Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Síða 6

Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Síða 6
6 Kópavogsblaðið OKTÓBER 2007 A F H Á L S I N U M Hver? Hvar? Hvenær? Ekki hafa enn fengist upplýsing- ar um börnin sem voru á síðustu mynd, en vonandi rankar eihver við sér og gefur upplýsingar. Þær ber að senda til Hrafns Sveinbjarn- arsonar á Héraðsskjalasafninu í síma 544-4710 eða á netfangið hrafns@kopavogur.is Nú fylgir mynd þar sem verið er að horfa á spjald þar sem á stend- ur Húsin okkar. Hverjir eru þetta? Hvert er tilefnið? Hvar er myndin tekin og hvenær? Allar ábending- ar eru vel þegnar. Kópavogur tekur upp vinabæjarsam- band við kínversku borgina Wuhan Samkomulag um vináttubæjar- samband milli Kópavogsbæjar og Wuhan-borgar í Hubei-héraði í Kína var undirritað í Gerðar- safni sl. laugardag. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, undirrituðu viljayfirlýsinguna fyrir hönd Kópavogs en Peng Lemin, aðalframkvæmdastjóri fastanefndar Wuhan-borgar, fyrir hönd Wuhan. Samningsaðilar hyggjast auka gagnkvæman skilning og vináttu þjóða Kína og Íslands með því að standa að samstarfi og heim- sóknum á milli Kópavogs og Wuhan á grundvelli meginreglna um jafnræði og hagræði á sviðum efnahagslífs, viðskipta, vísinda og tækni, menningar, mennta, íþrótta, heilbrigðismála, man- nauðs o.fl. Til stendur að koma á reglubundnum samskiptum æðstu stjórnenda og deilda samn- ingsaðila til að greiða fyrir viðræð- um um samstarf og heimsóknir auk sameiginlegra hagsmuna og hugðarefna. Yfirlýsingin var gerð í samriti á íslensku, kínversku og ensku. Fór vel á því að undirrita hana í Gerð- arsafni þar sem sýning á kínversk- um menningararfi hefur verið sett upp í tengslum við Kínverska menningarhátíð í Kópavogi. Á sýn- ingunni, sem var opnuð almenn- ingi sl. sunnudag og stendur til 7. október, er að finna áhugaverðar þjóðminjar frá Wuhan-svæðinu sem endurspegla bæði hin ýmsu sögulegu menningarstig svæðis- ins og almenna listræna sköpun í Austurlöndum. Kínversk menningar- hátíð hafin í Kópavogi Kínversk menningarhátíð í Kópavogi var sett um síðustu helgi og hún stendur til 7. októ- ber. Setningin fór fram í Lista- safni Kópavogs - Gerðarsafni. Bæjarstjóri Kópavogs, Gunnar I. Birgisson, setti hátíðina og Lei Yunxia, sendifulltrúi í Kínverska sendiráðinu og staðgengill sendi- herra Kína, flutti ávarp. Einnig flutti ávarp Miao Wei, fulltrúi Wuhan-borgar. Þá opnaði forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, tvær sýningar í Gerð- arsafni. Á efri hæð Gerðarsafns er sýn- ingin “Kínverskur menningararfur í Wuhan”, þar sem gefur að líta málverk, listmuni og aðra gripi frá borgarsafni Wuhan í Kína. Á neðri hæð safnsins var ennfrem- ur opnuð sýningin Austræn heim- speki og íslensk norðurljós þar sem sýndar eru abstrakt vatnslita- myndir frá Íslandi eftir Yu Xi. Sýn- ingunni lýkur 11. nóvember nk. en að sýningunni stendur Kópa- vogsbær í samvinnu við lista- og menningarstofnanir í Kópavogi, sendiráð Kína á Íslandi, Kínversk- Íslenska menningarfélagið auk fleiri samstarfsaðila. Á sunnudag var opnuð ljós- myndasýning í Vetrargarðinum í Smáralind. Á sýningunni eru ljós- myndir úr borgarlífinu í Wuhan, sem eru gjöf til Kópavogsbæjar frá Wuhan-borg. Fjölbreytt dagskrá verður und- ir þaki Safnahúss Kópavogs alla hátíðardagana, þar sem sýndar eru kvikmyndir og fræðslumyndir, bókmenntir og listmunir. Þar hef- ur einnig verið fyrirlestraröð og námskeið í flugdrekagerð. Fyrsta kvikmyndin sem sýnd var heitir “Rauði lampinn.” Meðal þess sem Kópavogsbú- um sem og landsmönnum öllum hefur verið boðið upp á eru tón- leikar Þjóðlagahljómsveitar Söng- leikja- og dansstofnunar Wuhan, loftfimleikasýningar í íþróttamið- stöðinni Versölum en síðustu sýn- ingin er á föstudag og laugardag, málþing um kínverska menningu í Salnum næsta laugardag og fjöl- skylduhátíð í Vetrargarðinum í Smáralind sem fram fer næsta laugardag kl. 14.00 til 16.00. Forseti Íslands og forsetafrú skoða sýninguna með aðstoð kínversks fræðimanns. �� �������������� Alltaf nýbakað og ferskt hjá okkur Brauð, kökur, tertur, smurt og veisluþjónusta Úrvalskaffi og heitur reitur Opið alla daga kl. 9-18 Búðakór 1 • Sími 534-6654 Samkomulagið undirritað í Gerðubergi sl. laugardag, skömmu áður en Kínversk menningarhátíð var sett. Við borðið sitja Ómar Stefáns- son, formaður bæjarráðs, Peng Lemin, aðalframkvæmdastjóri fasta- nefndar Wuhanborgar og Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri, en þau staðfestu samkomulagið með undirritun sinni. Samkomulagið gildir til 5 ára, og framlengist ef hvorugur aðili segir því upp. Yu Xi listamaður sýnir á neðri hæð Gerðarsafns abstrakt vatnslita- myndir frá Íslandi.

x

Kópavogsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.