Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 12

Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 12
Starfsemin í Gjábakka, Fann- borg 8 og Gullsmára, Gullsmára 13 er komin á fulla ferð eftir sum- arleyfi. Kynningardagar voru í lok ágúst og að þeim loknum fór starf- semin af stað. Félagsheimilin eru opin virka daga frá kl. 09.00 til 17.00 og félagsstarfið í Kópavogi er fjölbreytt að vanda, enda leggja margir þar hönd á plóginn. Vetrardagskráin er fjölbreytt, en það er svo með allt félagsstarf að það er þátttaka fólksins sem skiptir sköpum. Á komandi vetri verður matur afgreiddur í hádeginu eins og verið hefur og kaffistofurnar verða opnar frá 09.00 til 16.00 alla virka daga. Nú þegar eru starfandi 5 hópar í líkamsrækt en miskrefjandi. 5 hópar eru í jóga af ýmsu tagi, 4 danshópar, 3 bossíahópar, bobbhópur, 2 göngu- hópar að ógleymdum sundhópun- um, ringóinu og púttinu. Fræðslu- kvöld um hreyfingu og holla lifnaða- hætti eru á vegum Íþróttafélagsins Glóðar. Sigurbjörg Björgvinsdóttir, yfir- maður félagsstarfs aldraðra, segir að ekki ætti heldur að vanta neitt fyrir þá sem hafa gaman af handa- vinnu því nú þegar séu farin af stað 9 námskeið í handmennt. Þar má nefna gler- og postulínsmálun, silf- ursmíði, vatnslitamálun, bókband og tréskurð. Þá eru núna starfandi margir áhugahópar t.d. í glerskurði, myndlist, vefnaði, ljóðagerð, örsögu- ritun, bútasaumur, leirvinna og margt fleira. Handavinnustofurnar eru opnar alla virka daga og þar kennir margra grasa. Handavinnu- kvöld eru nýjung á dagskránni og ætluð þeim sem eru enn á vinnu- markaði en vitanlega eru allir vel- komnir. Hárstofur og fótaaðgerða- stofur eru starfandi í báðum félags- heimilunum. Þessi þjónusta er ætl- uð körlum jafnt sem konum. “Fjölbreytnina í félagsstarfinu í Kópavogi má m.a. rekja til breiðrar samstöðu og samstarfs þeirra aðila sem láta sig varða hamingju eldra fólks. Nefna má Félag eldri borgara í Kópavogi; Söngvini, kór aldraðra í Kópavogi; Íþróttafélagið Glóð svo og hina fjölmörgu áhugahópa sem starfa í samvinnu við félagsstarfið. Félag eldri borgara stendur nú sem áður fyrir metnaðarfullri dag- skrá í félagsheimilunum. Bingó er spilað vikulega, síðdegisgaman er nýtt á dagskránni, opin hús og Skvettuböll eru nokkrum sinnum til áramóta, félagsvist er spiluð þris- var í viku, bridge er spilað tvisvar í viku og Alkort, kanasta og lomber eru gömul spil sem spiluð eru í Gjá- bakka vikulega. Í undirbúningi er að félagið efni til stuttra ferða t.d í leikhús, söfn o.fl. Þá hittast söngglaðir einstaklingar og taka lagið vikulega í félagsheimil- unum. Leshópurinn fær góða gesti í heimsókn mánaðarlega og Egils- saga er lesin og rædd í hverri viku,” segir Sigurbjörg Björgvinsdóttir. Félagið sér um allar ferðir og er farið frá Gjábakka og Gullsmára. Þar er oftast einnig skráð í ferðir og tekið við greiðslum. Félagið er með viðtals- og símatíma í Gjábakka á miðvikudögum kl. 15.00 - 16.00. Síminn er 554-3438. “Maður er manns gaman.” Það er gömul speki að maður er manns gaman. Þetta vissu menn fyrir löngu og vita enn. Það eru margir óformlegir spjallklúbb- ar sem hittast í félagsheimilunum og ræða málefni líðandi stundar. Einnig er alltaf að verða vinsælla að árgangar úr skólum eða aðrir hópar hittist reglulega yfir kaffi- bolla og ræði málin. Dagskrárnar liggja frammi í félagsheimilunum og einnig er hægt að nálgast þær á netinu, www.kopavogur.is “Niðurstöður ótal rannsókna sýna að þátttaka í félagsstarfi er líkleg til að bæta andlega og líkam- lega líðan einstaklinga. Því hvet ég alla eldri borgara til að koma og skoða hvort ekki er eitthvað á dag- skránni sem hentar, eða koma með hugmyndir og óskir til starfsmanna félagsstarfsins sem aðstoða við að hrinda þeim í framkvæmd. Þú ert svo heppinn að fá að ráða nokkru um hvað er á dagskrá félagsstarfs- ins í Kópavogi. Það eru mikilvæg réttindi sem vert er að nýta. Ég veit að tíminn er naumur en mundu bara “að hafir þú ekki tíma fyrir heilsuna í dag er ekki víst að þú hafir heilsu fyrir tímann á morgun,” segir Sigurbjörg Björgvinsdóttir. 12 Kópavogsblaðið OKTÓBER 2007 Eitthvað fyrir alla í Gjábakka og Gullsmára Systurnar Halldóra og Svava Stefánsdætur voru í hópi þeirra sem komu í Gjábakkann nýverið. Auður Gunnarsdóttir söngkona og Jónas Ingimundarson píanóleikari skemmtu viðstöddum, og fengu gott klapp. Einnig komu þar fram stúlkur úr Kór Kársnesskóla, en sá hluti kórsins sem þarna mætti er allur í 7. bekk. Dalvegur 24 Kópavogi www.iess.is 544 4884 Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson ������ � � ��������� ��������������� ���������� ������������������������������ Óskar eftir starfsfólki í hlutastarf og fulltstarf. Opið er til kl: 22 öll kvöld og hentar því vel með skóla. Umsóknareyðublöð á staðnum Engihjalla 8, Kópavogi. Starfsfólk óskast borgarblod.is

x

Kópavogsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.