafa fengið ffábærar
móttökur. „Sérstaklega í Pakistan og
Afganistan. Þar er rík hefð fyrir því að
heiðra aðkomumenn. Bjóða þeim í
mat eða að minnsta kosti upp á te. í
Pakistan átti ég jafnvel í erfiðleikum
með að fá að borga fyrir mig á veit-
ingastöðum og í rútuferðum," segir
Egill.
Enginrt vígvöllur
Eins og vera ber hafði Egill
gert sér ákveðnar hugmyndir um
Afganistan áður en hann kom
þangað. „Ég ímyndaði mér landið
sem hálfgerðan vígvöll og borgimar
eftir því. I raun er höfuðborgin Kabúl
á hraðri leið inn í nútímann með
hjálp alþjóðasamfélagsins. Starfsemi
Vesturlanda í Afgnistan hefur vaxið
mikið í áliti hjá mér ffá því að ég kom
hingað. Það minntist heldur enginn á
hvað landslagið væri hrífandi. Og ég
sem hélt að ísland væri fallegasta land
í heimi! Ferð um dreifbýli Afganistans
er hægt að líkja við tímaflakk. Ósnortin
náttúra, moldarkofar og ffumstæðir
lifnaðarhættir kotbænda."
Heimamenn sárir
Það eru eflaust margir sem líta á
ferðalag til Afganistans og Pakistans
sem hættuför. Egill segir það fjar-
stæðu. „í gegnum fjölmiðla fáum
við þá mynd að landið logi í átök-
um og Afganir hati Vesturlanda-
búa. Þangað skuli enginn voga sér
nema hugrökkustu utanríkisráð-
herrar í fylgd sérsveita. Þetta er tóm
tjara. Langstærstur hluti landsins er
öruggur ferðamönnum og þar býr
Egill Bjarnason er staddur í Suöur-Asíu. Þegar blaðamaður DV náði tali af honum var
hann staddur í Afganistan en áður hafði hann komið við á Indlandi og í Pakistan. Egill
er hæstánægður með þær móttökur sem hann hefur fengið og segir það fásinnu að
ekki sé óhætt ferðast á þessum slóðum.
IAFGANISTAN Aföiycigisástæðum v.ti
Agli bent .i ,iö klæða sici eins og dæmi
gc-iðui Afg.ini, H.inn n.íði náttúrlega ekki
að blekkja einn einasta mann.
■ .SoiWÖ’"
GANGES Indveiskir hindúai
að sigla iátt að heilagasta stað
Ganges. Fgill notaði tækifærið
og þvoði af sei altai syndii.