Bændablaðið - 11.09.2014, Síða 2

Bændablaðið - 11.09.2014, Síða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014 Dr. Margrét Hermanns Auðardóttir fornleifafræðingur hefur á undanförnum misserum viðrað hugmyndir um að háskólastarfið í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri verði styrkt með því að þar verði sett á fót rannsóknastofnun og kennsla í fornleifafræði. Hún er ekki sátt við stöðu þessara mála í dag og segir það ekki í nokkru samræmi við það sem þekkist hjá öðrum Norðurlandaþjóðum. Segir Margrét að hvergi sé betra að staðsetja rannsóknastofnun í fornleifafræði en við Landbúnaðar- háskólann, þar sé áhugi og skilningur á þeim margþætta vitnisburði sem fornleifar hafa að geyma um afkomu og verkmenningu bændasamfélagsins á Íslandi. Þá væri mun farsælla að vera með rannsóknir og kennslu í þessum fræðum á Hvanneyri en í Reykjavík. Segir hún að kennsla í fornleifafræði og starfsþjálfun fari einnig mjög vel saman við kennslu í skipulags- og umhverfisfræði við LbhÍ. Margrét telur því nauðsyn á að fornleifavernd og fornleifarannsóknir hafi bakhjarl í rannsóknastofnun sem sett verði á fót hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Stjórnsýslan í molum Margrét hefur sent stjórnar- þing mönnum erindi um þessar hugmyndir sínar og þar bendir hún einnig á að bregðast þurfi við „lítt virkri ‚stjórnsýslu‘ fornleifaverndar hjá ríkisstofnunum í Reykjavík“. Segir hún að það lýsi sér m.a. í því að mikil vanskil séu á niðurstöðum fornleifarannsókna í landinu og fjárveitingum Alþingis til málaflokksins. Í bréfi til stjórnarþingmanna segir hún m.a. að fjárveitingar Alþingis til „fornleifaverndar“ hafi minnst lítið skilað sér til „lögbundinna“ fornleifaverkefna við mat á umhverfisáhrifum, skipulagsúttektir og framkvæmdir á dreifbýlli landsbyggð, þrátt fyrir að fámennum sveitarfélögum sé ætlað að standa undir þeim kvöðum. Enda er fjallað um það í heildarúttekt OECD á umhverfismálum á Íslandi 2001– 2013 að sveitarfélög hafi ekki næga fjárhagslega burði til að fylgja eftir stefnumörkun í umhverfismálum. Samt sem áður gerði sveitarfélagið Borgarbyggð athugasemdir við það, að skort hefði tilfinnanlega á að fjallað væri um verndun fornleifa og menningarminja í lýsingu fyrir gerð Landsskipulagsstefnu 2015–2026. Ferðaþjónustubóndi í Skorradalshreppi vakti einnig athygli á því „að engin stefna eða áætlun liggi fyrir um menningarminjar á Íslandi“, þó að „brýnt sé til leiðbeiningar fyrir sveitarfélögin“. Þá bendir Margrét á að ekkert samræmi sé í framkvæmd ferðamála og fornleifa- og umhverfisverndar, sem þó sé mikilvægur hluti af framtíðarskipulagi ferðamála á Íslandi. Rannsóknir og fornleifaskráning í miklum ólestri Þá segir Margrét að fastmótuð, samræmd fornleifaskráning sé ekki fyrir hendi né nauðsynlegar leiðbeiningar í fornleifarannsóknum í handbók af hálfu ríkisstofnana fornleifaverndar í Reykjavík. Svo mætti lengi áfram telja. Margrét segir að megnið af fjárveitingum Alþingis til „fornleifaverndar“ hafi farið í launakostnað og rekstur ríkisstofnana í Reykjavík, þ.e. til Fornleifaverndar ríkisins 2001– 2012 og Minjastofnunar Íslands 2013–2014. Þrátt fyrir að þar starfi á annan tug starfsmanna, þá hafi þeim ekki tekist að fylgja eftir skilum á fornleifarannsóknum í landinu f.h. ráðherra fornleifaverndar. Né hafi Þjóðminjasafnið staðið undir„lögbundnum“ skilum á fornleifafundum og grunnrannsóknagögnum til safnsins. Það komi fram í Skýrslu um stjórnsýslu fornleifarannsókna og fornleifaverndar á Íslandi 1990– 2010 fyrir fyrrverandi mennta- og menningarmálaráðherra frá í maí 2013, sem ekki hefur verið brugðist við. Skýrslan sem Margrét vitnar til var unnin af Brynju Björk Birgisdóttur fornleifafræðingi, og fjallað var um hana bæði í Kastljósi RÚV og Fréttablaðinu á vordögum 2013. Þar kemur m.a. fram að „engum skýrslum“ hefði verið skilað um fjölda ríkisstyrktra verkefna og