Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 2
Breytt skipurit
tveggja sviða
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri
flutti á síðasta bæjarstjórnar-
fundi tillögu um breytt skipurit
fyrir fjármála- og stjórnsýslusvið
og starfslýsingu nýs starfs sem er
skrifstofustjóri fjármála- og stjórn-
sýslusviðs. Í dag eru fjórir deild-
arstjórar en í nýju skipuriti er ein-
um deildarstjóra bætt við. Einn
deildarstjóri sér um starfsmanna-
hald og er starfsmannastjóri og
sér m.a. um símenntun, launamál
og jafnréttismál; annar er fjármála-
stjóri sem sér um innheimtu, bók-
hald, áætlanagerð og fjárhagseft-
irlit; skrifstofustjóri sér um skjala-
vörslu og þjónustuborð.
Einning var lögð fram tillaga að
breytingum á skipuriti tómstunda-
og menningarsviðs ásamt breyt-
tri starfslýsingu. Báðar tillögurnar
voru samþykktar einróma.
Starfslokasamningar
og vegrið
Á fundi bæjarráðs 27. septem-
ber sl. lögðu bæjarfulltrúar Sam-
fylkingarinnar fram eftirfarandi
fyrirspurn:
“Fulltrúar Samfylkingarinnar í
bæjarráði óska eftir að fá að sjá
eftirfarandi gögn:
Starfslokasamning fyrrverandi
ritara skipulagsstjóra er lauk störf-
um í desember 2006.
Ráðningarsamning verkefnis-
stjóra hjá framkvæmda- og tækni-
sviði bæjarins er hóf störf sumar-
ið 2006. Launaseðla þessara aðila
aftur að maí 2006.
Auk þess óskum við eftir upplýs-
ingum um eftirfarandi:
“Hvort og þá hvenær var staða
verkefnisstjórans auglýst og
hver voru þau verkefni sem hon-
um voru falin og hver af embætt-
ismönnum bæjarins óskaði eftir
stöðugildinu?
Á sama fundi lagði Gunnsteinn
Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki fram
fyrirspurn um hvað líður uppsetn-
ingu vegriðs á Digranesvegi.
Skipulagi Marbakka-
brautar 4 breytt vegna
leikskóla
Á fundi skipulagsnefndar var
tekin fyrir tillaga bæjarskipulags
að breyttu aðalskipulagi við Mar-
bakkabraut 4. Í tillögunni felst
að svæði sem skilgreint er sem
óbyggt svæði norðan leikskól-
ans Marbakka er breytt í svæði
fyrir þjónustustofnanir. Einnig er
svæði sunnan leikskólans sem skil-
greint er sem verslunar- og þjón-
ustusvæði breytt, annars vegar í
svæði fyrir þjónustustofnanir og
hins vegar í óbyggt svæði. Á breyt-
ingasvæðinu sem er um 0,9 ha
að flatarmáli er áætlað að stækka
aðstöðu leikskólans og bæta við
einni deild. Lóðin verður 4.003 m2
eftir breytingu með nýtingarhlut-
fall allt að 0,2. Áætluð bílastæða-
þörf er 1 stæði á hverja 35 m2 hús-
næðis, en það gerir 22 bílastæði.
Skipulagssvæðið afmarkast af Mar-
bakkabraut í suður, göngustíg á
lóðarmörkum í austur, strandstíg
við Fossvog í norður og lóðarmörk-
um lóðanna við Marbakkabraut
16, 18 og 20 í vestur. Tillagan styð-
ur markmið Aðalskipulags Kópa-
vogs 2000-2012 hvað varðar þétt-
ingu byggðar og nýtingu á stofn-
kerfi bæjarins. Skipulagsnefnd
samþykkti framlagða tillögu, hún
var hún auglýst í samræmi við 18.
gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 og vísar til afgreiðslu bæj-
arráðs og bæjarstjórnar. Athuga-
semdir bárust en bæjarskipulagi
var falið að taka saman umsögn
varðandi innsendar athugasemdir.
Á fundi skipulagsnefndar 4. sept-
ember 2007 var erindið lagt fram
að nýju ásamt umsögn bæjarskipu-
lags. Óskað var eftir umsagnar
fræðslustjóra Kópavogs um þörf
stækkunar leikskólans og var hún
lögð fram að nýju ásamt umsögn
fræðslustjóra Kópavogs. Skipulags-
nefnd samþykkti tillöguna ásamt
umsögn bæjarskipulags dags. 31.
ágúst. 2007 og vísaði málinu til
afgreiðslu bæjarráðs og bæjar-
stjórnar.
