Bændablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014 Viðhald stofnútsæðis er flókið ferli og það tekur fjögur til fimm á frá því að vefjaræktun hefst og afrakstur hennar kemur á markað sem matkartöflur. Einungis fáir bændur hafa leyfi til að rækta stofnútsæði og selja það til annarra ræktenda og er leyfið háð ströngum skilyrðum. Í lögum um kartöfluútsæði er gert ráð fyrir að í boði sé stofnútsæði sem ætlað er að stuðla að framleiðslu á arfhreinu, uppskerumiklu og heilbrigðu útsæði af þeim afbrigðum, sem hér eru mikilvægust í ræktun. Samband garðyrkjubænda hefur haldið utan um þessa ræktun fyrir hönd kartöflubænda frá árinu 2010 að eigin ósk en óvissa um hana skapaðist í kjölfar hrunsins 2008. Fjórum yrkjum af kartöflum, gullauga, helga, premiere og rauðar íslenskar, er haldið við með vefjaræktun sem stofnútsæði. Tilgangur ræktunarinnar er að halda yrkjunum arfhreinum og hafa aðgang að sjúkdómsfríu útsæði. Einungis þrír bændur á landinu mega kaupa og rækta svokallaða eðalstofna eða stofnútsæði A af framleiðanda. Tæplega 20 ræktendur mega svo kaupa, rækta og selja útsæði frá þeim. Það tekur fjögur til fimm ár frá því að vefjarækt hefst og afrakstur hennar kemur á markað sem matkartöflur. Fram til 2008 greiddi Garðávaxtasjóður fyrir ræktunina samkvæmt kostnaðaráætlun. Eftir að sjóðurinn var lagður niður rann fjármagn hans í Framleiðnisjóð landbúnaðarins. Árið 2011 var fjármagn til Framleiðnisjóðs skorið mikið niður. Framlag Framleiðnisjóðs lækkað Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda, segir að1. janúar 2013 hafi ný stjórn tekið við Framleiðnisjóði. „Að þeim tíma hafi sjóðurinn greitt framlag til Sambands garðyrkjubænda vegna stofnræktunarinnar í samræmi við kostnaðaráætlun frá okkur. Við greiddum fyrir vefjaræktunina og skiluðum fjármagni aftur til Framleiðnisjóðs ef framleiðslan var undir kostnaðaráætlun. Á síðasta ári ákvað stjórn Framleiðnisjóðs að skerða framlag sitt til Sambands garðyrkjubænda fyrir vefjaræktunina með þeirri skýringu að það sé stefna sjóðsins að þeir sem kaupi stofnútsæðið af framleiðanda greiði mótframlag. Eitthvað sem aldrei hefur verið beðið um áður þegar kemur að þessari styrkveitingu. Miðað við útreikninga Framleiðnisjóðs árið 2013 sýnist mér að mótframlagið eigi að vera 35%.“ Barst seint „Ákvörðun Framleiðnisjóðs barst okkur í lok apríl 2013 og því að okkar mati allt of seint því kartöflur eru settar niður fljótlega eftir það og framleiðandi og kaupendur útsæðiskartaflna búnir að semja um verð. Bjarni segist hafa sent stjórn Framleiðnisjóðs greinargerð á síðasta ári þar sem hann segist hafa sýnt fram á hver raunkostnaður við stofnútsæði framleiðslu er og að hann hafi breytt styrkumsókninni í samræmi við það. „Í umsókninni um styrkinn fyrir 2014 er heildarkostnaður við ræktunina talinn vera rúmar 12,8 milljónir en sótt um styrk upp á rúmar 4,9 milljónir króna. Í svari Framleiðnisjóðs er samþykkt að greiða 4,1 milljón króna framlag til Sambands garðyrkjubænda vegna ræktunarinnar.“ Að sögn Bjarna er hann ósáttur við viðbrögð Bændasamtaka Íslands í þessu máli. „Ég hefði gjarnan viljað að þeir sýndu því meiri skilning og um leið stuðning því þegar upp er staðið er það ekki hlutverk Sambands garðyrkjubænda að standa undir kostnaði vegna ræktunar á stofnútsæði þrátt fyrir að halda utan um verkefnið.