að eftirliti með þeim væri ábótavant. Stjórnsýsla fornleifaverndar verði sett undir Umhverfisstofnun Margrét segir þessi vinnubrögð með öllu óásættanleg og því þurfi að stokka upp í stjórnskipan fornleifaverndar. Í erindi til þingmanna segir hún að með tilliti til boðaðrar hagræðingar í ríkisrekstri og árangurstengdra skila á fjárveitingum Alþingis (skattfé) til fornleifaverndar, ætti stjórnsýsla fornleifaverndar best heima hjá Umhverfisstofnun sem er undirstofnun umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Ástæðan sé að stjórnsýsla fornleifaverndar skarist við stjórnsýslu Umhverfisstofnunar vegna lögbundinna verkefna við margþætt mat á umhverfisáhrifum, skipulagsúttektir og fram- kvæmdir sem ná til friðaðra fornleifa, menningarminja og umhverfisminja. Með því að setja stjórnsýslu fornleifaverndar undir Umhverfisstofnun megi spara umtalsverðar fjárhæðir sem nýta mætti til „lögbundinna“ fornleifaverkefna, viðhalds og rannsókna á fornleifum sem liggja undir skemmdum víða á landsbyggðinni fyrir áhrif uppblásturs, vatns- og landrofs. Hugmyndir dr. Margrétar eru mikilvægt innlegg Erindi Margrétar til stjórnar- þingmanna heyra undir málefnasvið allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, en þar er Unnur Brá Konráðsdóttir formaður. Húns segist telja að fara þurfi yfir það með hvaða hætti fornleifarannsóknum, kennslu í fornleifafræði og eftirliti er sinnt. „Hugmyndir dr. Margrétar eru mikilvægt innlegg í þá umræðu. Ég tel að við þurfum að styrkja vísindarannsóknir og það gerum við best með því að dreifa ekki kröftunum of víða með mörgum litlum stofnunum. Við nýtum fjármagn betur og náum meiru fram með því að sameina kraftana. Ég vil því sjá sameiningu Lanbúnaðarháskólans og HÍ. Það er áhugaverð hugmynd að koma stjórnsýslunni varðandi fornleifavernd undir Umhverfisstofnun en ég tel að við eigum marga góða möguleika á því að ná fram frekari hagræðingu í stjórnsýslunni með það að markmiði að stofnanirnar verði sterkari og betur í stakk búnar til að sinna sínum verkefnum.“ Vistun fornleifafræðinnar innan LbhÍ yrði góður kostur Haraldur Benediktsson, alþingis- maður og fyrrverandi formaður Bændasamtaka Íslands, hefur látið málefni LbhÍ mjög til sín taka. „Mér finnst áhugavert að skoða framtíð þessa fræðasviðs og framtíðarfyrirkomulag. Fræðasviðið virðist verða undir í miklum skipulagsbreytingum innan háskólakerfisins. Nokkuð sem við höfum alltaf óttast með búvísindin og búfræðsluna. Þannig að örlög fornleifafræðinnar eru okkur umhugsunarefni. Landnýting og fornleifarannsóknir eru tengdar greinar. Það er mikilvægt að samþætta þau meira en gert er. Ég er ekki í vafa að vistun fræðasviðsins innan LbhÍ yrði góður kostur,“ segir Haraldur. Með doktorsgráðu í norrænni fornleifafræði og miðaldafornleifafræði Dr. Margrét Hermanns Auðardóttir stundaði nám í fornleifafræði við háskólana í Uppsölum, Lundi og Gautaborg í Svíþjóð. Doktorsritgerð hennar fjallaði um upphaf byggðar á Íslandi og varði hún þá ritgerð við háskólann í Umeå árið 1989. Margrét hefur stundað fornleifarannsóknir hér á landi, m.a. í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum og að Gásum í Eyjafirði, og erlendis og ritað fjölda greina í bækur og tímarit. Á árunum 1987–1990 gegndi hún rannsóknarstöðu í fornleifafræði við Háskóla Íslands. Þá átti hún frumkvæði að og stjórnaði þverfaglegu norrænu vísindasamstarfsverkeni 1993– 1999 sem fékkst við rannsóknir á aldri byggðar á Íslandi og í Færeyjum. Í doktorsritgerð sinni hélt Margrét því fram að Ísland hafi að öllum líkindum verið í byggð allnokkru fyrr en áður var talið. Byggði hún það m.a. á rannsóknum í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum. Fékk Margrét mjög bágt fyrir þessar „kenningar“ sínar hjá ýmsum sagnfræðingum innan Háskóla Íslands, enda kollvarpaði þetta þeirri söguskoðun sem haldið hefur verið að Íslendingum, m.a. í gegnum