Reynt að koma veit-
ingarekstri í Gerðar-
safni aftur af stað
Á fundi Lista- og menningarráðs
Kópavogs 18. september sl. var
m.a. rætt um minningabók sem
gefin var út vegna 50 ára afmæl-
is bæjarins sem bókasafnsstarfs-
menn sáu um útgáfu á. Rætt hefur
verið um að gefa nemendum 9.
bekkjar grunnskóla eintak af bók-
inni. Rætt var um veitingar í lista-
safninu, Gerðarsafni, en kaffiterían
þar er nú lokuð. Verið er að gera
ráðstafanir til að koma henni af
stað aftur. Jafnframt var rætt um
markaðssetningu á söfnum bæj-
arins.
Áfallahjálp í grunn-
skólum endurskoðuð
Á fundi skólanefndar 3. septem-
ber sl. var lögð fram eftirfarandi til-
laga frá Rannveigu Ásgeirsdóttur,
fulltrúa foreldra í skólanefnd:
“Fulltrúi foreldra í skólanefnd,
Rannveig Ásgeirsdóttir, óskar eftir
því að verkferlar um áfallahjálp
í grunnskólum Kópavogs verði
teknir til gagngerrar endurskoð-
unar og rýnis af fagaðilum með
aðstoð starfandi áfallateyma og
að þeir verði þannig úr garði gerð-
ir að þeir taki til allra þátta í skóla-
og nærsamfélagi og skuli gátlisti
vegna kynningar/kennslu á notk-
un verkferla yfirfarinn, staðfestur
af hlutaðeigandi aðilum og skilað
inn til fræðslustjóra árlega.”
Í framhaldi af bókun foreldra-
fulltrúa bókaði skólanefnd eftirfar-
andi:
“Skólanefnd felur fræðsluskrif-
stofu að fá viðurkenndan fagaðila
til að veita ráðgjöf vegna áfalla-
hjálpar í grunnskólunum, í sam-
ráði við skólastjórnendur, með
hliðsjón af ofangreindri bókun.
Einnig beinir skólanefnd því til
skólastjórnenda að þeir hlutist
til um að allir sundkennarar sem
starfa við grunnskóla Kópavogs
sæki samráðsfund allra þeirra
sem koma að skólasundi áður en
kennsla hefst á haustin. Forstöðu-
menn sundlauganna skipuleggi og
boða þessa fundi. Á þeim fundum
verði farið yfir gildandi verkferla
og neyðaráætlanir sundlauganna.”
Miklar bollaleggingar
um auglýsingaskilti
Á fundi umhverfisráðs 18. júní
2007 var fjallað um reglur um aug-
lýsingaskilti í Kópavogi. Á fundi
umhverfisráðs fyrr í vor var óskað
eftir bæjarskipulag Kópavogs tæi
saman leiðbeinandi viðmið varð-
andi uppsetningu auglýsingaskilta
í lögsögu Kópavogs. Lagðar voru
fram hugmyndir Línuhönnunar
að vinnuáætlun varðandi setn-
ingu reglna um skilti í Kópavogi.
Umhverfisráð samþykkti að mæla
með við bæjarráð að fara að til-
lögum Línuhönnunar. Áætlaður
kostnaður 250.000 krónur. Á fundi
bæjarráðs var svo samþykkt að
hafin verði vinna skv. tillögum
Línuhönnunar.
Á fundi umhverfisráðs 23. júlí
2007 var samþykkt að fela bæjar-
skipulagi að ganga frá samningum
við Línuhönnun um verkefnið. Á
fundi umhverfisráðs nýverið upp-
lýsti formaður að gerður hafi ver-
ið samningur við Línuhönnun um
gerð tillagna að reglum um auglýs-
ingarskilti í Kópavogi. Umhverf-
isnefnd óskaði eftir kynningu á
stöðu mála.
2 Kópavogsblaðið
Útgefandi: Borgarblöð ehf.
Vesturgötu 15 • 101 Reykjavík
Sími: 511 1188 • 561 1594
Fax: 561 1594
Ritstjóri: Geir A. Guðsteinsson, Sími 564 5933, 898 5933
Netfang: geirgudsteinsson@simnet.is
Auglýsingasími: 511 1188 • 561 1594 • 895 8298
Netfang: borgarblod@simnet.is
Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Kristján Jóhannsson
Umbrot: Valur Kristjánsson
Prentun: Landsprent ehf.
Dreifing: Íslandspóstur
10. tbl. 3. árgangur
Kópavogsblaðinu er dreift frítt í öll hús í Kópavogi.
S T U T T A R
B Æ J A R F R É T T I R
K ópavogsbær hefur á undanförnum árum staðið fyrir kynningu á listum og menningu annara þjóða og eflaust muna flestir
eftir kandadískum menningardögum og rússneskum menning-
ardögum. Nú er boðið upp á kínverska menningarveislu sem jafnvel
stendur hinum tveimur fyrrnefndu framar. Það er þó varasamt að fara
í slíkan samanburð því slíkur samanburður er milli svo ólíkra menn-
ingarheima. Á kínversku menningarhátíðinni sem stendur til næsta
sunnudags er boðið upp á sýningu frá forn- og listmunuborginni Wuh-
an í Kína, myndlistasýningu, frábæra tónleika, loftfimleikasýningu, flug-
drekagerð og ljósmyndasýningu svo eitthvað sé nefnt. Einnig er boðið
upp á málþing um kínverska menningu næsta laugardag í Salnum og
fjölskylduhátíð fer fram í Vetrargarðinum í Smáralind næsta laugardag.