“ Tjá sig ekki um umsóknir við þriðja aðila Ríkharð Brynjólfsson, prófessor á Hvanneyri, sem situr í stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, sagði að þeir tjáðu sig ekki um afgreiðslu umsókna í sjóðinn við þriðja aðila og vildi því ekki tjá sig um málið við Bændablaðið. „Ferlið er þannig að við fáum umsóknir og afgreiðum þær og sendum umsækjendum umsögn og rökstuðning vegna afgreiðslunnar. Sjóðurinn fær á hverju ári beiðnir um mun meira fé en hann getur veitt og því ekki hægt að koma til móts við þær allar.“ /VH Samband garðyrkjubænda: Ósáttir með styrkveitingu vegna ræktunar á stofnútsæði kartaflna Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda. Viðhald stofnútsæðis er ókið ferli og það tekur fjögur til mm ár frá því að vefjarækt hefst og afrakstur hennar kemur á markað sem matkartö ur. Reglugerð um kartöfluútsæði Í II kafla þar sem er að finna almenn ákvæði um kartöfluútsæði, 2. grein, segir : „Leyfi kartöfluræktanda til sölu útsæðis af tilteknu afbrigði er háð því skilyrði að hann endurnýi reglulega með kaupum á innlendu stofnútsæði það útsæði sem hann setur niður af því afbrigði. Hægt er að viðurkenna innflutt stofnútsæði til jafns við innlent teljist það sambærilegt að gæðum að mati Landbúnaðarstofnunar. Skal hann þar velja um aðra af tveimur leiðum. Annars vegar skal hann árlega kaupa sem nemur að lágmarki 15% af því útsæði sem hann setur niður af afbrigðinu á ræktunarlandi sínu, halda nýja stofninum sem mest aðskildum frá öðrum kartöflum í forspírun, ræktun og geymslu og nota uppskeruna síðan sem útsæði næsta ár. Hins vegar skal hann endurnýja alveg með stofnútsæði að minnsta kosti fjórða hvert ár. Leyfi til sölu útsæðis skal ekki veita fyrr en ræktandi hefur sett niður stofnútsæði af viðkomandi afbrigði í minnst 2 sumur í röð. Frá þessu má þó víkja þegar verið er að hefja kartöflurækt eftir minnst 5 ár án kartöfluræktar, eingöngu sett niður stofnútsæði og þegar ekki er talin stafa smithætta frá vélum og ræktunarlandi. Í III kafla þar sem fjallað er um stofnútsæði segir: „Landbúnaðarstofnun skal beita sér fyrir því að ávallt sé völ á heilbrigðu, völdu, innlendu útsæði af þeim afbrigðum sem hér henta best til ræktunar. Í 10. grein segir: „Tilgangur stofnræktunar er einkum að stuðla að framleiðslu á arfhreinu, uppskerumiklu og heilbrigðu útsæði af þeim afbrigðum, sem hér eru mikilvægust í ræktun.“ Kúariða er banvænn sjúkdómur sem leggst á heila nautgripa. Sjúkdómurinn er langvinnur og einkennin koma að jafnaði ekki fram fyrr en um 5 ára aldur. Engin meðhöndlun eða bólusetning finnst gegn sjúkdómnum. Einkenni kúariðu minna að mörgu leyti á einkenni riðuveiki hjá sauðfé, þ.e.a.s. taugaeinkenni sem birtast í hegðunarbreytingum og erfiðleikum við hreyfingu. Talið er að sjúkdómurinn geti borist í nautgripi ef þeir eru fóðraðir á dýrafóðri, framleitt úr leifum sýktra nautgripa. Fyrsta tilfellið af kúariðu var staðfest í Bretlandi árið 1986. Síðan þá hefur sjúkdómurinn verið staðfestur í fleiri Evrópulöndum, Asíu, Mið-Austurlöndum og í Norður-Ameríku. Vísbendingar eru um að tilbrigði kúariðunnar, banvæni h r ö r n u n a r s j ú k d ó m u r i n n Creutzfeldt-Jakob sem leggst á fólk, geti stafað af neyslu sýkts taugavefjar eða nautakjöts