Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Side 10
Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri hélt
upp á sextugsafmæli sitt sl. laugardag í
reiðhöll Gusts í Kópavogi, og þar mætti
mörg hundruð manns. Kór Kársnesskóla
söng fyrir afmælisbarnið og kínverskir
listamenn léki fyrir hann. Fjöldi ávarpa
voru flutt, eða allt þar til afmælisbarninu
þótti nóg komið, enda sagði hann í upp-
hafi afmælishófsins að ef einhverjir vildu
hrósa honum skyldu þeir hringja til hans
í vinnunna á mánudeginum!
10 Kópavogsblaðið OKTÓBER 2007
borgarblod.is
Fallið
frá stór-
skipahöfn
Bæjarstjórinn sextugur!
Afmælisbarnið, Gunnar I. Birgisson og kona hans, Vigdís Karlsdóttir.
Sjónmælingar
linsumælingar
�������������
Kennimennirnir Gunnar í Digranesi og Gunnar í Krossinum.
Sigurjón M. Egilsson ritstjóri DV og Kristján Pálsson fyrrv. þingmaður. Kínverskir listamenn á sviðinu, hreint frábærir listamenn.
Bogi og Geir tóku lagið! Upp úr tösku einni mikilli komu ýmis embættistákn sem hengt voru á
afmælisbarnið.
Gunnar I. Birgisson, bæj-
arstjóri, tilkynnti á morgun-
fundi með sjálfstæðismönn-
um í Kópavogi nýverið að
fallið hefði verið frá hug-
myndum um stækkun hafn-
argarðs í Kópavogshöfn og
þar með gerð stórskipahafn-
ar á Kársnesinu. Einnig er
fallið frá því að hafa þar
hafnsækinn og hefur verð-
ur þar önnur starfsemi, s.s.
verslun, skrifstofur og veit-
ingastarfsemi. Þarna verður
einnig miðstöð vesturbæjar-
ins í Kópavogi, en í dag er á
þessu svæði aðeins ein versl-
un, ísbúð og bakarí.
Ræddar voru á fundinum
hugmyndir um að setja Kárs-
nesbrautina í stokk vegna
umferðarþunga sem líklega
verður um götuna í framtíð-
inni með aukinni íbúabyggð,
en líklega yrði það gert þeg-
ar umferðin næði 15 þúsund
bílum á dag. Þá yrði Kársnes-
braut húsagata með aðkomu
um Hábraut. Gert er m.a.
ráð fyrir 845 nýjum íbúðum
á Kársnesi í núverandi skipu-
lagi, m.a. í bryggjuhverfi, en
á fundinum voru tekin dæmi
um annars vegar 380 íbúðir
og hins vegar 660 íbúðir.
Á fundinum voru m.a. for-
maður Betri Byggðar á Kárs-
nesi, Arna Harðardóttir, og
lýsti ánægju með margt það
sem bæjarstjóri kynnti þar
og sagði m.a. að þarna hefði
meirihluti bæjarstjórnar með
bæjarstjóra í broddi fylkingar
tekið til greina kröfur bæjar-
búa, en um 1.600 athugasemd-
ir bárust þegar núverandi
deiliskipulag var auglýst sem
m.a. gerði ráð fyrir hafnsæk-
inni starfsemi og stórskipa-
höfn. Í framhaldinu fóru svo
samtökin að taka niður mót-
mælaborða á Kársnesinu sem
þar hafa verið áberandi í allt
sumar.
AUGL†SINGASÍMI: 511 1188 - 895 8298