Þessi menningarhátíð er orðin að veruleika vegna mikillar framsýni
bæjaryfirvalda en einnig hefur kínverska sendiráðið á Íslandi lagt mál-
inu ómetanlegan stuðning. Metnaður Kópavogsbæjar til að standa í
fremstu röð á þessu sviði hefur svo sannarlega skilað sér, enda kemur
fólk alls staðar að af landinu til að taka þátt í þessari menningarveislu.
Sum bæjarfélag hasla sér völl sem aðsetur fyrir þjóðhátíð, fiskidaga,
menningarnótt, ljósanótt eða t.d. írska eða færeyska daga, en fullyrða
má að þær samkomur standa því sem Kópavogur er að bjóða langt að
baki í menningarlegu tilliti. Kópavogsbær hefur einfaldlega tekið afger-
andi forystu, og því fögnum við auðvitað sem búum í þessu bæjarfé-
lagi sem er að skila betri rekstrarafgangi en nokkurt annað bæjarfélag
á Íslandi.
Ægifagurt útsýni og
hátækni
K ópavogsbær hefur auglýst til úthlutunar byggingarétt fyrir 650 íbúðir í Vatnsendahlíð sem verða byggðar með nútímalegu sniði
og þægindum. Mikið og fallegt útsýni er frá fyrirhugaðri íbúða-
byggð en þaðan sést yfir Elliðavatn, Heiðmörk og að Hengissvæðinu.
Til austurs blasir Vífilfell og Bláfjöll við, til norðurs hluti Kópavogs og
Reykjavíkur og til vestur verður útsýni yfir Esjuna, Akrafjall og Skarðs-
heiði. Lagt verður ljósleiðanet um hverfið strax í upphafi svo fyrstu íbú-
arnir fá háhraðatengingu sem tryggir m.a bestu mögulegu myndgæði.
Ekki er að efa að marga mun fýsa að fá þarna lóð, en ef að líkum lætur
fá færri en vilja. Framkvæmdi eiga að geta hafist í lok árs 2008.
Kennum útlendingum
íslensku
A lþingi hefur hafið störf eftir gott sumarleyfi. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sagði við þingsetningu að landsbyggð-
in, samkenndin og tungumálið væru þrenning sem Íslending-
ar mættu ekki varpa frá sér. Engin efnisrök væru fyrir því að víkja
íslenskunni til hliðar ef háskólar og fyrirtæki eiga að ná í fremstu röð
og hæpið að halda því fram að íslenskan geti ekki áfram verið jafnoki
heimsmálanna í þekkingarsköpun og atvinnulífi. Þvert á móti beri að
efla íslenskukennslu í skólum landsins um leið og leikni námsfólks í
erlendum málum væri aukin. Hjálpa ætti þeim sem hingað koma frá
öðrum löndum að læra íslenskuna. Sérstakan gæfi Íslendingum gildi.
Undir þessi orð forseta Íslands skal sannarlega tekið hér.
Geir A. Guðsteinsson
Menningarleg forysta
OKTÓBER 2007
������ ��� ��� ���� ����� �����
����������������� ��������������
Salurinn
MIÐ 3. OKT og FÖST 5. OKT KL. 20
KÍNVERSK ÞJÓÐLAGASÖNGSKEMMTUN
Miðaverð 2500 kr.
MIÐ 10. OKT KL. 20
GÍTARTÓNLEIKAR MANUEL BARRUECO
Miðaverð 2500 kr.
FIM 11. OKT KL. 20
FJÖLSKYLDUFERÐ TIL AFRÍKU
Miðaverð 1500 kr. frítt f. börn
FÖST 12. OKT KL. 20
TÍBRÁ: ÓPERUTÓNLEIKAR
Miðaverð 2000 /1600 kr.
SUN 14. OKT KL. 20
TÍBRÁ: SÖNGBÓK JAZZINS
Miðaverð 2000/1600 kr.
SUN 21. OKT KL. 20
TÍBRÁ: SELLÓ OG PÍANÓ
Miðaverð 2000/1600 kr.
ÞRI 23. OKT KL. 20
TÍBRÁ: Söngtónleikar
Miðaverð 2000/1600 kr.
LAUG 27. OKT KL. 17
TÍBRÁ: ALBERT MAMRIEV
Miðaverð 2000/1600 kr.
MIÐASALA HAFIN !