skólakerfið, að Ísland hafi verið numið 870 eða 874. Vekur sú afstaða ekki síst athygli þar sem á undanförnum árum hafa verið að koma fram fjölmargar nýjar upplýsingar vísindamanna sem styrkja rannsóknaniðurstöður Margrétar. Til styrktar fornleifavernd á landsbyggðinni „Tillagan að háskólatengdri r annsóknas to fnun v ið Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri er hugsuð til styrktar fornleifavernd á landsbyggðinni og skilum á fornleifarannsóknum“ samkvæmt erindi Margrétar til þingmanna. „Fyrirmyndin að stofnuninni er sótt til Noregs og löguð að íslenskum aðstæðum í útfærðri tillögu sem ég hef sett fram undir heitinu, Háskólatengd rannsóknastofnun nauðsyn til styrktar fornleifavernd og fornleifarannsóknum,“ segir Margrét. /HKr. Fréttir Kartöfluinnflutningur: Veruleg aukning á þessu ári Fyrstu sjö mánuði þessa árs voru flutt inn 2.127 tonnum meira af kartöflum en á sama tímabili 2013 samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Skýrist þetta trúlega af lélegri kartöfluuppskeru hér innanlands vegna vætutíðar í fyrra. Væntanlega verður því talsverður umsnúningur á kartöfluinnflutningi í vetur vegna mun betri uppskeru. Fyrstu sjö mánuði þessa árs voru flutt inn samtals 3.306 tonn af kartöflum á móti 1.279 tonnum á síðasta ári. Fram til septemberloka í fyrra var aðeins búið að flytja inn 1.816 tonn, eða rúmlega helming þess sem flutt hefur verið inn fyrstu sjö mánuði ársins 2014. Innflutningur grænmetis hefur haldist svipaður milli áranna 2013 og 2014. Þannig voru flutt inn 7.693 tonn fyrstu sjö mánuði þessa árs á móti 7.411 tonnum á sama tímabili í fyrra. Munar þar einungis 282 tonnum. Tré ársins 2014 Skógræktarfélag Íslands útnefnir Tré ársins við hátíðlega athöfn sunnudaginn 14. september kl. 14. Tréð er evrópulerki (Larix decidua) við Arnarholt í Stafholtstungum í Borgarfirði. Talið er að tréð sé 105 ára, gróðursett fyrir tilstilli Sigurðar Þórðarsonar sýslumanns árið 1909. Við sama tækifæri mun Borgarbyggð veita umhverfis- viðurkenningar til þeirra býla, heimilisgarða og stofnana sem þykja bera af í sveitarfélaginu. Boðið verður upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá, ásamt sveitakaffi að hætti Borgfirðinga. Margrét Hermanns Auðardóttir. Dr. Margrét Hermanns Auðardóttir fornleifafræðingur segir fornleifamálin í miklum ólestri: Rannsóknir og kennsla í fornleifafræði fari undir hatt Landbúnaðarháskóla Íslands – Telur líka að styrkja megi stjórnsýslu fornleifaverndar með því að setja hana undir Umhverfisstofnun Unnur Brá Konráðsdóttir. Haraldur Benediktsson. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands hefur umfang dagblaðaprentunar dregist talsvert saman í þrjú ár í röð eftir að hafa tekið kipp 2011. Þannig var innflutningur dagblaðapappírs fyrstu sjö mánuði þessa árs sá minnsti frá 2010. Fram til loka júlí á þessu ári voru flutt inn 5.123 tonn af dagblaðapappír á móti 5.317 tonnum á sama tímabili 2013. Þessa sjö mánuði 2012 voru flutt inn 5.559 tonn og 5.989 tonn árið 2011. Eftir hrunið 2008 dróst dagblaðaprentun talsvert saman og var innflutningur langminnstur 2010. Fyrstu sjö mánuði þess árs voru einungis flutt inn 2.966 tonn af dagblaðapappír. Það virðist svolítið á skjön við þessa þróun að undanfarin ár hefur verið stöðug aukning á upplagi og útbreiðslu Bændablaðsins. Innflutningur á pappír: Prentun dagblaða dregst saman Fóðurvöruinnflutningur: Talsverð aukning milli áranna 2013 og 2014 Innflutningur á fóðurvörum hefur aukist töluvert fyrstu sjö mánuði þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru flutt inn 53.468 tonn af fóðurvörum fyrstu sjö mánuði þess ár. Er það aukning upp á 8.552 tonn frá sama tímabili 2013. Ef skoðaður er innflutningur á árinu 2012 er aukningin þó ekki eins mikil því fyrstu sjö mánuði þess árs voru flutt inn 48.722 tonn af fóðurvörum.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.