Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 15
15KópavogsblaðiðOKTÓBER 2007
Heimsmeistaraskáksveit Sala-
skóla í Kópavogi, fjórtán ára og
yngri, gerði víðreist um Namib-
íu í ferð sem hún fór í boði Þró-
unarsamvinnustofnunar Íslands
þann 12. september sl. Sveitin
sýndi listir sínar og tefldi við
unga heimamenn á tveimur mót-
um í Eros grunnskólanum í höf-
uðborginni Windhoek. Sem við
var að búast höfðu heimsmeist-
ararnir nokkra yfirburði.
Íslenska sveitin fór meðal ann-
ars í tvo barnaskóla í bænum
Grottfontain í norðurhluta Namib-
íu. Þar fór fram skákkennsla og
sýning á hraðskák. Annar skól-
anna stendur í fátækrahverfi í
bænum og þar sýndi héraðs-
meistarasveit nemenda listir
sínar í dansi, trumbuslætti og
söng, Íslendingunum til mikill-
ar ánægju. Á endanum rugluðu
hvítir menn og svartir reitum
á skólalóðinni þegar Salaskóla-
mennirnir Birkir Karl Sigurðsson
og Guðmundur Kristinn Lee slóg-
ust í hópinn með dansandi sveit
heimamanna. Þeir reyndu fyrir
sér í afrískum dansi sem er tals-
vert frábrugðinn mannganginum
á taflborðinu. Þessi menningar-
blanda vakti mikla gleði, en í máli
skólastýru kom fram að dans-
sveit hennar ætlaði sér ekki síðri
hluti í framtíðinni en íslensku
skákmeistararnir, þótt á öðrum
vettvangi væri.
Þróunarsamvinnustofnun
Íslands hefur í samstarfi við Skák-
samband Íslands og skákfélagið
Hrókinn staðið fyrir skákverkefni
meðal grunnskólabarna í Namib-
íu sl. þrjú ár ásamt því að styðja
við bakið á namibíska skáksam-
bandinu. Það var Þróunarsam-
vinnustofnunin og Kópavogsbær
sem buðu skáksnillingunum út,
en kostnaður Kópavogsbæjar
nam um 400 þúsund krónum.
Heimsmeistarar Salaskóla
tefldu, dönsuðu og fóru í
safariferð í Namibíu
Dansað með innfæddum í Namibíu.
vesturgÖtu 12
opiÐ 14-18 mÁn.-lau.
www.nornabudin.is
galdrar Í
neytendapakkningum,
spÁspil, rÚnir og
Óvenjuleg
gjafavara.
n rnabúðin
Heimsmeistararnir í Salaskóla þegar ferðin var tilkynnt. Þau eru Páll
Andrason, Birkir Karl Sigurðsson, Guðmundur Kristinn Lee, Jóhanna
Björg Jóhannsdóttir og Patrekur Maron Magnússon. Aftan við þau
standa Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnu-
stofnunar Íslands, Davíð Ólafsson frá Skáksambandi Íslands, Kristján
Guttesen frá skákfélaginu Hróknum og Gunnar I. Birgisson bæjar-
stjóri Kópavogs.
mynd: sjh