sem hefur komist í snertingu við sýktan taugavef. Alþjóðlega dýraheilbrigðis- málastofnunin (OIE) hefur viðurkennt Ísland sem kúariðulaust land á sögulegum forsendum. Þar vegur þyngst að kúariða hefur aldrei greinst hér á landi, lifandi nautgripir hafa ekki verið fluttir inn síðan 1933, bannað hefur verið að flytja inn kjöt- og beinamjöl síðan 1968 og óheimilt er að fóðra nautgripi á kjöt- og beinamjöli síðan 1978. Þessi alþjóðlega viðurkenning er afar mikilvæg fyrir íslenska nautakjötsframleiðslu og heilnæmi íslensks landbúnaðar. Til þess að Ísland geti viðhaldið þessari stöðu sinni hjá OIE, þarf ákveðinn fjöldi heilasýna úr nautgripum að berast árlega til riðuskimunar. Fram til þessa hafa sýni skilað sér illa til rannsókna og nú er yfirvofandi hætta á að Ísland missi stöðu sína sem kúariðulaust land. Ísland verður árlega að sýna fram á tilskilinn fjölda sýna til skimunar, sbr. reglugerð nr. 999/2001 um forvarnir gegn, eftirlit með og útrýmingu tiltekinna tegunda smitandi heilahrörnunar. Taka skal sýni úr eftirfarandi flokkum nautgripa: • Allir gripir eldri en 24 mánaða sem er slátrað í neyð. • Allir gripir eldri en 24 mánaða sem eftirfarandi hefur komið fram við skoðun fyrir slátrun: þreyta eða óróleiki, grunur eða staðfesting á smitsjúkdómi sem getur borist í fólk eða dýr, grunur eða staðfesting á sjúkdómi eða einhvers konar röskun sem getur leitt til að kjötið sé óhæft til manneldis. • Allir gripir eldri en 30 mánaða sem slátrað er til manneldis, slátrað er vegna útrýmingar á sjúkdómi en sýna ekki klínísk einkenni. • Allir gripir eldri en 24 mánaða sem hafa drepist eða verið lógað vegna annars en niðurskurðar vegna farsóttar, t.d. gin- og klaufaveiki slátrunar til manneldis Bestu vísbendingu um heilsufar nautgripa á Íslandi hvað kúariðu varðar, gefa sýni úr grunsamlegum tilfellum, þ.e.a.s. fullorðnum gripum sem drepast heima á bæ eða er lógað vegna sjúkdóma eða slysa. Matvælastofnun óskar eftir samstarfi við nautgripabændur við að tryggja þessa miklu hagsmuni landsins, með því að leggja til sýni úr fullorðnum nautgripum sem drepast eða er slátrað heima. Bændur snúa sér þá til síns héraðsdýralæknis og í samráði við þá er tekin ákvörðun hvort eftirlitsdýralæknir frá Matvælastofnun taki sýnin, dýralæknir viðkomandi bús eða bóndinn sjálfur. Í öllum tilfellum er sýnatakan bændum að kostnaðarlausu. Leiðbeiningar um sýnatöku er hægt að nálgast á vef Landssambands kúabænda - www.naut.is Sigrún Bjarnadóttir, dýralæknir nautgripa- og sauðfjársjúkdóma ...frá heilbrigði til hollustu Kúariða og hagsmunir íslensks landbúnaðar Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Hafa áhrif um land allt! Nýlegar rannsóknir benda til að lifandi gróður á vinnustað auki ekki bara vellíðan starfsmanna heldur auki líka afköst um allt að 15%. Fjármagni sem fer í að gróðurvæna vinnustaði er því vel varið. Fjölþjóðleg rannsókn á vegum háskólans í Queensland í Ástralíu sýndi að langtímaáhrif gróðurs á vinnustöðum væru vanmetin og með því að dreifa pottaplöntum um skrifstofur, fundaherbergi og í skólastofum ykist ánægja starfsmanna og að þeim liði betur. Í öðrum rannsóknum hefur verið sýnt fram á að grænn litur plantna er róandi. /VH Pottaplöntur auka framlegð um 15%

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.